Óvissan  er eitur
Mynd / Úr safni
Skoðun 17. apríl 2026

Óvissan er eitur

Höfundur: Trausti Hjálmarsson
Trausti Hjálmarsson.

Eins og margoft hefur komið fram á þessum vettvangi sem öðrum, þá hafa Bændasamtök Íslands ekki sett sig upp á móti því að kosið sé um aðildarviðræður við Evrópusambandið. Þvert á móti teljum við að stjórnvöldum sé bæði rétt og skylt að afla umboðs þjóðarinnar við slíkar aðstæður.

Að því sögðu þá verður umgjörð kosninganna og umræðunnar að vera til þess fallin að kjósendur geti tekið upplýsta ákvörðun. Í ítarlegri umsögn Bænda- samtakanna um þingsályktunartillögu um þjóðaratkvæðagreiðsluna er farið ofan í kjölinn á þeim helstu álitamálum sem upp hafa komið við greiningu okkar á málinu og er ómögulegt fyrir mig að gera því öllu skil hér.

Ég vil hins vegar vekja athygli á einu atriði sem ég held að hafi ekki fengið þá athygli og umræðu sem það á skilið. Þá staðreynd að ef samþykkt verður að hefja aðildarviðræður verður óvissan slík um rekstrarumhverfi landbúnaðarins að erfitt verður að réttlæta neina fjárfestingu í greininni aðra en brýnasta viðhald. Vilji og geta til fjárfestingar byggir á fyrirsjáanleika og nú þegar alger óvissa er um það hvaða landbúnaðarkerfi verður hér næstu áratugi er ljóst að hvatar til fjárfestingar í greininni eru nær engir.

Í raun hófst þetta óvissutímabil þegar ríkisstjórnin ákvað að kosið yrði í haust, en gera verður ráð fyrir að ríkisstjórninni takist að koma þingsályktunartillögunni í gegnum þingið.

Neikvæðar afleiðingar þessarar óvissu eru meðal annars þær að framleiðnivöxtur í landbúnaði dregst aftur úr öðrum þjóðum ef fjárfesting dregst saman, sem óhjákvæmilega leiðir af sér verri samkeppnishæfni til lengri tíma fyrir innlendan landbúnað gagnvart erlendum. Þessar afleiðingar ágerast eftir því sem aðildarferlið dregst á langinn, en hafa ber í huga að til lengri tíma hefur fjárfesting í landbúnaði verið minni en skyldi. Og hvað munu bændur þurfa að takast á við þessa óvissu lengi? Um það er mjög erfitt að spá, en ljóst er að sá tími verður mældur í misserum og árum, en ekki mánuðum.

Aðildarviðræður við önnur EFTA-ríki í upphafi tíunda áratugarins tóku styttri tíma en viðræður við mörg önnur ríki. Þannig gekk Finnland inn í Evrópusambandið 31 mánuði eftir að aðildarumsókn var send inn. Viðræður Svía tóku lengri tíma en viðræður Finna, eða sem nemur tæpu ári.

Í tilviki Íslands verður að bera endanlegan samning undir þjóðina í þjóðar- atkvæðagreiðslu, auk þess sem samþykkja verður breytingu á stjórnarskránni á tveimur þingum með alþingiskosningum á milli.

Þetta er langur tími sem okkur er ætlað að bíða í algerri óvissu þar til einhver mynd kemst á framtíðarskipulag landbúnaðar á Íslandi og starfsskilyrði bænda. Þessi óvissa mun vissulega hafa áhrif á fleiri atvinnugreinar, en ég efast um að áhrifin verði víða meiri eða alvarlegri en í landbúnaði.

Ég tel því ekki nema sjálfsagt og eðlilegt að ríkisstjórnin geri allt sem henni er mögulegt til að draga úr þessari óvissu og mikilvægt fyrsta skref væri að gefa út samningsmarkmið í landbúnaðarmálum, þar sem lagðar væru línur sem ekki yrði hvikað frá í viðræðum við ESB. Með því móti væri a.m.k. hægt að milda áhrif óvissunnar, þótt hún væri vissulega enn til staðar.

Í því sambandi vil ég benda á að Bændasamtökin ályktuðu um lágmarksviðmið í aðildarviðræðum á Búnaðarþingi árið 2011. Þessi ályktun er í fullu gildi af hálfu Bændasamtaka Íslands, en þessar varnarlínur geta nýst utanríkismálanefnd sem grundvöllur að skýrum og árangursríkum samningsmarkmiðum fyrir íslenskan landbúnað.

Höfundur er formaður BÍ.

Skylt efni: samningur við ESB | pistill

Reglulegar kvikmyndasýningar
Fréttir 17. apríl 2026

Reglulegar kvikmyndasýningar

Laugardaginn 18. apríl verður myndin Duggholufólkið sýnd á vegum Bíóteksins á Þi...

Fosfór úr landeldisseyru gerður nýtanlegur til áburðar
Fréttir 17. apríl 2026

Fosfór úr landeldisseyru gerður nýtanlegur til áburðar

Hjá Matís er nú unnið að verkefni sem hefur það að markmiði að vinna fosfór úr f...

Beðið útgáfu reglugerðar um eyrnamerki í sauðfé
Fréttir 16. apríl 2026

Beðið útgáfu reglugerðar um eyrnamerki í sauðfé

Á deildarfundi sauðfjárbænda hjá Bændasamtökum Íslands (BÍ) á Búnaðarþingi í mar...

Tæp fjörutíu prósent telja áframhaldandi búskap ekki tryggðan
Fréttir 16. apríl 2026

Tæp fjörutíu prósent telja áframhaldandi búskap ekki tryggðan

Niðurstöður könnunar sýna að skiptar skoðanir eru meðal bænda um það hvort áfram...

Nýsjálenskt lambakjöt á Íslandi
Fréttir 16. apríl 2026

Nýsjálenskt lambakjöt á Íslandi

Heildsalan Danól er handhafi WTO intnflutningskvóta á lambakjöti og hefur flutt ...

Nauðsynlegt að samningsmarkmið liggi skýrt fyrir
Fréttir 16. apríl 2026

Nauðsynlegt að samningsmarkmið liggi skýrt fyrir

Bændasamtök Íslands (BÍ) segja í umsögn, um tillögu til þingsályktunar um þjóðar...

Kynbótasýningar 2026 og val kynbótahrossa á Landsmót
Fréttir 15. apríl 2026

Kynbótasýningar 2026 og val kynbótahrossa á Landsmót

Nú er búið að stilla upp áætlun fyrir kynbótasýningar árið 2026 og er hún komin ...

Djúpborunarverkefni fékk hæsta styrkinn
Fréttir 15. apríl 2026

Djúpborunarverkefni fékk hæsta styrkinn

Áfram heldur Loftslags- og orkusjóður að styðja við nýsköpun og tækiþróun í nýti...