Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 3 ára.
Sex milljóna markinu náð
Á faglegum nótum 7. nóvember 2022

Sex milljóna markinu náð

Höfundur: Þröstur Eysteinsson skógræktarstjóri.

Þessa dagana er verið að klára haustgróðursetningu í skógrækt. Skógarbændur víða um land hafa fengið sínar plöntur eða eru um það bil að fara að sækja þær á dreifingarstöðvar.

Þröstur Eysteinsson

Skógræktin hefur fengið sínar plöntur í stóru verkefnin með Landgræðslunni, svokölluð Bonnverkefni, og önnur verkefni í samstarfi við ýmsa aðila. Einkaaðilar fengu sinn skerf og skógræktarfélög sinn. Okkur sýnist að gróðursetning ársins fari yfir 6 milljónir plantna. Þetta er mikilvægt svo Ísland geti náð loftslagsmarkmiðum sínum

Innlendir verktakar í gróður- setningu fá nóg að gera, en þeir eru fáir og því var samið við erlent verktakafyrirtæki til að ná endum saman. Það er eins og í svo mörgu öðru hjá fámennri þjóð. Hins vegar höfum við lært margt gott af samskiptunum við það ágæta gróðursetningarfólk sem hingað hefur komið, m.a. að á löngum degi í júní getur einn maður, vel á sig kominn, gróðursett 10.000 tré.

Gróðrarstöðvarnar sem framleiða skógarplöntur hafa staðið sig geysivel og vinna nú að því að geta aukið afköstin enn meira. Þá íhuga fleiri aðilar að reisa nýjar gróðrarstöðvar. Ekki veitir af, því allt bendir til þess að þörfin fyrir skógarplöntur aukist verulega á næstu árum.

Annað sem getur takmarkað skógrækt og þarf því að leysa er framboð á fjölgunarefni (fræi og græðlingum). Þar dugar ekki hvað sem er, því við gerum kröfur um góða aðlögun og góðan vöxt trjánna. Það vill svo heppilega til að nú er gott fræár á birki og greni á Norður- og Austurlandi. Því er áhersla lögð á að ná inn birgðum til nokkurra ára af þekktum og góðum uppruna fyrir þær tegundir. Þá verður eins mikið tínt af stafafurukönglum og hægt er og tilraun gerð með söfnun lerkiköngla í þeirri von að spírun sé skárri en vaninn er. Skortur á græðlingaefni alaskaaspar hefur lengi verið hamlandi, en unnið er að því að fjölga móðurplöntum af kynbættum og ryðþolnum klónum. Þá er einnig unnið að því að auka framleiðslu á lerkiblendingnum ‘Hrymi’ sem getur vaxið álíka hratt á rýru landi og alaskaösp getur á frjósömu landi.

Allt tekur þetta mannskap, tíma og peninga. Fjárfesta þarf í þessum innviðum skógræktar; í framleiðslu fjölgunarefnis, í framleiðslugetu plantna og í því að koma plöntunum í jörð. Ekki síst þarf að fjárfesta í þekkingu á öllum sviðum. Skógræktin vinnur að eflingu skógræktar í þágu stefnu stjórnvalda í loftslagsmálum og tekur þeirri ábyrgð sem henni er falin mjög alvarlega. Hún vinnur hörðum höndum að því að leysa úr áskorunum sem því fylgja að auka gróðursetningu í landinu. Það hefur í för með sér vinnu með öðrum ríkisaðilum, sveitarfélögum, fyrirtækjum og einstaklingum að margs konar úrlausnarefnum. Oftast er sú vinna ánægjuleg því samstarfsaðilar eru á sama blaði, vita það að Ísland er skuldbundið til að ná tilteknum árangri í loftslagsmálum fyrir 2030 og ætlar sér að verða kolefnishlutlaust 2040. Til þess þarf að vinna ötullega að mörgu, þ.á m. að því að stórauka skógrækt.

Tími umræðu og efasemda um loftslagsvána er liðinn. Tími aðgerða er kominn. Ekki er eftir neinu að bíða. Með þekkingu og vísindalegar niðurstöður að vopni getum við gert góðar áætlanir sem taka fullt tillit til ýmiss konar verndarsjónarmiða og ræktað gjöfulan skóg sem er ómissandi hluti af leiðinni að kolefnishlutlausu Íslandi 2040. Skógrækt á litlum hluta landsins getur þarna skipt sköpum.

Skylt efni: Skógrækt

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum
Fréttir 16. október 2026

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum

Skæð fuglainflúensa hefur greinst í sýnum sem tekin voru úr villtum fuglum á Nor...

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir
Fréttir 16. október 2026

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir

Undanfarin fimm ár hefur Bjarki Þór Sólmundsson, matreiðslumeistari og myndlista...

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni
Fréttir 16. október 2026

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni

Kynslóðaskipti hafa orðið á garðyrkjustöðinni Hveratúni í Laugarási. Skúli Magnú...

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða
Fréttir 15. október 2026

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða

„Hagvöxtur trompar allt annað í áherslum stjórnvalda. En er hann besti mælikvarð...

Fékk nafnið Vafi
Fréttir 15. október 2026

Fékk nafnið Vafi

Eins og allir vita þá kasta hryssur á vorin og eitthvað fram eftir sumri en að þ...

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn
Fréttir 15. október 2026

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn

Í reiðhæfni, öryggi og hugrekki fær íslenski hesturinn hæstu einkunn allra kynja...

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra
Fréttir 14. október 2026

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra

Það er mikið um að vera hjá Reykjagarði á Hellu því þar er verið að byggja fjögu...

Kornskemman hefur tæplega undan
Fréttir 14. október 2026

Kornskemman hefur tæplega undan

Kornskemman, félag bænda í Eyjafirði, auglýsti móttöku á korni öðru sinni. „Við ...