Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 6 ára.
Í sumarfríinu þarf að fá góðan granna til að vökva plönturnar. 
Myndir / Floridana
Í sumarfríinu þarf að fá góðan granna til að vökva plönturnar. Myndir / Floridana
Á faglegum nótum 9. júlí 2020

Pottaplöntur að sumri

Höfundur: Ingólfur Guðnason

Garðeigendur njóta nú sumar­verkanna, sumarblóm og fjöl­æringar blómstra sem aldrei fyrr og runnagróðurinn sýnir sínar fegurstu hliðar eftir harðan vetur. Allt er þetta besta mál, en ekki má gleyma potta­plönt­unum sem ættu núna að njóta lífsins innanhúss.

Síðla vetrar eru pottaplöntur oft hálf ræfilslegar. Þegar sólarinnar nýtur aftur breyta þær um svip og fá endurnýjaðan þokka.

Ólík umhirða að sumri og vetri

Sumarumhirða pottaplantna er um margt ólík umhirðu að vetri, þegar mesta áskorunin er að halda þeim í horfinu, láta þær njóta þeirrar birtu sem völ er á og dregið er úr vökvun og áburðargjöf. Sumartíminn felur í sér aðrar áskoranir. Plönturnar þurfa miklu meiri vökvun og þær þurfa aukna næringu til að njóta sín sem best og bæta við vöxtinn. Blómin sem höfð voru á bjartasta stað yfir veturinn getur þurft að færa frá gluggum og hitagjöfum. Margar tegundir geta hreinlega eyðilagst af of mikilli beinni birtu að sumrinu. Blöð geta sviðnað, blómin standa stutt og plöntunum hættir við ofþornun.

Þegar kemur að vökvun er helsta reglan að þar gildir engin regla önnur en að vökva hvorki of mikið né of lítið.

Loftraki

Loftraki í híbýlum er oftast mun lægri en plönturnar kjósa helst. Til að draga úr álagi vegna mikillar birtu og aukins lofthita er gott ef hægt er að hækka loftrakann. Úða ætti plönturnar reglulega með fínum vatnsúða. Annað gott ráð er að láta plöntur standa í víðri skál með vikri, þannig má hækka loftrakann umhverfis plönturnar. Einnig er hægt að hafa plöntur margar saman, þó þannig að vel fari um þær. Sá raki sem plönturnar gefa sjálfar frá sér er líka til þess fallinn að hækka rakastigið nokkuð og plönturnar fá líka skugga hver af annarri.

Loftraki í híbýlum er oftast mun lægri en plönturnar kjósa.

Vökvun og næring

Umpottun ætti yfirleitt að vera lokið snemma vors. Þá fá plönturæturnar nægilegt svigrúm til að vaxa yfir sumartímann. Pottamoldin geymir næringu sem nægir þeim fyrsta kastið, auk þess sem aukið vaxtarrými veldur því að sjaldnar þarf að vökva. Þegar kemur að vökvuninni er helsta reglan að þar gildir engin regla önnur en að vökva hvorki of mikið né of lítið. Plöntur í mikilli sól geta þornað mjög hratt. Ræktandinn þarf að fylgjast með jarðrakanum, td. með því að athuga með fingri hvort moldin sé rök í tveggja sentímetra dýpt eða svo. Einnig gefur þyngd pottsins til kynna hvernig ástatt er. Plöntur með þykk og leðurkennd lauf og stöngla eru líklegar til að þola meiri þurrk en þær sem hafa þunn og stór lauf. Blómstrandi plöntur mega ekki þorna.

Plöntur sem standa í leirpottum þorna mun hraðar en séu þær í plastpottum. Ef ekki eru notaðar skálar undir blómapotta þarf að hafa þær í pottahlíf til að auðvelda vökvun. Dökkleitir pottar og pottahlífar geta tekið til sín mikinn hita frá beinni sól og er hætt við að ræturnar drepist þess vegna. Suðurgluggi er versti óvinur pottablómanna á sumrin.

Pottaplönturnar þurfa ekki á áburðargjöf að halda nema frá vori og fram á haust. Flestir nota fljótandi pottaplöntuáburð. Auðvitað skiptir máli hvaða tegund ræktuð er, en rétt er að varast of mikla áburðargjöf. Farið eftir leiðbeiningum á umbúðunum og notið heldur minna af áburði en þar er gefið upp. Plöntur í miklum vexti má vökva með daufri áburðarblöndu við hverja vökvun, aðrar þurfa aðeins næringu í annað eða þriðja hvert sinn sem vökvað er.

Sumarleyfið

Í sumarfríinu þarf að fá góðan granna til að vökva plönturnar. Að öðrum kosti er hægt að koma þeim fyrir á skuggsælum stað fjarri beinni sólarbirtu og hafa hitastigið í lægra lagi. Flestar plöntur þola vel að hafast við vel vökvaðar í gluggalausu herbergi í eina til tvær vikur án þess að láta á sjá.

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum
Fréttir 16. október 2026

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum

Skæð fuglainflúensa hefur greinst í sýnum sem tekin voru úr villtum fuglum á Nor...

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir
Fréttir 16. október 2026

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir

Undanfarin fimm ár hefur Bjarki Þór Sólmundsson, matreiðslumeistari og myndlista...

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni
Fréttir 16. október 2026

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni

Kynslóðaskipti hafa orðið á garðyrkjustöðinni Hveratúni í Laugarási. Skúli Magnú...

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða
Fréttir 15. október 2026

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða

„Hagvöxtur trompar allt annað í áherslum stjórnvalda. En er hann besti mælikvarð...

Fékk nafnið Vafi
Fréttir 15. október 2026

Fékk nafnið Vafi

Eins og allir vita þá kasta hryssur á vorin og eitthvað fram eftir sumri en að þ...

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn
Fréttir 15. október 2026

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn

Í reiðhæfni, öryggi og hugrekki fær íslenski hesturinn hæstu einkunn allra kynja...

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra
Fréttir 14. október 2026

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra

Það er mikið um að vera hjá Reykjagarði á Hellu því þar er verið að byggja fjögu...

Kornskemman hefur tæplega undan
Fréttir 14. október 2026

Kornskemman hefur tæplega undan

Kornskemman, félag bænda í Eyjafirði, auglýsti móttöku á korni öðru sinni. „Við ...