Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 6 ára.
Prjónaðir sokkar
Hannyrðahornið 14. ágúst 2020

Prjónaðir sokkar

Prjónaðir sokkar úr DROPS Fabel. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með norrænu mynstri.  
 
Stærðir: 35/37 (38/40) 41/43
Lengd fótar: ca 22 (24) 27 cm. 
Hæð á stroffi niður að hæl: ca 17 (18) 19 cm.
 
Garn: Drops Fabel (fæst í Handverkskúnst)
  - Yfir hafið nr nr 604: 50 (50) 50 g
  - Rjómahvítur nr 100: 50 (50) 50 g
  - Gráblár nr 113: 50 (50) 50 g 
  - Blár nr 107: 50 (50) 50 g
  - Eplagrænn nr 112: 50 (50) 50 g
 
Prjónfesta: 26 lykkjur á breidd í sléttu prjóni og norrænu mynstri = 10 cm.
Prjónar: Sokkaprjónar nr 2,5.
 
Úrtaka / útaukning (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð sem fækka á/fjölga eigi út lykkjum (t.d. 72 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 8) = 9.
 
Í þessu dæmi er lykkjum fækkað með því að prjóna 8. og 9. hverja lykkju slétt saman.
 
Ef auka á út þá er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir 9. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat.
 
Hælúrtaka
 
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið slétt þar til 7 (8) 8 lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem prjónuð var slétt, snúið stykkinu.
 
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið þar til 7 (8) 8 lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana brugðna, 1 lykkja brugðin, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir brugðnu lykkjuna, snúið stykkinu.
 
UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið slétt þar til 6 (7) 7 lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða eina og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem prjónuð var slétt, snúið stykkinu.
 
UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið brugðið þar til 6 (7) 7 lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana brugðna, 1 lykkja brugðin, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir brugðnu lykkjuna, snúið stykkinu.
 
Haldið áfram með úrtöku alveg eins með því að það fækki um 1 lykkju áður en 1 lykkju er steypt yfir þar til 14 (14) 16 lykkjur eru eftir á prjóni.
 
SOKKUR: Fitjið upp 72 (72) 80 lykkjur á sokkaprjóna 2,5 með bláum. Prjónið 1 umferð slétt. Skiptið yfir í grábláan og prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 8 (4) 4 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 64 (68) 76 lykkjur.
Prjónið A.1 hringinn (= 16 (17) 19 mynstureiningar með 4 lykkjum). Í umferð merktri með ör-1 í A.1, er lykkjufjöldinn jafnaður í 66 (66) 72 lykkjur. Haldið áfram með A.1 (nú er pláss fyrir 11 (11) 12 mynstureiningar með 6 lykkjum).
 
Í umferð merktri með ör-2, fækkið um 6 (6) 4 lykkjur jafnt yfir = 60 (60) 68 lykkjur. Haldið áfram með A.1 (nú er pláss fyrir 15 (15) 17 mynstureiningar með 4 lykkjum). Í umferð merktri með ör-3, fækkið um 6 (2) 6 lykkjur jafnt yfir = 54 (58) 62 lykkjur eftir. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, prjónið slétt hringinn með lit Yfir hafið þar til sokkurinn mælist ca 17 (18) 19 cm frá uppfitjunarkanti. 
 
Prjónið nú hæl eins og útskýrt er að neðan.
 
Hæll: Haldið eftir fyrstu 13 (14) 15 lykkjum á prjóni fyrir hæl, setjið næstu 28 (30) 32 lykkjur á 1 þráð án þess að prjóna lykkjurnar (= mitt á fæti) og haldið eftir síðustu 13 (14) 15 lykkjum á prjóni fyrir hæl = 26 (28) 30 lykkjur á prjóni fyrir hæl. Prjónið slétt prjón fram og til baka yfir hællykkjur með lit Yfir hafið í 5 (5½) 6 cm. Setjið eitt prjónamerki mitt í síðustu umferð, prjónamerkið er notað aðeins síðar til að mæla lengd á fóti frá.
 
