Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 2 ára.
Sveinn Sigurðsson og Þórey Richardt Úlfsdóttir stofnuðu Smiðjuna ásamt vini sínum, Vigfúsi Þór Hróbjartssyni. Síðar bættist annar Vigfús í eigendahópinn.
Sveinn Sigurðsson og Þórey Richardt Úlfsdóttir stofnuðu Smiðjuna ásamt vini sínum, Vigfúsi Þór Hróbjartssyni. Síðar bættist annar Vigfús í eigendahópinn.
Líf og starf 24. júlí 2023

Perlan í alfaraleið

Höfundur: Höskuldur og Stefán

Í undanförnum tölublöðum Bændablaðsins hafa birst pistlar um íslensk brugghús. Rétt er að benda á að athugasemdum má gjarnan koma á framfæri við greinarhöfunda ef einhverjar eru. En nú er komið að Smiðjunni, brugghúsi og veitingastað í Vík í Mýrdal.

Vík í Mýrdal er einn af þessum stöðum sem lætur ekki mikið yfir sér í fyrstu en þegar betur er að gáð leynast þar ýmsar perlur. Vík er syðsta sjávarþorp landsins og það eina sem hefur enga almennilega hafnaraðstöðu. Vegna staðsetningar sinnar og mikillar náttúrufegurðar í umhverfi Víkur hefur bærinn orðið vinsæll áningarstaður ferðamanna og líklega hefur Katla, Netflix- þáttaröð Baltasars Kormáks lítið dregið úr áhuganum.

Ferðamannastraumnum hefur fylgt ýmislegt túristalegt en þó eru þar ýmsar perlur sem teldust jafnvel faldar. Ef að meginstraums ferðamannakaffihús henta ekki er hægt að finna frábæra litla skólarútu þar sem kaffibrennslan Skool Beans er rekin. Þar er nýbrennt og malað handverkskaffi afgreitt út um baklúguna á gömlum amerískum skólabíl og fullvaxnir greinarhöfundar geta ekki alveg staðið uppi.

Smiðjan er staðsett í hringiðu ferðamannastraumsins í Vík í Mýrdal. Hér má sjá brugghúsið að utan á snjóþungum vetri.

Heimabrugg tók völdin

En handverkskaffið er ekki eina matarhandverkið í Vík, því þar er líka Smiðjan, handverksbrugghús og veitingastaður en það er umfjöllunarefni þessarar greinar.

Þórey Richardt Úlfsdóttir og Sveinn Sigurðsson voru samstillt par þegar kom að matar- og vínáhuga. Hún er frá Egilsstöðum en hann frá Hvolsvelli. Eftir að hafa klárað viðskiptafræði í HR þar sem lokaverkefni Sveins var verkefni tengt Ölvísholti ákváðu þau að halda til náms í Danmörku 2014 þar sem Sveinn lagði stund á vörumerkjastjórnun við CBS. Í Danaveldi tók heimabruggið völdin, Sveinn gerðist bjórbloggari og flestum verkefnum í skólanum var snúið upp í bjór.

Svo gerðist það að vinur þeirra, Vigfús Þór Hróbjartsson, fékk Bjór, umhverfis jörðina á 120 tegundum, sem deilir höfundum með þessum greinarflokki, í jólagjöf og hafði samband og spurði hvort þau ættu ekki að stofna brugghús í Vík. 

Þá hafði Sveinn verið nýbúinn að skila inn viðskiptaáætlun fyrir lítið brugghús á Fjóni, sendi vini sínum áætlunina og sagði í gamni að hann skyldi bara þýða hana yfir á íslensku. Þegar Vigfús Þór sendi þeim teikningar 2 dögum síðar þar sem hann hafði breytt gömlu sláturhúsi í Vík í brugghús, veitingastað og hótel, varð ljóst að ekki var aftur snúið.

Vorið 2018 opnaði Smiðjan og síðan þá hefur stöðugur straumur legið þangað í mat og drykk. Fljótlega bættist annar Vigfús í eigendahópinn en báðir Vigfúsarnir eru frá Vík meðan Þórey og Sveinn eru núna sest að í Vík og standa saman að daglegum rekstri Smiðjunnar. Allt þetta hefur vaxið úr því að vera lítið ástríðuverkefni í rúmlega 20 manna vinnustað sem er í stækkun og fram undan er að byggja bjórböð, líkt og notið hafa mikilla vinsælda.

Kunnasta framleiðsla Smiðjunnar er líklega Haltá ketti, margþurrhumlaður IPA bjór.

Kveikur sem fólk elskar og hatar

Kunnasta framleiðsla Smiðjunnar er líklega Haltá ketti, margþurrhumlaður IPA bjór með mjólkursykri og gerjaður með norsku sveitageri kölluðu kveik, sem þýðir einfaldlega ger á flestum þeim mállýskum þar sem þetta var notað í Noregi. Kveik gerið gerjar bjórinn oft hratt og harkalega og er hann þar af leiðandi tilbúinn fyrr og kemur gerið með ýmis ávaxtakenndari brögð en hefðbundið ger.

