Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 7 mánaða.
Fyrsta skóflustungan að nýrri íbúðabyggð við Þingborg í Flóahreppi var tekin nú í janúar og framkvæmdaleyfi gefið út í kjölfarið fyrir gatnagerð og lagningu veitna.
Fyrsta skóflustungan að nýrri íbúðabyggð við Þingborg í Flóahreppi var tekin nú í janúar og framkvæmdaleyfi gefið út í kjölfarið fyrir gatnagerð og lagningu veitna.
Mynd / Aðsend
Fréttir 18. mars 2026

Sextíu nýjar lóðir

Höfundur: Magnús Hlynur Hreiðarsson

Fyrsta skóflustungan að nýrri íbúðabyggð við Þingborg í Flóahreppi var tekin nú í janúar og framkvæmdaleyfi gefið út í kjölfarið fyrir gatnagerð og lagningu veitna.

Sveitarfélagið gerði samning við Gröfutækni ehf. á Flúðum um þennan verkþátt eftir útboð og yfirferð tilboða fyrir áramót. Hugmyndir um uppbyggingu á Þingborgarsvæðinu eru ekki nýjar á nálinni en fyrsta deiliskipulag fyrir íbúðabyggð var gert á tíma Hraungerðishrepps þegar deiliskipulag ásamt greinargerð fyrir 26 lóðir voru samþykktar. Það deiliskipulag hefur svo tekið breytingum síðustu ár og var gildandi skipulag samþykkt með auglýsingu þann 13. desember 2022 og byggja yfirstandandi framkvæmdir á því skipulagi.

„Þessi framkvæmd markar ákveðin tímamót þar sem nú er að verða til fyrsta þéttbýlið í Flóahreppi. Í fyrsta áfanga er gert ráð fyrir um 20 íbúðum, þ.e. rað- og par- og einbýlishúsalóðum, við göturnar Þingbrú og Þingmóa. Þegar núverandi skipulag verður fullbyggt verða um 60 nýjar íbúðir á svæðinu,” segir Hulda Kristjánsdóttir, sveitarstjóri og bætir við.

Mikill áhugi

Hulda segist finna fyrir miklum áhuga á nýja hverfinu.

„Já við finnum fyrir miklum áhuga á þessu verkefni og allnokkrir einstaklingar og verktakar hafa sýnt áhuga og bíða eftir því að lóðaúthlutun fari fram. Hverfið við Þingborg hefur marga kosti fyrir verðandi íbúa og má þar til dæmis nefna að hverfið er í göngufæri við leikskólann Krakkaborg sem er vel mannaður leikskóli án biðlista sem tekur inn börn frá 12 mánaða aldri. Stutt er í friðsæla náttúru og útivistarmöguleika og innan við 10 mínútna akstur í verslun og þjónustu á Selfossi. Nemendur á grunnskólaaldri eru sóttir með skólabíl í grunnskóla sveitarfélagsins, Flóaskóla, og einnig má nefna að sveitarstjórn hefur lækkað fasteignaskatt á íbúðarhús í Flóahreppi undanfarin ár en í dag er álagningarhlutfallið á íbúðarhús 0,40% af fasteignamati eignar,” segir Hulda.

Lóðunum úthlutað með vorinu

Sveitarstjórn Flóahrepps vinnur að því þessa dagana að klára úthlutunarreglur fyrir lóðir, drög að lóðarleigusamningum ásamt uppfærslu á samþykktum um gatnagerðargjald í þéttbýli, fráveitu og meðhöndlun úrgangs en allt þetta tengist uppbyggingu á þéttbýli sem ekki hefur verið til staðar áður í sveitarfélaginu. Stefnt er að úthlutun lóða með vorinu.

„Með uppbyggingu á Þingborgarsvæðinu er sveitarfélagið að mæta skyldum sínum um framboð á fjölbreyttum lóðum og húsnæði og ljóst að með uppbyggingu á þessu svæði er meðal annars verið að skapa framboð á hentugum eignum fyrir fyrstu kaupendur og þá sem vilja minnka við sig. Núverandi sveitarstjórn hefur verið samstíga og sammála um ofangreinda uppbyggingu og erum við stolt af því að verkefnið sé loksins komið af stað af krafti,” segir Hulda.

Skylt efni: Flóahreppur

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn
Fréttir 28. október 2026

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn

Í sumar var endurnýjaður samningur Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins (RML) við ...

Verðhækkun um 2,5% tryggð
Fréttir 28. október 2026

Verðhækkun um 2,5% tryggð

Bændur huga brátt að áburðarmálum næsta ræktunartímabils. Í rúmlega 10 ár hefur ...

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir
Fréttir 28. október 2026

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir

Stjórn Byggðastofnunar hefur ákveðið að auka fjárframlög til verkefnisins Brothæ...

Sjálfbær þróun með sólarorku
Fréttir 27. október 2026

Sjálfbær þróun með sólarorku

Eins og frá var greint í síðasta tölublaði Bændablaðsins er stærsta birtuorkuver...

Þór hf. hættir með DEUTZ-FAHR dráttarvélar
Fréttir 27. október 2026

Þór hf. hættir með DEUTZ-FAHR dráttarvélar

Þór hf. og SDF hafa komist að sameiginlegri niðurstöðu um að ljúka samstarfi um ...

Samræmdar aðferðir þróaðar við vöktun á rusli í vatni
Fréttir 27. október 2026

Samræmdar aðferðir þróaðar við vöktun á rusli í vatni

Matís stýrir stóru evrópsku verkefni sem felst í að þróa samræmdar og hagkvæmar ...

Áform um matvælakjarna  og votlendissetur
Fréttir 27. október 2026

Áform um matvælakjarna og votlendissetur

Hjá Landbúnaðarháskóla Íslands (LbhÍ) er í undirbúningi verkefni sem felst í að ...

Skinka úr íslensku svínakjöti
Fréttir 26. október 2026

Skinka úr íslensku svínakjöti

Stjörnugrís er eini framleiðandinn sem framleiðir skinku aðeins úr íslensku svín...