Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 7 mánaða.
Ostur er ostur
Mynd / Úr safni
Fréttir 13. mars 2026

Ostur er ostur

Höfundur: Katrín Lilja Jónsdóttir

Í gær vísaði Landsréttur máli Danóls ehf. gegn ríkinu vegna tollflokkunar á pizzaosti frá héraðsdómi, á þeim grundvelli að dómur hefði þegar fallið um sama efni. Niðurstaða Landsréttar er því frekari staðfesting á því að ostur er og verður ostur og skal tollflokkast sem slíkur.

Upphaf málsins má rekja allt til febrúar 2020 en þá gaf tollstjóri út bindandi álit um tollflokkun vöru sem beri heitið Festino IQF Mozzarella Pizza Mix, sem sé rifinn ostur blandaður við jurtaolíu auk sterkju. Skyldi varan tollflokkast sem ostur og bera 30 prósenta verðtoll auk magntolls á innflutning utan tollkvóta.

Danól ehf. höfðaði mál á hendur ríkinu árið 2021 þar sem fyrirtækið leitaðist við að ógilda þetta bindandi álit tollgæslustjóra. Fyrirtækið hafi tapað málinu fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur, áfrýjað til Landsréttar, tapað málinu þar aftur, óskað eftir leyfi til áfrýjunar til Hæstaréttar og þeirri beiðni hafi verið hafnað af Hæstarétti. Þá hafi verið óskað eftir endurupptöku til Endurupptökudóms og þeirri beiðni einnig hafnað. Málið hafi aftur verið tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur og tapast að nýju. Fyrirtækið hafi aftur áfrýjað til Landsréttar, sem nú hefur vísað málinu frá.

Fyrir Landsrétti fór Danól fram á að álit um tollflokkun pitsaosts með íblandaðri jurtaolíu yrði ógilt en í gagnsök krafðist ríkið þess að málinu yrði vísað frá dómi á grundvelli svokallaðrar res judicata reglu, það er að segja að þegar hefði verið leyst úr úrlausnarefni málsins fyrir dómstólum. Árið 2022 sýknaði Landsréttur ríkið af öllum kröfum um að felldur yrði úr gildi úrskurður tollgæslustjóra um tollflokkun ostsins.

Skylt efni: Ostur

Fengju reikning fyrir skemmdum með nýju frumvarpi
Fréttir 23. október 2026

Fengju reikning fyrir skemmdum með nýju frumvarpi

Stjórnvöld fengju auknar heimildir til að bregðast við ólögmætum utanvegaakstri ...

Ákall um að verja landbúnaðarstefnuna
Fréttir 23. október 2026

Ákall um að verja landbúnaðarstefnuna

Stokkhólmsyfirlýsing evrópskra bænda er afdráttarlaus og hvetur ráðamenn ríkja E...

Sýknuð vegna ágangs sauðfjár
Fréttir 23. október 2026

Sýknuð vegna ágangs sauðfjár

Héraðsdómur Austurlands hefur sýknað Fjarðabyggð af kröfu Hrefnu Dagbjartar Arna...

Fuglavernd mótmælir harðlega skotveiðum á bjargdúfum í Vestmannaeyjum
Fréttir 23. október 2026

Fuglavernd mótmælir harðlega skotveiðum á bjargdúfum í Vestmannaeyjum

Stjórn Fuglaverndar sendi nýlega bréf á umhverfis- orku og loftlagsráðuneytinið ...

Óánægja vegna gjalds á þrjá ferðamannastaði
Fréttir 23. október 2026

Óánægja vegna gjalds á þrjá ferðamannastaði

Mikil óánægja í Bláskógabyggð með gjald á þrjá ferðamannastaði. Íbúar Bláskógaby...

Terraforming LIFE á leið í umhverfismat
Fréttir 23. október 2026

Terraforming LIFE á leið í umhverfismat

Áburðar- og lífgasverksmiðja Terraforming LIFE, sem fyrirhugað er að reisa í Þor...

Halla tekur á móti viðurkenningunni
Fréttir 23. október 2026

Halla tekur á móti viðurkenningunni

Sólskins-garðyrkjubóndinn Halla Sif Svansdóttir Hölludóttir tók á dögunum á móti...

Vilja fella tollabreytingar úr frumvarpi
Fréttir 23. október 2026

Vilja fella tollabreytingar úr frumvarpi

Bændasamtök Íslands gera verulegar athugasemdir við frumvarpsdrög fjármála- og e...