Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 5 mánaða.
Ráðherra mætti hlusta betur
Leiðari 29. maí 2026

Ráðherra mætti hlusta betur

Höfundur: Þröstur Helgason

Það skýtur skökku við að aldrei hafi verið meiri innflutningur á kartöflum en frá ágúst á síðasta ári til febrúar á þessu. Þetta gerist nefnilega í kjölfarið á mesta góðviðrissumri sem sögur fara af hér á landi 2025 og einstaklega góðri uppskeru á kartöflum. Í fréttaskýringu í blaðinu í dag kemur fram að 335 tonn af kartöflum hafi verið flutt inn þessa mánuði en á sama tímabili í fyrra hafi innflutningurinn numið 313 tonnum og árið 2023-2024 217 tonnum.

Vegna góðrar uppskeru í fyrra er enn til mikið af kartöflum í landinu og raunar liggur mikið magn óseldra íslenskra kartaflna undir skemmdum í geymslum kartöflubænda nú í byrjun sumars, eins og fram kom í grein Jóns Helga Helgasonar í síðasta blaði sem hélt því raunar fram að héldi sama þróun áfram myndi íslensk kartöflurækt leggjast af. Bændur segja enn fremur að þeir fáu og stóru birgjar sem stýri þessum markaði hafi ekki sýnt áhuga á að kaupa meira af þeim.

Innflutningur á kartöflum ber nú 60 króna magntoll á hvert kíló. Sú upphæð hefur staðið óbreytt frá árinu 2002 og er fyrir löngu hætt að bíta eins og innflutningstölurnar sýna. Stjórnvöld hafa ekki sýnt neinn áhuga á því að láta þessa upphæð fylgja verðlagsþróun.

Að auki var veitt undanþága fyrir innflutning á tollfrjálsum kartöflum í júnímánuði. Sú undanþága var lögfest á grunni samkomulags á milli Bændasamtaka Íslands og Félags atvinnurekenda árið 2021. Undanþágan var hugsuð sem tímabundinn „tollgluggi“ sem næði yfir ýmislegt annað grænmeti þegar skortur væri á innlendri framleiðslu eins og raunin var um kartöflur eftir sumarið 2020.

Í fréttaskýringunni er leitað svara hjá atvinnuvegaráðuneytinu við því hvort ráðherra hafi hug á því að grípa inn í þessi mál en í svarinu segir meðal annars „að þar sem allar ákvarðanir um breytingu á tollum þurfi að fara í gegnum Alþingi hafi atvinnuvegaráðherra ekki heimildir til að grípa inn í mál af þessum toga“. Og enn fremur segir þar: „Núgildandi fyrirkomulag um tímabil tollfrjáls innflutnings á grænmeti var lögfest með lögum 133/2021 og hefur síðan verið framlengt óbreytt árlega en það byggði á samkomulagi Bændasamtaka Íslands og Félags atvinnurekenda. Það gildir til ársloka 2026 og kemur án efa til skoðunar þingsins fyrir lok þessa árs.“

Axel Sæland, formaður garðyrkjudeildar Bændasamtaka Íslands, bendir hins vegar á það í fréttaskýringunni að hið rétta sé að lagasetningin byggði á samkomulagi við Félag atvinnurekenda um að aflétta tollum af innflutningi í einn mánuð vegna slæmrar birgðastöðu. „En eftir það höfum við sett okkur upp á móti þessu. Þetta er bráðabirgðaákvæði sem er endurskoðað á hverju ári og stjórnvöld hafa ekki sýnt því neinn áhuga á að fella þetta út aftur, sama hvernig staðan er á markaði,“ segir Axel.

Þess má geta að framkvæmdastjóri Bændasamtaka Íslands benti einmitt á þessa góðu birgðastöðu hjá kartöflubændum hér í blaðinu í desember á síðasta ári þegar umrætt bráðabirgðaákvæði í búvörulögunum var til meðferðar í þinginu. Ekki var tekið mark á ábendingunni og undanþágan var framlengd með þeim afleiðingum fyrir íslenska kartöflubændur sem hér hafa verið gerðar að umræðuefni.

Íslensk stjórnvöld þurfa að vanda sig meira. Þau þurfa að hlusta betur. Ef þau vilja ekki hlusta á bændur þá þurfa þau að útskýra fyrir þeim og neytendum hvers vegna þeirra hagsmunum sé betur borgið með því að flytja inn í landið æ meira af landbúnaðarafurðum. Það er eiginlega lágmarkskrafa að frá ráðherra berist ekki útúrsnúningar og undanbrögð þegar farið er fram á skýr svör, stefnu og aðgerðir.  

Þröstur Helgason

Eini háskólinn sem fær lægri krónutölu til reksturs
Fréttir 26. nóvember 2026

Eini háskólinn sem fær lægri krónutölu til reksturs

Landbúnaðarháskóli Íslands (LbhÍ) fær lægra fjármagn frá ríkinu til reksturs en ...

Túrbó-hani, hundrað svín
Fréttir 26. nóvember 2026

Túrbó-hani, hundrað svín

Í kjölfar umfjöllunar um íslenska skinku í síðasta blaði skal sjónum beint að be...

Bætt fjarskiptaöryggi á fimm stöðum
Fréttir 25. nóvember 2026

Bætt fjarskiptaöryggi á fimm stöðum

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra undirritaði nýlega tvo samninga um uppbyggin...

Hvetur alla til að skrá geitur
Fréttir 25. nóvember 2026

Hvetur alla til að skrá geitur

Skráning í skýrsluhaldsforrit geitfjárræktarinnar, Heiðrúnu, er gjaldfrjáls. Hák...

Vilhjálmur Svanberg átti bestu myndina af mýralífi
Fréttir 25. nóvember 2026

Vilhjálmur Svanberg átti bestu myndina af mýralífi

Vinningshafar í Myndasam- keppni Mýralífs árið 2026 voru Vilhjálmur Svanberg Arn...

Íbúum fjölgað um 83 prósent á tíu árum
Fréttir 24. nóvember 2026

Íbúum fjölgað um 83 prósent á tíu árum

Íbúar Hörgársveitar eru orðnir fleiri en þúsund í fyrsta sinn. Sveitarfélagið te...

Helsta verkefnið að rækta félagsauðinn
Fréttir 24. nóvember 2026

Helsta verkefnið að rækta félagsauðinn

Sverrir Bollason var kjörinn nýr formaður Skógræktarfélags Íslands (SÍ) á dögunu...

27 milljónir til verkefna á landsbyggðinni
Fréttir 24. nóvember 2026

27 milljónir til verkefna á landsbyggðinni

Innviðaráðuneytið úthlutaði 27 milljónum króna til 14 verkefna sem snúa að því a...

https://bestun.airserve.net/banner_bundles/de3e87e0d8dde67f98882b3ac12f8b2f