Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 7 mánaða.
Guðmundur Karl Guðfinnsson altmugligmaður fagnaði 85 ára afmæli sínu 8. janúar sl. Af því tilefni héldu vinnufélagarnir kaffiboð honum til heiðurs eins og sjá má á myndinni.
Guðmundur Karl Guðfinnsson altmugligmaður fagnaði 85 ára afmæli sínu 8. janúar sl. Af því tilefni héldu vinnufélagarnir kaffiboð honum til heiðurs eins og sjá má á myndinni.
Mynd / Aðsend
Fréttir 11. mars 2026

Ótrúlegur eldri borgari

Höfundur: Magnús Hlynur Hreiðarsson

Það er mikill kraftur í honum Guðmundi Karli Guðfinnssyni, eða Mumma eins og hann er kallaður, ekki þekktur fyrir annað en að láta hendur standa fram úr ermum.

Mummi, sem átti 85 ára afmæli nýverið, býr á Flúðum og er enn í hálfu starfi hjá Hrunamannahreppi, meðal annars við að keyra út mat í hádeginu til eldri borgara á Flúðum og næsta nágrenni.

Til viðbótar vinnur hann líka ýmis störf sem til falla í áhaldahúsinu og stofnunum sveitarfélagsins.

„Samkvæmt óvísindalegri könnun, sem gerð var meðal bæjar- og sveitarstjóra landsins, teljum við næsta víst að hann Mummi okkar í áhaldahúsinu sé elsti starfsmaður sveitarfélags á Íslandi og þó að víðar væri leitað. Hann er okkur öllum góð fyrirmynd alla daga og gefur þeim sem yngri eru ekkert eftir,“ segir Aldís Hafsteinsdóttir, sveitarstjóri Hrunamannahrepps.

Samkvæmt vísindalegum rannsóknum hins vegar hefur einmitt komið fram að eðlilegast væri að afnema aldurstakmörk á vinnumarkaðnum. Að koma í veg fyrir að fólk haldi áfram vinnu er þvert á hugmyndir um lífsgæði víða í heiminum – auk þess sem þannig væri hægt að sporna mót einmanaleika og félagslegri einangrun sem gjarnan hrjáir eldri borgara.

Skylt efni: Mannlíf | afmæli

Fengju reikning fyrir skemmdum með nýju frumvarpi
Fréttir 23. október 2026

Fengju reikning fyrir skemmdum með nýju frumvarpi

Stjórnvöld fengju auknar heimildir til að bregðast við ólögmætum utanvegaakstri ...

Ákall um að verja landbúnaðarstefnuna
Fréttir 23. október 2026

Ákall um að verja landbúnaðarstefnuna

Stokkhólmsyfirlýsing evrópskra bænda er afdráttarlaus og hvetur ráðamenn ríkja E...

Sýknuð vegna ágangs sauðfjár
Fréttir 23. október 2026

Sýknuð vegna ágangs sauðfjár

Héraðsdómur Austurlands hefur sýknað Fjarðabyggð af kröfu Hrefnu Dagbjartar Arna...

Fuglavernd mótmælir harðlega skotveiðum á bjargdúfum í Vestmannaeyjum
Fréttir 23. október 2026

Fuglavernd mótmælir harðlega skotveiðum á bjargdúfum í Vestmannaeyjum

Stjórn Fuglaverndar sendi nýlega bréf á umhverfis- orku og loftlagsráðuneytinið ...

Óánægja vegna gjalds á þrjá ferðamannastaði
Fréttir 23. október 2026

Óánægja vegna gjalds á þrjá ferðamannastaði

Mikil óánægja í Bláskógabyggð með gjald á þrjá ferðamannastaði. Íbúar Bláskógaby...

Terraforming LIFE á leið í umhverfismat
Fréttir 23. október 2026

Terraforming LIFE á leið í umhverfismat

Áburðar- og lífgasverksmiðja Terraforming LIFE, sem fyrirhugað er að reisa í Þor...

Halla tekur á móti viðurkenningunni
Fréttir 23. október 2026

Halla tekur á móti viðurkenningunni

Sólskins-garðyrkjubóndinn Halla Sif Svansdóttir Hölludóttir tók á dögunum á móti...

Vilja fella tollabreytingar úr frumvarpi
Fréttir 23. október 2026

Vilja fella tollabreytingar úr frumvarpi

Bændasamtök Íslands gera verulegar athugasemdir við frumvarpsdrög fjármála- og e...