Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 7 mánaða.
Nýopnað skrifstofusetur Atwork á Skagaströnd.
Nýopnað skrifstofusetur Atwork á Skagaströnd.
Mynd / Aðsend
Fréttir 17. mars 2026

Opnun skrifstofuseturs

Höfundur: Edda Kristín Sigurjónsdóttir

Skrifstofusetur víðs vegar um land þjóna aukinni þörf fyrir vinnurými þeirra er sinna fjarvinnu. Nýtt setur hefur verið opnað á Skagaströnd og fleiri staðsetningar í skoðun.

Nýtt skrifstofusetur með góðri vinnuaðstöðu, einkaskrifstofum, fundarherbergjum og samvinnu- rýmum hefur opnað á Skagaströnd. Fyrirtækið Atwork rekur setrið sem er það fimmtánda í röðinni, en fyrir rekur það sjö setur á höfuðborgarsvæðinu auk seturs á Ísafirði, Akureyri, Borgar- nesi, Egilsstöðum, Reykjanesbæ, Siglufirði og Stykkishólmi. Marinella Haraldsdóttir.

Marinella Haraldsdóttir

„Heimurinn er í raun orðinn eitt atvinnusvæði,“ segir Marinella Haraldsdóttir, framkvæmdastjóri Atwork, sem sér mikla möguleika og vaxandi tækifæri á Skagaströnd.

Fyrsta skrifstofusetrið utan höfuðborgarsvæðisins var opnað á Siglufirði þar sem vel hefur gengið að sögn Marinellu. Lagt er upp úr að vinnuaðstaðan sé góð og aðlaðandi og hentug bæði fyrir einyrkja, fyrirtæki og opinberar stofnanir. Pláss er fyrir allt að 750 manns samanlagt á skrifstofusetrunum og starfsmenn geta nýtt starfsstöðvar á öðrum setrum. Marinella segir þau reyna að hlusta eftir þörfinni og opna ný setur þar sem eftirspurn er eftir henni, fleiri staðsetningar séu í skoðun.

Síldin fór og fjarvinnan kemur

Vinnulag fólks hefur breyst mikið á undanförnum árum og sér í lagi í kjölfar heimsfaraldurs kórónuveirunnar þar sem fyrirtæki og einyrkjar þurftu að tileinka sér nýja starfshætti vegna samkomu- takmarkana. Lærdómurinn af því tímabili getur nýst vel í þróun á atvinnu í smærri byggðalögum þar sem fjarvinna getur vegið þyngra en áður og algengara er orðið að störf án staðsetningar séu auglýst til umsóknar. Þar sem síldin fór getur fjarvinnan nú komið.

Sveitarstjóri Sveitarfélagsins Skagastrandar, Alexandra Jóhannesdóttir, segir frumkvöðlastarfi búinn betri jarðvegur með skrifstofusetrinu og að verkefnið falli vel að framtíðarsýn Skagastrandar um sjálfbæra byggðaþróun, aukin lífsgæði og aðdráttarafl bæjarins sem ákjósanlegs staðar til búsetu og atvinnu. 

Uppbygging fram undan

Á Skagaströnd eru um 460 íbúar og uppbygging er fram undan á svæðinu. Þar er þegar fjölbreytt atvinnustarfsemi, blómlegt fjölskylduvænt samfélag, sundlaug, listamiðstöðin Nes, golfvöllur og alltumlykjandi fögur náttúra. Í bænum er splunkunýr eldrauður spjallbekkur sem hugsaður er til að hvetja til samskipta vegfarenda á milli og annar fjólublár sem er hluti af landsátaki í vitundarvakningu um heilabilanir og ætlað að opna umræðuna í samfélaginu enn meira.

Ljóst er að málgefnir íbúar búa á Skagaströnd og að skrifstofusetrið á eftir að laða að sér fleiri og auka enn á samtalið í bænum.

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn
Fréttir 28. október 2026

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn

Í sumar var endurnýjaður samningur Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins (RML) við ...

Verðhækkun um 2,5% tryggð
Fréttir 28. október 2026

Verðhækkun um 2,5% tryggð

Bændur huga brátt að áburðarmálum næsta ræktunartímabils. Í rúmlega 10 ár hefur ...

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir
Fréttir 28. október 2026

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir

Stjórn Byggðastofnunar hefur ákveðið að auka fjárframlög til verkefnisins Brothæ...

Sjálfbær þróun með sólarorku
Fréttir 27. október 2026

Sjálfbær þróun með sólarorku

Eins og frá var greint í síðasta tölublaði Bændablaðsins er stærsta birtuorkuver...

Þór hf. hættir með DEUTZ-FAHR dráttarvélar
Fréttir 27. október 2026

Þór hf. hættir með DEUTZ-FAHR dráttarvélar

Þór hf. og SDF hafa komist að sameiginlegri niðurstöðu um að ljúka samstarfi um ...

Samræmdar aðferðir þróaðar við vöktun á rusli í vatni
Fréttir 27. október 2026

Samræmdar aðferðir þróaðar við vöktun á rusli í vatni

Matís stýrir stóru evrópsku verkefni sem felst í að þróa samræmdar og hagkvæmar ...

Áform um matvælakjarna  og votlendissetur
Fréttir 27. október 2026

Áform um matvælakjarna og votlendissetur

Hjá Landbúnaðarháskóla Íslands (LbhÍ) er í undirbúningi verkefni sem felst í að ...

Skinka úr íslensku svínakjöti
Fréttir 26. október 2026

Skinka úr íslensku svínakjöti

Stjörnugrís er eini framleiðandinn sem framleiðir skinku aðeins úr íslensku svín...