Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 6 ára.
Rose Blush-vesti
Hannyrðahornið 28. ágúst 2020

Rose Blush-vesti

Höfundur: Handverkskúnst

Vestið er prjónað með stroffi og klauf í hliðum.

Stærðir:  S (M) L (XL) XXL (XXXL)
- Yfirvídd: 80 (88) 96 (106) 118 (130) cm

Garn: DROPS SKY (fæst í Handverkskúnst)
- 150 (150) 150 (200) 200 (200) g litur nr 18, dökkbleikur

Prjónfesta: 20 lykkjur x 26 umferðir í sléttu prjóni = 10x10 cm.

Prjónar: Hringprjónn 80 cm nr 4,5 og hringprjónn 40 og 80 cm nr 3,5

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

ÚRTAKA:Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 88 lykkjur), mínus kantlykkjum að framan í garðaprjóni (t.d. 10 lykkjur) og deilið þeim lykkjufjölda sem eftir er með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 8) = 9,8. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna ca 9. og 10. hverja lykkju slétt saman (lykkjum er ekki fækkað yfir kantlykkjur)

VESTI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka í stykkjum og saumað saman í lokin. Síðan eru prjónaðar upp lykkjur fyrir stroff í kringum handveg og háls.

BAKSTYKKI: Fitjið upp 88 (96) 104 (116) 128 (144) lykkjur á hringprjón nr 3,5. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, *prjónið 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur garðaprjón*, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 5 kantlykkjum í garðaprjóni. Haldið svona áfram í 3 cm. Prjónið nú 1 umferð slétt frá réttu og fækkið um 8 (8) 8 (10) 10 (14) lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA = 80 (88) 96 (106) 118 (130) lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Skiptið yfir á hringprjón nr 4,5. Prjónið slétt prjón fram og til baka með 5 lykkjum garðaprjón í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 34 (35) 36 (37) 38 (39) cm, fellið af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 4 (5) 6 (7) 8 (9) lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 0 (1) 2 (3) 4 (6) sinnum og 1 lykkju 2 (2) 2 (3) 5 (5) sinnum = 68 (70) 72 (74) 76 (78) lykkjur. Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni og 1 kantlykkju garðaprjón í hvorir hlið. Þegar stykkið mælist 50 (52) 54 (56) 58 (60) cm, fellið af fyrir miðju 30 (30) 32 (32) 34 (34) lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af 1 lykkju í næstu umferð við hálsmál = 18 (19) 19 (20) 20 (21) lykkjur eftir fyrir öxl. Haldið áfram í sléttu prjóni og 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið þar til stykkið mælist 20 (21) 22 (23) 24 (25) cm frá þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg. Fellið af með sléttum lykkjum (passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur).

Stykkið mælist alls 54 (56) 58 (60) 62 (64) cm frá öxl og niður. Prjónið hina öxlina alveg eins.
FRAMSTYKKI: Fitjið upp 88 (96) 104 (116) 128 (144) lykkjur á hringprjón nr 3,5. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur í garðaprjóni, *prjónið 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur garðaprjón*, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 5 kantlykkjum í garðaprjóni. Haldið svona áfram í 3 cm. Prjónið nú 1 umferð slétt frá réttu og fækkið um 8 (8) 8 (10) 10 (14) lykkjur jafnt yfir = 80 (88) 96 (106) 118 (130) lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Skiptið yfir á hringprjón nr 4,5. Prjónið slétt fram og til baka með 5 lykkjum garðaprjón í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 34 (35) 36 (37) 38 (39) cm, fellið af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 4 (5) 6 (7) 8 (9) lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 0 (1) 2 (3) 4 (6)  sinnum og 1 lykkju 2 (2) 2 (3) 5 (5) sinnum = 68 (70) 72 (74) 76 (78) lykkjur. Haldið áfram fram og til baka í sléttu prjóni og 1 kantlykkju garðaprjón í hvorir hlið. Þegar stykkið mælist 44 (46) 47 (49) 50 (52) cm, setjið miðju 16 (16) 18 (18) 18 (18) lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af lykkjur í hverri umferð við hálsmál þannig: Fellið af 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkju 1 (1) 1 (1) 2 (2) sinnum = 18 (19) 19 (20) 20 (21) lykkjur eftir fyrir öxl. Haldið áfram í sléttu prjóni og 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið þar til stykkið mælist 20 (21) 22 (23) 24 (25) cm frá þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg.

