Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 2 ára.
Mikið var um að vera í Landmannaréttum haustið 1989, á myndinni má sjá Þórð Guðnason, bónda í Köldukinn, að verki.
Mikið var um að vera í Landmannaréttum haustið 1989, á myndinni má sjá Þórð Guðnason, bónda í Köldukinn, að verki.
Mynd / Tímarit.is
Menning 8. september 2023

Rjóðar í kinnum á réttarballi

Höfundur: Sigrún Pétursdóttir

Réttir hófust nýverið og fyrir utan alla þá félagslegu velmegun sem þeim fylgja, fylgdu og fylgja enn tilheyrandi dansiböll – jafnvel lengur en elstu menn muna.

Hér áður fyrr var réttarlokum fagnað með skralli í réttunum sjálfum, ungir jafnt sem gamlir staupuðu sig gjarnan, gripið var í nikkuna og slegið upp í dans. Setti fólk þá ekki fyrir sig þó misjafnt útlitið væri á sumum. Segir í dagblaðinu Tímanum, í september 1972, að „Rjóðar i kinnum og með blik i augum svifu ungmeyjarnar um i dansi eftir hljóðfalli nikkunnar og jarmi kindanna, en karlarnir staupuðu sig ataðir skit og ull í bak og fyrir.“

Kemur fram að töluvert hafi liðið frá því að síðast hefði verið haldinn dansleikur í Landsmannarétt – í dag heil 76 ár, en samkomuhús Landsveitar, Brúarlundur, hafi þá tekið við. Var ævinlega fjölmennt á dansleiki Landsveitar og þeir sem vettlingi gátu valdið létu ekki sitt eftir liggja.

Úr minningabroti íslenskrar konu fæddri árið 1894, varðveittu í hinu menningarsögulega gagnasafni Sarpinum, Þjóðminjasafni Íslands, kynnumst við upplifun hennar af Landsréttunum sem voru einar þær stærstu um árabil.

„Það var allrar sveitarinnar skemmtun að fara í Landmannaréttir og hestarnir voru ekki sparaðir við það tækifæri. Sungið var og dansað alla nóttina. Það var stórkostlegt að sjá safnið koma, mörg hundruð þúsund fjár rekið niður um mjóa skoru. Það var eins og foss sem breiddi úr sér þegar það kom niður á réttanesið. Um morguninn var dregið í dilkana sem kallað var en fólkið sem kom einungis til að skemmta sér fór heim um kl.7.

Ýmist í ökkla eða eyra

Minningar er standa að réttum og réttaböllum eru í hvívetna jákvæðar að mestu yfir áratugina enda á árum áður tilefni til að lyfta sér upp, sýna sig og sjá aðra. Lítið hefur frést af óspektum á þessum viðburðum en þó var tiltekið í Dagbók lögreglunnar frá 18. september árið 2005 að: „Einn gisti fangageymslu lögreglu á Blönduósi aðfaranótt sunnudags, en sá hafði að sögn lögreglu verið með leiðindi á réttaballi einn manna. Maðurinn var með óspektir og drykkjulæti. Allir aðrir munu hafa skemmt sér vel.“

Segja má frá skemmtilegri uppákomum, tíu árum síðar á réttarballi Árnesinga þegar Gestur Einarsson nokkur frá Hæli bað kærustunnar sinnar, hennar Rakel Þórarinsdóttur. Kallaði hann hana með sér upp á svið þar sem þau játuðust, en var leikurinn svo endurtekinn daginn eftir. Þá kastaði Gestur sér á hnén fyrir framan sína heittelskuðu í Tungnaréttum og bað hennar aftur, mögulega til að vera nú alveg viss um að hafa fengið já. Sögur fara annars ekki af öðru en að þau séu því harðgift í dag.

Landmannaréttir haustið 1989. Mynd/Tímarit.is

Næstu böll á dagskrá

Nú síðari ár hefur lítið dregið úr skemmtanagleðinni og rómansinum er umlykur réttirnar enda fylla auglýsingar réttarballa hvern krók og kima um þessar mundir. Oftast eru samkomuhús sveitarfélaganna fyllt í stað réttanna sjálfra áður, þó einhverjir hefji þó gleðina þar. Því er ekki að undra að einhverja sé farið að kitla í dansbeinið og rétt að taka það fram – eins og staðan er núna eru nokkur böll í loftinu.