Prjónið HÆLÚRTAKA með Yfir hafið – sjá útskýringu að ofan. Eftir hælúrtöku er næsta umferð prjónuð þannig (með Yfir hafið): Prjónið sléttar lykkjur yfir 14 (14) 16 hællykkjur, prjónið upp 13 (14) 16 lykkjur meðfram hlið á hæl, prjónið sléttar lykkjur yfir 28 (30) 32 lykkjur af þræði á fæti og prjónið upp 13 (14) 16 lykkjur meðfram hinni hlið á hæl = 68 (72) 80 lykkjur í umferð. Prjónið áfram að mitt undir hæl, umferðin byrjar nú hér. Setjið eitt prjónamerki hvoru megin við 28 (30) 32 lykkjur mitt ofan á fæti. Prjónið slétt hringinn með Yfir hafið og fækkið lykkjum hvoru megin við 28 (30) 32 lykkjur á fæti þannig: Prjónið 2 síðustu lykkjurnar á undan fyrsta prjónamerki á fæti slétt saman og prjónið 2 lykkjur á eftir síðasta prjónamerki á fæti snúnar slétt saman (= 2 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 8 (8) 10 sinnum = 52 (56) 60 lykkjur.
 
Prjónið áfram þar til stykkið mælist 18 (19) 21 cm frá prjónamerki á hæl (nú eru eftir ca 4 (5) 6 cm til loka, mátið e.t.v. sokkinn og prjónið að óskaðri lengd).
 
Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á sokk þannig að það verða 26 (28) 30 lykkjur bæði ofan á og undir fæti. Prjónið slétt hringinn með lit Yfir hafið og fellið af fyrir tá hvoru megin við bæði prjónamerkin þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), prjónið 2 lykkjur snúnar slétt saman.
 
Endurtakið úrtöku við hitt prjónamerkið (= 4 lykkjur færri í umferð).
 
Fækkið lykkjum svona hvoru megin við bæði prjónamerkin í annarri hverri umferð alls 4 (7) 9 sinnum og síðan í hverri umferð alls 6 (3) 2 sinnum = 12 (16) 16 lykkjur eftir. Í næstu umferð eru allar lykkjurnar prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 6 (8) 8 lykkjur eftir. Klippið frá, dragið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. Sokkurinn mælist ca 22 (24) 27 cm frá prjónamerki á hæl. Prjónið hinn sokkinn alveg eins.
 
 
 
 
Málþing um vinnu, Sturlungu, goðafræði og Gerplu
Fréttir 2. september 2026

Málþing um vinnu, Sturlungu, goðafræði og Gerplu

Málþing var haldið í Kakalaskála laugardaginn 29. ágúst klukkan 14 þar sem fjóri...

Bókmenntahátíðin Haustgildi næstu helgi
Fréttir 2. september 2026

Bókmenntahátíðin Haustgildi næstu helgi

Haustgildi, bókmenntahátíð Bókabæjanna austanfjalls, verður haldin dagana 5. og ...

Halla Sif meðal 100 kvenhetja
Fréttir 2. september 2026

Halla Sif meðal 100 kvenhetja

Halla Sif Svansdóttir Hölludóttir, garðyrkjubóndi og eigandi Sólskins grænmetis,...

Óska eftir tilnefningum fyrir framúrskarandi árangur í lífrænni ræktun
Fréttir 1. september 2026

Óska eftir tilnefningum fyrir framúrskarandi árangur í lífrænni ræktun

Atvinnuvegaráðuneytið óskar eftir tilnefningum til viðurkenningar fyrir framúrsk...

Gjaldtaka hafin á nýjum hringveg um Hornafjörð
Fréttir 1. september 2026

Gjaldtaka hafin á nýjum hringveg um Hornafjörð

Gjaldtaka á nýjum hringveg um Hornafjörð hófst í dag. Vegurinn var opnaður fyrir...

Auglýst eftir umsækjendum um stuðning til söfnunar ullar
Fréttir 1. september 2026

Auglýst eftir umsækjendum um stuðning til söfnunar ullar

Atvinnuvegaráðuneytið auglýsir eftir umsækjendum um stuðning til söfnunar ullar ...

Gróðurhúsarækt enn öflug
Fréttir 31. ágúst 2026

Gróðurhúsarækt enn öflug

Á fundi bæjarstjórnar Hveragerðisbæjar snemma í vor var samþykkt tillaga um stof...

Aukin losun gróðurhúsalofttegunda vegna framkvæmda
Fréttir 31. ágúst 2026

Aukin losun gróðurhúsalofttegunda vegna framkvæmda

Í tilkynningu frá Landsvirkjun segir að heildarlosun gróðurhúsalofttegunda hafi ...