Óvísindaleg könnun greinarhöfunda sýndi að fólk skiptist í tvo hópa, fólk sem elskar kveik og fólk sem hatar kveik. Fáir eru þarna á milli.

Wet all day IPA bjórinn er annar sem notið hefur töluverðra vinsælda og hefðbundnari session IPA bjór. (Session bjór er alla jafna vægari í áfengisprósentu en reglubundna útgáfan). Söluhæsti bjórinn þeirra í Vínbúðinni í fyrra var þó Haltá Jólaketti, en varla þarf að útskýra orðagrínið frekar.

Bjart fram undan

Unnendur handverksbjóra hafa væntanlega tekið eftir því að hönnunin á Smiðju bjórunum er nokkuð einkennandi, þó hún sé ekki beinlínis alltaf eins. Þar gætir áhrifa listamannsins Bobby Breiðholt sem hefur verið sá sem hannað hefur flestar umbúðirnar fyrir brugghúsið upp á síðkastið. Tengingarnar voru þannig að fjölskylda herra Breiðholts var með hús á Vík og þegar hann bað þau um að gera mat fyrir brúðkaupið sitt varð úr að hann tók að sér hönnunina fyrir fyrirtækið og hefur hann séð um hana að mestu leyti síðan.

Þrátt fyrir þessi sterku einkenni á dósunum er kannski samt það sem einkennir þetta brugghús að Vínbúðin er ekki þeirra stærsti útsölustaður, heldur er það veitingastaðurinn þeirra í Vík. Lauslega má áætla að um 90% af framleiðslunni sé til heimanota og voru eigendurnir oft í stökustu vandræðum að manna bjórkranana 10 með eigin framleiðsluvörum. Gekk það svo langt að frá júní til september 2022 seldi Smiðjan ekkert til Vínbúðarinnar en hafði þó ekki undan að framleiða upp í staðareftirspurn. Hefur það leitt til stækkunar brugghússins sem verið er að leggja lokahönd á en gerjunarrýmið er að fara úr um 8.000 lítrum í 28.000 lítra sem segja má að þýði lauslega um 280–300 þúsund lítra árlega framleiðslugetu. Sem er kannski eins gott því Smiðjan var fyrsta smábrugghúsið til að tryggja sér leyfi til að selja handverksbjórinn beint af framleiðslustað þegar lögum var breytt vorið 2022.

Það er ljóst að það er bjart fram undan í Vík þegar kemur að bjór og ljóst að Smiðjan er varla falin perla mikið lengur, heldur orðið að raunverulegu aðdráttarafli fyrir ferðamenn. Það þurfti engan Baltasar Kormák til þess.

Smiðjan hefur vaxið úr því að vera lítið ástríðuverkefni í rúmlega 20 manna vinnustað.

3.750 holdakýr eru í landinu
Fréttir 25. febrúar 2026

3.750 holdakýr eru í landinu

Bændasamtök Íslands í samvinnu við Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins (RML) stóðu f...

111 bæir sérhæfa sig í eldi holdanauta
Fréttir 23. febrúar 2026

111 bæir sérhæfa sig í eldi holdanauta

Kýr á holdanautabúum eru 3.333 og fæddust 2.466 kálfar á þessum búum á síðasta á...

Nautin uxu hraðast á Efstalandi
Fréttir 23. febrúar 2026

Nautin uxu hraðast á Efstalandi

Daglegur vöxtur ungneytanna á Efstalandi í Öxnadal var að meðaltali 714,5 grömm ...

Feitur ostur getur minnkað hættu á heilabilun
Fréttir 23. febrúar 2026

Feitur ostur getur minnkað hættu á heilabilun

Samkvæmt nýrri rannsókn við Háskólann í Lundi er hægt að tengja neyslu á feitum ...

Hestur í kvöldmatinn?
Fréttir 23. febrúar 2026

Hestur í kvöldmatinn?

Íslenskt hrossakjöt er takmarkað og verðmætt hráefni þar sem framboð er sveifluk...

Áfram stutt við LED-væðingu garðyrkjubænda
Fréttir 18. febrúar 2026

Áfram stutt við LED-væðingu garðyrkjubænda

Loftslags- og orkusjóður úthlutaði nýverið rúmlega 118 milljónum króna í styrki ...

Reykjaböðin verða opnuð í vor
Fréttir 18. febrúar 2026

Reykjaböðin verða opnuð í vor

Nú styttist óðum í að Reykjaböðin opni, en um ræðir nýtt náttúrulón og heilsulin...

Ræktun á burnirót til fæðubótarframleiðslu
Fréttir 17. febrúar 2026

Ræktun á burnirót til fæðubótarframleiðslu

Hafin er ræktun á burnirót í Hnífsdal í þeim tilgangi að framleiða fæðubótarefni...