Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 10 mánaða.
F.v. Bergur Jónsson, Elin Holst og Olil Amble
F.v. Bergur Jónsson, Elin Holst og Olil Amble
Fréttir 28. nóvember 2025

Ræktunarbú ársins 2025

Höfundur: Þorvaldur Kristjánsson

Eins og mörgum er í fersku minni tilnefndi fagráð í hrossarækt alls 12 ræktunarbú til sérstakrar viðurkenningar fyrir framúrskarandi ræktunarárangur á árinu 2025.

Heiðursviðurkenninguna Ræktunarbú ársins 2025 hlutu Bergur Jónsson og Olil Amble á ráðstefnunni Hrossarækt 2025 þann 8. nóvember síðastliðinn en þau kenna hross sín við Ketilsstaði og Syðri-Gegnishóla.

Mikill fjöldi búa náði afgerandi góðum árangri á sýningaárinu 2025. Alls voru sýnd hross frá 493 upprunum og 56 bú komu til álita til Ræktunarbús ársins í ár. Þetta sýnir vel þá miklu breidd sem er í íslenskri hrossarækt þessa dagana en þeim ræktendum sem sýna hross í kynbótadómi hefur farið fjölgandi síðastliðin ár og fleiri og fleiri að sýna mikinn metnað í sinni ræktun.

Til að afmarka val ræktunarbúa eru fyrst tilgreind öll hrossaræktarbú sem sýnt hafa fjögur eða fleiri hross í fullnaðardómi á árinu. Að auki verða minnst tvö að hafa náð aðaleinkunn 8,00 eða hærra. Þá eru einkunnir leiðréttar eftir aldri og kyni líkt og gert er við kynbótamatsútreikninga. Þetta gerir allar einkunnir samanburðarhæfar áður en búunum er svo raðað upp eftir leiðréttum einkunnum og fjölda sýndra hrossa. Búin sem komast í pottinn verða að ná fjórum hrossum að lágmarki með 8,00 í aðaleinkunn eftir leiðréttingu sem er þá önnur sía á gögnin. Eingöngu er horft til hrossa sem ná 8,00 í aðaleinkunn eftir leiðréttingu og miðast fjöldi sýndra hrossa frá hverju búi við þau hross. Þá reiknast afkvæmaverðlaunahross (stóðhestar og hryssur) til stiga fyrir sína ræktendur samkvæmt föstum reglum þar um.

Í meðfylgjandi töflu eru öll búin, 56 að tölu, sem uppfylltu fyrrnefndar lágmarkskröfur árið 2025. Dálkarnir sýna meðaltal leiðréttrar aðaleinkunnar og fjölda sýndra hrossa sem ná 8,00 í aðaleinkunn eftir leiðréttingu (en afkvæmahross bæta við fjöldann). Þá er sérstaklega tilgreint í síðasta dálknum ef afkvæmahross leggja til stiga og auka á fjölda hrossa fyrir búið á árinu. Efst í töflunni eru þau tólf bú sem tilnefnd voru til viðurkenningarinnar í ár í þeim sætum sem útreiknuð stig raðaði þeim í en þar fyrir neðan eru búin sem komu auk þeirra til greina í ár í stafrófsröð.

Skylt efni: ræktunarbú ársins

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum
Fréttir 16. október 2026

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum

Skæð fuglainflúensa hefur greinst í sýnum sem tekin voru úr villtum fuglum á Nor...

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir
Fréttir 16. október 2026

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir

Undanfarin fimm ár hefur Bjarki Þór Sólmundsson, matreiðslumeistari og myndlista...

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni
Fréttir 16. október 2026

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni

Kynslóðaskipti hafa orðið á garðyrkjustöðinni Hveratúni í Laugarási. Skúli Magnú...

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða
Fréttir 15. október 2026

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða

„Hagvöxtur trompar allt annað í áherslum stjórnvalda. En er hann besti mælikvarð...

Fékk nafnið Vafi
Fréttir 15. október 2026

Fékk nafnið Vafi

Eins og allir vita þá kasta hryssur á vorin og eitthvað fram eftir sumri en að þ...

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn
Fréttir 15. október 2026

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn

Í reiðhæfni, öryggi og hugrekki fær íslenski hesturinn hæstu einkunn allra kynja...

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra
Fréttir 14. október 2026

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra

Það er mikið um að vera hjá Reykjagarði á Hellu því þar er verið að byggja fjögu...

Kornskemman hefur tæplega undan
Fréttir 14. október 2026

Kornskemman hefur tæplega undan

Kornskemman, félag bænda í Eyjafirði, auglýsti móttöku á korni öðru sinni. „Við ...