Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 4 ára.
Stjórn og framkvæmdastjóri LSB. F.v.: Erna Bjarnadóttir, Guðrún Lárusdóttir varaformaður, Ólafur K. Ólafs framkvæmdastjóri, Guðbjörg Jónsdóttir, Skúli Bjarnason formaður stjórnar og Örn Bergsson.
Stjórn og framkvæmdastjóri LSB. F.v.: Erna Bjarnadóttir, Guðrún Lárusdóttir varaformaður, Ólafur K. Ólafs framkvæmdastjóri, Guðbjörg Jónsdóttir, Skúli Bjarnason formaður stjórnar og Örn Bergsson.
Mynd / Halldóra Ólafs
Lesendarýni 20. júní 2022

Raunávöxtun 9,4% 2021

Höfundur: Ólafur K. Ólafs., framkvæmdarstjóri Lífeyrissjóðs bænda

Á ársfundi Lífeyrissjóðs bænda 3. júní 2022 var lögð fram árs­ skýrsla sjóðsins fyrir liðið ár og ársreikningur sjóðsins kynntur.

Fram kom í skýrslu stjórnar að heimsfaraldurinn Covid-19 hefur um tveggja ára skeið haft veruleg samfélags- og efnahagsleg áhrif á heimsvísu.

Áhrif heimsfaraldursins á rekstur, efnahag og sjóðstreymi Lífeyrissjóðs bænda á árinu 2021 reyndust hins vegar óveruleg. Þrátt fyrir neikvæð áhrif á efnahags- og markaðsaðstæður, hefur ávöxtun Lífeyrissjóðs bænda undanfarin tvö ár verið ein sú hæsta í sögu sjóðsins.

Stöðugur vöxtur á hreinni eign til greiðslu lífeyris

Hrein eign til greiðslu lífeyris nam 45,1 milljarði króna í árslok 2021, hækkaði um 4,7 milljarða króna frá fyrra ári eða um 11,7%. Hreinar fjárfestingartekjur námu sex milljörðum króna á móti 4,2 milljörðum króna árið áður. Rekstrarkostnaður lífeyrissjóðsins nam 139 m.kr. og er það nær óbreyttur kostnaður frá fyrra ári.

Hrein nafnávöxtun, þ.e. ávöxtun þegar rekstrarkostnaður hefur verið dreginn frá hreinum fjárfestingartekjum, var 14,7% sem samsvarar 9,4% raunávöxtun. Sambærilegar tölur fyrra árs voru 11,2% og 8,3%. Hrein árleg raunávöxtun síðustu fimm ára var 8,0% og síðustu 10 ára 5,9%

Lífeyrisgreiðslur námu 1.925 milljónum króna

Á árinu 2021 voru virkir sjóðfélagar 1.989, þ.e. þeir sem að jafnaði greiða iðgjöld með reglubundnum hætti í hverjum mánuði. Samanlagðar iðgjaldagreiðslur námu 790 m.kr. á móti 837 m.kr. árið 2020, lækkuðu um 5,6%. Fjöldi þeirra sem eiga réttindi í sjóðnum var 10.829 í lok árs 2021 á móti 10.945 árið áður.

Á árinu fengu 4.494 lífeyrisþegar greiddan lífeyri. Meðaltal fjölda lífeyrisþega, sem fékk greiddan lífeyri á árinu, var 4.039 á móti 4.005 árið áður. Heildarlífeyrisgreiðslur námu 1.925 m.kr. á árinu 2021 á móti 1.804 m.kr. árið áður, sem er 6,7% hækkun frá fyrra ári.

Auknar skuldbindingar með nýju reiknilíkani

Fjármála- og efnahagsráðuneytið tilkynnti í desember 2021 að lífeyrissjóðum bæri að taka mið af nýju reiknilíkani FÍT (Félags íslenskra tryggingastærðfræðinga) um lækkun aldursbundinnar dánartíðni þegar horft er til framtíðar, annaðhvort við uppgjör í lok árs 2021 eða 2022.

Stjórn Lífeyrissjóðs bænda ákvað að taka strax upp nýja reiknilíkanið miðað við uppgjör tryggingafræðilegrar stöðu í lok árs 2021.

Við mat á lífeyrisskuldbindingum verður því horft til væntrar þróunar lífaldurs í framtíðinni í stað þess að miða við reynslu liðinna ára. Umtalsverð hækkun verður á mati skuldbindinga hjá lífeyrissjóðum við notkun á nýju reiknilíkani fyrir lífslíkur þar sem gert er ráð fyrir lengri lífaldri frá því sem verið hefði með fyrri forsendum.

Tryggingafræðileg staða batnar

Metin hækkun áfallinna skuldbindinga hjá lífeyrissjóðum við upptöku nýs reiknilíkans er áætluð allt að 10% þar sem gert er ráð fyrir hærri lífaldri til framtíðar.

Mjög góð ávöxtun Lífeyrissjóðs bænda á árinu 2021 veldur því að þrátt fyrir forsendubreytingarnar með nýjum reiknigrunni, batnar tryggingafræðileg staða sjóðsins lítillega frá fyrra ári.

Heildarskuldbinding sjóðsins reiknast 3,2% umfram eignir og áfallin staða er jákvæð um 0,8% af skuldbindingum. Að óbreyttum forsendum hefði heildarstaða Lífeyrissjóðs bænda verið metin jákvæð um 3,4% af skuldbindingum og áfallin staða jákvæð um 7%.

Á ársfundinum voru kynntar mótvægisaðgerðir vegna nýja reiknilíkansins. Áunninn réttur verður óbreyttur.

Frjáls aðild að Lífeyrissjóði bænda

Lífeyrissjóður bænda er starfsgreinasjóður bænda.

Með niðurfellingu sérlaga um Lífeyrissjóð bænda 2018, geta allir launþegar gerst sjóðfélagar í sjóðnum og því er öllum launagreiðendum heimilt að greiða lífeyrisiðgjöld fyrir starfsmenn sína til sjóðsins.


Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum
Fréttir 16. október 2026

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum

Skæð fuglainflúensa hefur greinst í sýnum sem tekin voru úr villtum fuglum á Nor...

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir
Fréttir 16. október 2026

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir

Undanfarin fimm ár hefur Bjarki Þór Sólmundsson, matreiðslumeistari og myndlista...

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni
Fréttir 16. október 2026

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni

Kynslóðaskipti hafa orðið á garðyrkjustöðinni Hveratúni í Laugarási. Skúli Magnú...

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða
Fréttir 15. október 2026

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða

„Hagvöxtur trompar allt annað í áherslum stjórnvalda. En er hann besti mælikvarð...

Fékk nafnið Vafi
Fréttir 15. október 2026

Fékk nafnið Vafi

Eins og allir vita þá kasta hryssur á vorin og eitthvað fram eftir sumri en að þ...

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn
Fréttir 15. október 2026

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn

Í reiðhæfni, öryggi og hugrekki fær íslenski hesturinn hæstu einkunn allra kynja...

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra
Fréttir 14. október 2026

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra

Það er mikið um að vera hjá Reykjagarði á Hellu því þar er verið að byggja fjögu...

Kornskemman hefur tæplega undan
Fréttir 14. október 2026

Kornskemman hefur tæplega undan

Kornskemman, félag bænda í Eyjafirði, auglýsti móttöku á korni öðru sinni. „Við ...