Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 9 mánaða.
Jón Guðmundsson stendur fyrir sýningu á Eiðistorgi á munum sem hann rennir úr tré. Rennismíðin heillar hann þar sem átökin eru mikil og hægt er að ná miklum afköstum. Sýningin stendur til 15. febrúar.
Jón Guðmundsson stendur fyrir sýningu á Eiðistorgi á munum sem hann rennir úr tré. Rennismíðin heillar hann þar sem átökin eru mikil og hægt er að ná miklum afköstum. Sýningin stendur til 15. febrúar.
Mynd / ál
Viðtal 13. febrúar 2026

Rennir aðeins úr íslensku timbri

Höfundur: Ástvaldur Lárusson

Jón Guðmundsson trérennismiður opnaði fyrir skemmstu sýningu á verkum sínum á Eiðistorgi á Seltjarnarnesi. Þar gefur að líta skálar, bikara og fleiri muni sem hann hefur rennt úr íslensku timbri.

„Ég er 72 ára, þannig að núna eiga smíðarnar hug minn allan,“ segir Jón í samtali. Hann starfaði áður sem plöntulífeðlisfræðingur hjá RALA, Landbúnaðarháskólanum og Matvælastofnun. Hann byrjaði að renna úr viði snemma á þrítugsaldrinum og ákvað strax í upphafi að notast eingöngu við innlendan efnivið. „Ég ákvað að ég skyldi kynnast íslenskum við almennilega og verða sérfræðingur í innlendum trjátegundum og miðla því til annarra,“ segir Jón. Til að byrja með hafi framboðið á góðu timbri verið minna en það er í dag.

Reynir í uppáhaldi

„Ég held að reyniviðurinn sé uppáhaldið hjá mér, en hann er glerharður og það vantar ekki bein tré sem er hægt að nota í borðvið. Þá er eiginlega engin önnur þjóð sem notar hann að neinu viti – og við reyndar ekki heldur. Ef eitthvert tré ætti að verða einkenni íslenskrar handavinnu, þá er það reyniviðurinn.“ Jón segir Finna nota mikið birki, Danir beyki og Svíar furu í handverk og húsgagnasmíði.

Jón heldur jafnframt mikið upp á selju, sem er víðitegund. „Hún er jöfn og þétt og gott að renna úr henni. Svo er ég tiltölulega nýfarinn að nota öspina. Hún er erfið þar sem hún trosnar mikið þegar maður er að vinna hana og því nauðsynlegt að vera með mjög beitt verkfæri,“ segir Jón. Aðspurður segist hann ekki forðast neina viðartegund.

Nánast allt nytjahlutir

Rennismíðin heillar Jón þar sem hægt er að ná miklum afköstum, samanborið við annað handverk úr timbri. „Þetta eru miklu meiri átök og allt miklu þyngra. Ef maður er að tálga er allt léttara og fínna. Ég leitast eftir því að renna stóra muni, ekki smáhluti eins og penna, skaft á ausur og slíkt.

Það eru ákveðin takmörk á því hvað er hægt að gera í rennibekk. Ég geri allt sem er hringlaga, eins og skálar, pílára í handrið, súlur og slíkt. Eins er ég mjög íhaldssamur með þá olíu sem ég ber á viðinn, en ég nota eingöngu kaldpressaða línolíu og loka yfirborðinu með bývaxi.“

Nánast allir hlutirnir eru nytjahlutir, en Jón segir flestar skálarnar henta til að bera fram matvæli, fyrir utan nokkrar sem séu hugsaðar helst til skrauts. Þá hefur Jón rennt muni sem hann kallar hnyklatrog sem eru til að geyma prjónadót. Enn fremur hefur hann smíðað skip sem hann telur að gætu til að mynda nýst til að bera fram þorramat eða annað slíkt.

Plantar trjám sem henta í handverk

Jón byrjaði með sína eigin skógrækt á Rangárvöllum árið 1990. „Árið 2005 gat ég byrjað að nýta viðinn. Fyrst notaði ég elrið, en þá voru það orðin þriggja til fjögurra metra há tré. Svo hefur tegundunum fjölgað koll af kolli,“ segir Jón. Hann hefur markvisst plantað trjám sem henta í handverk.

Jón geymir trén oft á jörðinni eftir fellingu til þess að fá svepp í þau. Með því kemur litur í viðinn sem getur skapað áhugaverða áferð. Þegar ásættanlegum sveppavexti hefur verið náð tekur Jón trén til þurrkunar. „Þetta er rosalega skemmtilegt í birkinu, en það er með vatnsæðar og sveppurinn æðir eftir þeim. Þá myndar sveppurinn sterka flekki.“ Jón segist selja mest af sínu handverki á sýningum, en hann bendir þeim sem missa af sýningunni, sem lýkur 15. febrúar, á að hafa samband við sig í gegnum síma eða Facebook-síðuna Gallerý Tré.

Reiðvegir fyrstu samgönguinnviðirnir
Fréttir 27. nóvember 2026

Reiðvegir fyrstu samgönguinnviðirnir

Út er komin í rafrænni útgáfu bókin Reiðvegir Íslands eftir Halldór H. Halldórss...

Eini háskólinn sem fær lægri krónutölu til reksturs
Fréttir 26. nóvember 2026

Eini háskólinn sem fær lægri krónutölu til reksturs

Landbúnaðarháskóli Íslands (LbhÍ) fær lægra fjármagn frá ríkinu til reksturs en ...

Túrbó-hani, hundrað svín
Fréttir 26. nóvember 2026

Túrbó-hani, hundrað svín

Í kjölfar umfjöllunar um íslenska skinku í síðasta blaði skal sjónum beint að be...

Bætt fjarskiptaöryggi á fimm stöðum
Fréttir 25. nóvember 2026

Bætt fjarskiptaöryggi á fimm stöðum

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra undirritaði nýlega tvo samninga um uppbyggin...

Hvetur alla til að skrá geitur
Fréttir 25. nóvember 2026

Hvetur alla til að skrá geitur

Skráning í skýrsluhaldsforrit geitfjárræktarinnar, Heiðrúnu, er gjaldfrjáls. Hák...

Vilhjálmur Svanberg átti bestu myndina af mýralífi
Fréttir 25. nóvember 2026

Vilhjálmur Svanberg átti bestu myndina af mýralífi

Vinningshafar í Myndasam- keppni Mýralífs árið 2026 voru Vilhjálmur Svanberg Arn...

Íbúum fjölgað um 83 prósent á tíu árum
Fréttir 24. nóvember 2026

Íbúum fjölgað um 83 prósent á tíu árum

Íbúar Hörgársveitar eru orðnir fleiri en þúsund í fyrsta sinn. Sveitarfélagið te...

Helsta verkefnið að rækta félagsauðinn
Fréttir 24. nóvember 2026

Helsta verkefnið að rækta félagsauðinn

Sverrir Bollason var kjörinn nýr formaður Skógræktarfélags Íslands (SÍ) á dögunu...