Réttarball í Ásbyrgi

Til dæmis er fyrirhugað réttarball í Ásbyrgi þann 9. september frá klukkan ellefu fram á rauða nótt. Eða til klukkan 03 nánar tiltekið. Í tilkynningu frá Ungmennafélaginu Gretti kemur fram: „Í ár ætlar hljómsveitin Krummafótur að spila fram á nótt. Krummafót þarf vart að kynna en gott að minnast á eitt og annað. Einn þeirra er heimamaður (Gummi okkar allra) en restinni er safnað saman víðs vegar af landinu. Já, þetta verður æði og mikið stuð! Ekki láta þig vanta eins og maður segir svo oft. Má ætla að dansinn duni sem aldrei fyrr og aðgangseyrinn skal borga við dyrnar, krónur 4.500. Rétt er að taka fram að aldurstakmarkið er átján ár, þá ungmenni fædd árið 2005.

Réttarball Uppsveita

Reiðhöllin á Flúðum stendur fyrir réttarballi Uppsveita þetta sama kvöld, 9. september, og leikur hljómsveitin Allt í einu fyrir dansi. Sérstakur gestur verður söngkonan Fríða Hansen og mikið stuð í kortunum. Forsala miða er á Sæsabar, kr. 4.500, en miðaverð við hurð er annars þúsund krónum dýrari, eða 5.500 kr. Stendur gleðin á milli klukkan 23-02 og gildir fæðingarárið 2005 sem viðmið þeirra sem hana vilja sækja. Tekið er fram að ekki sé í boði að koma með áfengar veigar að heiman enda bar á staðnum auk þess sem Pizzavagninn verði á svæðinu.

Réttarball Fljótamanna

Nú, nú, viku síðar, svona fyrir dansþyrsta – laugardagskvöldið 16. september verður hið margrómaða réttarball Fljótamanna haldið í félagsheimilinu Ketilási. Aldurstakmark er, eins og áður, átján ára, þeir heppnu sem fæddir eru árið 2005 og fyrr.

Frá Fljótamönnum kemur tilkynningin: „Danssveit Dósa mun halda uppi fjörinu frá 23:00- 03:00! Það er ekki seinna vænna að fara að rifja upp danstaktana. Það má enginn láta sig vanta í þessa veislu! ATH. Góð tilboð á barnum!

Aðgangseyririnn í þetta skiptið er 4.000 kr. Og miðar seldir við hurð.

Það er því ekki seinna vænna en að bregða undir sig betri fætinum og skunda á réttarball, jafnvel með pelann í vasanum, rós í hnappagatinu og roða í kinnum.

Annað innbrot í svínabú Stjörnugríss
Fréttir 2. september 2026

Annað innbrot í svínabú Stjörnugríss

Annað innbrot átti sér stað í morgun þegar að svínum Stjörnugríss var sleppt út ...

Fjölbreytt verkefni fram undan
Fréttir 2. september 2026

Fjölbreytt verkefni fram undan

Hjá Byggðastofnun er ýmislegt á döfinni með haustinu, en m.a. hefur stjórnin ákv...

Málþing um vinnu, Sturlungu, goðafræði og Gerplu
Fréttir 2. september 2026

Málþing um vinnu, Sturlungu, goðafræði og Gerplu

Málþing var haldið í Kakalaskála laugardaginn 29. ágúst klukkan 14 þar sem fjóri...

Bókmenntahátíðin Haustgildi næstu helgi
Fréttir 2. september 2026

Bókmenntahátíðin Haustgildi næstu helgi

Haustgildi, bókmenntahátíð Bókabæjanna austanfjalls, verður haldin dagana 5. og ...

Halla Sif meðal 100 kvenhetja
Fréttir 2. september 2026

Halla Sif meðal 100 kvenhetja

Halla Sif Svansdóttir Hölludóttir, garðyrkjubóndi og eigandi Sólskins grænmetis,...

Óska eftir tilnefningum fyrir framúrskarandi árangur í lífrænni ræktun
Fréttir 1. september 2026

Óska eftir tilnefningum fyrir framúrskarandi árangur í lífrænni ræktun

Atvinnuvegaráðuneytið óskar eftir tilnefningum til viðurkenningar fyrir framúrsk...

Gjaldtaka hafin á nýjum hringveg um Hornafjörð
Fréttir 1. september 2026

Gjaldtaka hafin á nýjum hringveg um Hornafjörð

Gjaldtaka á nýjum hringveg um Hornafjörð hófst í dag. Vegurinn var opnaður fyrir...

Auglýst eftir umsækjendum um stuðning til söfnunar ullar
Fréttir 1. september 2026

Auglýst eftir umsækjendum um stuðning til söfnunar ullar

Atvinnuvegaráðuneytið auglýsir eftir umsækjendum um stuðning til söfnunar ullar ...