Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 1 árs.
Skaginn frá Skipaskaga hlaut heiðursverðlaun fyrir afkvæmi á Landsmótinu í sumar
Skaginn frá Skipaskaga hlaut heiðursverðlaun fyrir afkvæmi á Landsmótinu í sumar
Mynd / Jón Björnsson
Á faglegum nótum 30. október 2024

Ræktunarbú ársins 2024

Höfundur: Þorvaldur Kristjánsson, ráðunautur í hrossarækt.

Eins og mörgum er í fersku minni tilnefndi Fagráð í hrossarækt alls 12 ræktunarbú til sérstakrar viðurkenningar fyrir framúrskarandi ræktunarárangur á árinu 2024.

Þorvaldur Kristjánsson

Heiðursviðurkenninguna ræktunarbú ársins 2024 hlutu Jón Árnason, Sigurveig Stefánsdóttir og fjölskylda á uppskeruhátíð hestamanna þann 15. október síðastliðinn en þau kenna hross sín við Skipaskaga.

Mikill fjöldi búa náði afgerandi góðum árangri á sýningaárinu 2024. Til að afmarka val ræktunarbúa eru fyrst tilgreind öll hrossaræktarbú sem sýnt hafa fjögur eða fleiri hross í fullnaðardómi á árinu. Að auki verða minnst tvö að hafa náð aðaleinkunn 8,00 eða hærra. Þá eru einkunnir leiðréttar eftir aldri og kyni líkt og gert er við kynbótamatsútreikninga. Þetta gerir allar einkunnir samanburðarhæfar áður en búunum er svo raðað upp eftir leiðréttum einkunnum og fjölda sýndra hrossa. Búin sem komast í pottinn verða að ná fjórum hrossum að lágmarki með 8,00 í aðaleinkunn eftir leiðréttingu sem er þá önnur sía á gögnin. Eingöngu er horft til hrossa sem ná 8,00 í aðaleinkunn eftir leiðréttingu og miðast fjöldi sýndra hrossa frá hverju búi við þau hross. Þá reiknast afkvæmaverðlaunahross (stóðhestar og hryssur) til stiga fyrir sína ræktendur samkvæmt föstum reglum þar um.

Í meðfylgjandi töflu eru öll búin, 57 að tölu, sem uppfylltu fyrrnefndar lágmarkskröfur árið 2024. Dálkarnir sýna meðaltal leiðréttrar aðaleinkunnar og fjölda sýndra hrossa sem ná 8,00 í aðaleinkunn eftir leiðréttingu (en afkvæmahross bæta við fjöldann). Þá er sérstaklega tilgreint í síðasta dálknum ef afkvæmahross leggja til stiga og auka á fjölda hrossa fyrir búið á árinu. Efst í töflunni eru þau tólf bú sem tilnefnd voru til viðurkenningarinnar í ár í þeim sætum sem útreiknuð stig raðaði þeim í en þar fyrir neðan eru búin sem komu auk þeirra til greina í ár í stafrófsröð.

Annað innbrot í svínabú Stjörnugríss
Fréttir 2. september 2026

Annað innbrot í svínabú Stjörnugríss

Annað innbrot átti sér stað í morgun þegar að svínum Stjörnugríss var sleppt út ...

Fjölbreytt verkefni fram undan
Fréttir 2. september 2026

Fjölbreytt verkefni fram undan

Hjá Byggðastofnun er ýmislegt á döfinni með haustinu, en m.a. hefur stjórnin ákv...

Málþing um vinnu, Sturlungu, goðafræði og Gerplu
Fréttir 2. september 2026

Málþing um vinnu, Sturlungu, goðafræði og Gerplu

Málþing var haldið í Kakalaskála laugardaginn 29. ágúst klukkan 14 þar sem fjóri...

Bókmenntahátíðin Haustgildi næstu helgi
Fréttir 2. september 2026

Bókmenntahátíðin Haustgildi næstu helgi

Haustgildi, bókmenntahátíð Bókabæjanna austanfjalls, verður haldin dagana 5. og ...

Halla Sif meðal 100 kvenhetja
Fréttir 2. september 2026

Halla Sif meðal 100 kvenhetja

Halla Sif Svansdóttir Hölludóttir, garðyrkjubóndi og eigandi Sólskins grænmetis,...

Óska eftir tilnefningum fyrir framúrskarandi árangur í lífrænni ræktun
Fréttir 1. september 2026

Óska eftir tilnefningum fyrir framúrskarandi árangur í lífrænni ræktun

Atvinnuvegaráðuneytið óskar eftir tilnefningum til viðurkenningar fyrir framúrsk...

Gjaldtaka hafin á nýjum hringveg um Hornafjörð
Fréttir 1. september 2026

Gjaldtaka hafin á nýjum hringveg um Hornafjörð

Gjaldtaka á nýjum hringveg um Hornafjörð hófst í dag. Vegurinn var opnaður fyrir...

Auglýst eftir umsækjendum um stuðning til söfnunar ullar
Fréttir 1. september 2026

Auglýst eftir umsækjendum um stuðning til söfnunar ullar

Atvinnuvegaráðuneytið auglýsir eftir umsækjendum um stuðning til söfnunar ullar ...