Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 7 mánaða.
Erna Bjarnadóttir hagfræðingur var frummælandi á fundinum.
Erna Bjarnadóttir hagfræðingur var frummælandi á fundinum.
Mynd / Aðsend
Fréttir 17. mars 2026

Segja blekkingum beitt í tali um aðildarumsókn

Höfundur: Þröstur Helgason
Frummælendur á fundi samtkanna Til vinstri við ESB í Tryggvaskála á Selfossi á sunnudaginn gagnrýndu ríkisstjórnina og ESB-sinna fyrir að fela aðildarumsókn með því að kalla aðlögunarferli að sambandinu samningaviðræður. Fram kom að sjálft Evrópusambandið vari við þessum misskilningi í sínu eigin kynningarefni þar sem því er algerlega hafnað að lönd geti samið sig frá meginlögum ESB. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá samtökunum.
Húsfyllir var á fundinum sem fjallaði um stöðu landbúnaðar gagnvart fyrirhugaðri aðildarumsókn að ESB.

Erna Bjarnadóttir hagfræðingur benti á að grunnreglur Evrópusambandsins hefðu lagagildi og sérhver varanleg undanþága sem ætti að halda gagnvart dómstólum yrði að taka upp í svokallaðan frumrétt sambandsins sem þýði að öll aðildarlönd verði að samþykkja þá breytingu.

Umræður spunnust um málið eftir framsöguræður þar sem Trausti Hjálmarsson formaður Bændasamtakanna og Lilja Alfreðsdóttir nýkjörinn formaður Framsóknarflokksins voru meðal þátttakenda. Framsögumenn voru auk Ernu nafnarnir Þorsteinn Ólafsson dýralæknir og Þorsteinn Bergsson rithöfundur og fyrrverandi bóndi en hann er jafnframt formaður samtakanna Til vinstri við ESB. Ögmundur Jónasson fyrrverandi ráðherra var fundarstjóri.

Eftir formleg fundarslit var skotið á öðrum fundi í Skálanum þar sem stofnuð var Suðurlandsdeild samtakanna Til vinstri við ESB.
Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn
Fréttir 28. október 2026

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn

Í sumar var endurnýjaður samningur Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins (RML) við ...

Verðhækkun um 2,5% tryggð
Fréttir 28. október 2026

Verðhækkun um 2,5% tryggð

Bændur huga brátt að áburðarmálum næsta ræktunartímabils. Í rúmlega 10 ár hefur ...

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir
Fréttir 28. október 2026

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir

Stjórn Byggðastofnunar hefur ákveðið að auka fjárframlög til verkefnisins Brothæ...

Sjálfbær þróun með sólarorku
Fréttir 27. október 2026

Sjálfbær þróun með sólarorku

Eins og frá var greint í síðasta tölublaði Bændablaðsins er stærsta birtuorkuver...

Þór hf. hættir með DEUTZ-FAHR dráttarvélar
Fréttir 27. október 2026

Þór hf. hættir með DEUTZ-FAHR dráttarvélar

Þór hf. og SDF hafa komist að sameiginlegri niðurstöðu um að ljúka samstarfi um ...

Samræmdar aðferðir þróaðar við vöktun á rusli í vatni
Fréttir 27. október 2026

Samræmdar aðferðir þróaðar við vöktun á rusli í vatni

Matís stýrir stóru evrópsku verkefni sem felst í að þróa samræmdar og hagkvæmar ...

Áform um matvælakjarna  og votlendissetur
Fréttir 27. október 2026

Áform um matvælakjarna og votlendissetur

Hjá Landbúnaðarháskóla Íslands (LbhÍ) er í undirbúningi verkefni sem felst í að ...

Skinka úr íslensku svínakjöti
Fréttir 26. október 2026

Skinka úr íslensku svínakjöti

Stjörnugrís er eini framleiðandinn sem framleiðir skinku aðeins úr íslensku svín...