Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 1 árs.
Þeir sem eru ekkert í svíninu geta prófað sig áfram með að nota steikta sveppi í staðinn.
Þeir sem eru ekkert í svíninu geta prófað sig áfram með að nota steikta sveppi í staðinn.
Mynd / Hari
Matarkrókurinn 21. ágúst 2024

Piparosta-grísapasta

Höfundur: Haraldur Jónasson

Eftir gular viðvaranir og alla þessa rigningu hættir sér ekki nokkur út að grilla lengur. Þá er gott að geta bara soðið smá pasta og haft það kósí.

Þegar ég var ungur og að hefja búskap var aðal pastarétturinn að bræða piparost í rjóma eða mjólk og brytja út í hann brauðskinku. Bera svo fram í tagliatelle pastahreiðri, sem var nýlunda þá. Þessi réttur er tileinkaður honum.

Til að gera kremkennda sósu þarf ekki alltaf rjóma. Að þessu sinni er það blanda af pastavatni og osti sem mun framkalla rjómalega sósu. Ég notaði grana padana, af því að það var þriðjudagur, en auðvitað má nota parmesan eða jafnvel pekkórínó ef hann finnst. Muna að það er mjög fonkí bragð af honum.

Til að pastavatnið blandist saman við ostinn þarf að framkalla það sem á íslensku kallast fleyti. Það á við töfrana að blanda saman vatni og olíu. Olían flýtur um í vatninu í míkródropum. Alveg eins og majónes er fleyti og bernaise líka. Þar er eggið, vatnið og olía eða bráðið smjör feitin. Hér er það feitur ostur og sterkjuríkt pastavatn.

Pastaval

Það er hægt að nota hvaða pastatýpu sem er; spagettí, penne eða hvað sem er. En gott að hafa í huga að því betra pasta sem notað er því betri verður sósan. Því betra pasta gefur frá sér meiri sterkju.

Ein leið til að sjá muninn á góðu og ekki alveg jafngóðu pasta er að því betra sem pastað er því mattara er það og yfirleitt ljósleitt að lit. Dökkgult og glansandi pasta er fínt í hakk og spagettí en yfirleitt ekki nógu gott í svona eldamennsku.

Til að fá sem allra mesta sterkju í vatnið er um að gera að sjóða pastað í eins litlu vatni og hægt er. Þannig þykknar það og blandast auðveldlega með ostinum. 400 grömm af pasta er hægt að sjóða í hálfum lítra af vatni.

Gott að nota víðan pott eða jafnvel pönnu með loki. Nota lokið og hræra reglulega í pottinum. Þegar upp er staðið ætti að vera um helmingurinn af vatninu eftir. Salta vatnið ekki of mikð. Tæp teskeið ernógþvíþaðersaltútiumalltí hinu hráefninu.

Skinkan

Í staðinn fyrir skinku er tilvalið að nota grísasíðu. Líka hægt að nota beikon ef draumurinn er að fá smá reykbragð. Salta síðubitana á öllum hliðum með minnst klukkutíma fyrirvara, skera svo í litla bita og passa að ekkert af rifjunum endi í pönnunni.

Getur verið smá maus að skera í litla bita þegar kjötið er hrátt og þá er bara fínt að skera í kubba steikja þá örlítið og taka svo upp úr pönnunni og saxa hálftilbúna bitana.

Þeir fara svo aftur ofan í pönnuna til að klára að steikjast. Við viljum að bitarnir verði sæmilega stökkir og nær öll fitan sé bráðin. Tilvalið að pipra vel þegar steikingin er hálfnuð svo piparinn brenni ekki. Matskeið eða svo af nýmuldum og muna að setja ekkert salt því það var þegar komið á kjötið.

Fleytið

Það eru margar leiðir til að ná árangri með þennan rétt en auðveldasta leiðin er að nota eitthvert gott eldhústæki sem snýst hratt. Best að nota blandara eða töfraprota en jafnvel handþeytari virkar líka.

Rífa parmesanost, 100 grömm eða svo, og blanda við 250 ml af volgu pastavatni. Til að fá extra góða sunnudagssósu er gott að skutla 50 ml af kotasælu út í blönduna.

Blanda saman í nokkrar sekúndur þangað til úr verður silkimjúk og rjómakennd sósa.

Rétturinn er kláraður með því að hræra sósunni og svínabitunum saman við pastað. Gott að hræra líka matskeið eða svo af olíunni sem safnaðist í steikarpönnunni.

Bera fram með hressilegu magni af parmesan, ferskum pipar og mögulega hvítlauksbrauði.

Innihald

Pasta, 400 grömm

Svínasíða, 1 bakki

Pastavatn, 250 millilítrar

Parmesanostur, 100 grömm

Kotasæla, 50 millilítrar

Pipar, 1 matskeið

Salt, 1 matskeið

Svínafita, 1 matskeið

Mótið 2026 fer vel af stað!
Fréttir 9. júlí 2026

Mótið 2026 fer vel af stað!

Margt var í brekkunni á fyrsta degi Landsmóts hestamanna og sólin skein á Hólum ...

Villa á sér heimildir sem eftirlitsmenn MAST
Fréttir 3. júlí 2026

Villa á sér heimildir sem eftirlitsmenn MAST

Matvælastofnun vekur athygli á að aðili villti á sér heimildir sem eftirlitsmaðu...

Styrkir til aðlögunar á lífrænum framleiðsluháttum
Fréttir 2. júlí 2026

Styrkir til aðlögunar á lífrænum framleiðsluháttum

Atvinnuvegaráðuneytið auglýsir til umsóknar styrki til lífrænnar aðlögunar í lan...

Leggja áherslu á veitingastarfsemi og afþreyingu við hleðslustöðvar
Fréttir 1. júlí 2026

Leggja áherslu á veitingastarfsemi og afþreyingu við hleðslustöðvar

Orkusalar leggja sífellt meiri metnað við að gera „hleðslustopp“ rafbílaeigenda ...

Velja íslenskt, lífrænt heilhveiti í baksturinn
Fréttir 30. júní 2026

Velja íslenskt, lífrænt heilhveiti í baksturinn

Fleiri bakarar landsins velja lífræna heilhveitið frá Vallanesi í bakaríin sín. ...

67,5 milljónum úthlutað
Fréttir 29. júní 2026

67,5 milljónum úthlutað

Alls hlutu 25 verkefni styrki úr Þróunarfé búgreina upp á 67,5 milljónir króna. ...

Fuglum og fiðrildum fækkar
Fréttir 29. júní 2026

Fuglum og fiðrildum fækkar

Stofnar fugla og fiðrilda hafa farið hnignandi frá árinu 2000. Þetta kemur fram ...

Efla samstarf um fæðuöryggi
Fréttir 29. júní 2026

Efla samstarf um fæðuöryggi

Norðurlöndin hafa ákveðið að styrkja sameiginlegt fæðuöryggi á tímum aukinnar óv...