Fellið af með sléttum lykkjum (passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur). Stykkið mælist alls 54 (56) 58 (60) 62 (64) cm frá öxl og niður. Prjónið hina öxlina alveg eins.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma með lykkjuspori innan við affellingarkantinn. Byrjið undir ermi og hliðarsaum niður í ystu lykkjubogana svo að saumurinn verði flatur – skiljið eftir ca 18 cm fyrir klauf. Endurtakið á hinni hliðinni.

KANTUR Í HÁLSI:
Byrjið frá réttu við annan axlasauminn. Prjónið upp með stuttum hringprjón nr 3,5 ca 100 til 120 lykkjur (meðtaldar 16 (16) 18 (18) 18 (18) lykkjur af þræði) innan við 1 lykkju í kringum allt op fyrir hálsmál (lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4). Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 2½-3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

KANTUR Í KRINGUM HANDVEG:
Byrjið frá réttu við hliðarsaum undir handveg. Prjónið upp með stuttum hringprjón nr 3,5 ca 96 til 120 lykkjur í kringum allan handveginn (lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4). Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 2 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Prjónið hinn kantinn á ermi alveg eins.

Prjónakveðja,
mæðgurnar í Handverkskúnst, www.garn.is

Óska eftir tilnefningum fyrir framúrskarandi árangur í lífrænni ræktun
Fréttir 1. september 2026

Óska eftir tilnefningum fyrir framúrskarandi árangur í lífrænni ræktun

Atvinnuvegaráðuneytið óskar eftir tilnefningum til viðurkenningar fyrir framúrsk...

Gjaldtaka hafin á nýjum hringveg um Hornafjörð
Fréttir 1. september 2026

Gjaldtaka hafin á nýjum hringveg um Hornafjörð

Gjaldtaka á nýjum hringveg um Hornafjörð hófst í dag. Vegurinn var opnaður fyrir...

Auglýst eftir umsækjendum um stuðning til söfnunar ullar
Fréttir 1. september 2026

Auglýst eftir umsækjendum um stuðning til söfnunar ullar

Atvinnuvegaráðuneytið auglýsir eftir umsækjendum um stuðning til söfnunar ullar ...

Gróðurhúsarækt enn öflug
Fréttir 31. ágúst 2026

Gróðurhúsarækt enn öflug

Á fundi bæjarstjórnar Hveragerðisbæjar snemma í vor var samþykkt tillaga um stof...

Aukin losun gróðurhúsalofttegunda vegna framkvæmda
Fréttir 31. ágúst 2026

Aukin losun gróðurhúsalofttegunda vegna framkvæmda

Í tilkynningu frá Landsvirkjun segir að heildarlosun gróðurhúsalofttegunda hafi ...

Yfir 700 þúsund seiði afhent í ágústmánuði
Fréttir 31. ágúst 2026

Yfir 700 þúsund seiði afhent í ágústmánuði

Í ágústmánuði, sem er nú senn á enda, hefur Thor landeldi í Þorlákshöfn afhent u...

Nýr starfshópur um ferjuáætlun
Fréttir 31. ágúst 2026

Nýr starfshópur um ferjuáætlun

Nýr starfshópur um mótun nýrrar ferjuáætlunar hefur hafið störf. Hópnum er ætlað...

Fyrirkomulag rjúpnaveiða 2026
Fréttir 31. ágúst 2026

Fyrirkomulag rjúpnaveiða 2026

Heimilt verður að veiða rjúpu frá og með föstudögum og til og með þriðjudögum fr...