Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 4 mánaða.
Jóhannes Kristjánsson bústjóri stendur hér við nýjan tilraunabúnað í fjárhúsunum á Hesti í Borgarfirði.
Jóhannes Kristjánsson bústjóri stendur hér við nýjan tilraunabúnað í fjárhúsunum á Hesti í Borgarfirði.
Mynd / ál
Fréttir 12. júní 2026

Opnar á nýja möguleika í fóðurtilraunum

Höfundur: Ástvaldur Lárusson

Á Hesti í Borgarfirði, sem er sauðfjárbú rekið af Landbúnaðarháskóla Íslands, hefur verið komið upp fullkomnum búnaði til þess að framkvæma tilraunir með fóðrun sauðfjár.

Jóhannes Kristjánsson bústjóri segir í samtali að þetta sé í fyrsta skipti sem hægt verður að fylgjast með og stýra áti hvers einstaklings, en hingað til hafa fóðurtilraunir með sauðfé á Íslandi að mestu miðast við hópa. „Núna höfum við sett búnaðinn upp þannig að þessu er skipt í fjögur hólf sem geta rúmað tólf gripi hvert,“ segir Jóhannes. „Í hverju hólfi eru fjögur box sem gefa aðgang að gróffóðri. Hægt er að setja mismunandi fóður í hvert box og stýra aðgangi að þeim á ýmsan hátt. Þá er hvert hólf með einn bás sem skammtar vatn og einn kjarnfóðurbás álíka þeim sem eru algengir í fjósum. Í þessum básum er líka vigt þannig að þyngd kindanna er skráð sjálfvirkt inn í tölvukerfið.

Allir gripirnir eru með örmerki sem eru lesin af tölvu og veita gripunum aðgang að fóðri. Eins er hægt að loka fyrir aðgang að fóðri þegar gripurinn hefur étið tiltekið magn. Það er mælt með að við setjum saxað fóður í trogin til þess að koma í veg fyrir að gripirnir slæði, en það veldur skekkju í mælingum.

Við erum ekki byrjuð að framkvæma alvöru rannsóknir, en við prufuðum virkni búnaðarins í vetur þar sem við vorum með tólf gemlinga og nokkrar eldri ær. Gemlingarnir voru fljótir að læra á búnaðinn, en eldri kindurnar áttu erfitt með að aðlagast. Hér eftir held ég að við reynum að kenna gemlingum á þetta svo þær kunni á búnaðinn seinna. Þá er galli að búnaðurinn er ekki hentugur fyrir hyrnda gripi, en mjög fáir framleiðendur eru á svona búnaði í heiminum og hönnun þeirra gerir ekki ráð fyrir hornum.

Tilraunabúnaðurinn var keyptur frá BioControl í Noregi og kostaði í kringum þrjátíu milljónir með uppsetningu. Fjármagnið fékkst úr minningarsjóði doktors Halldórs Pálssonar búnaðarmálastjóra, en fyrir nokkru ákvað stjórn hans að leggja niður sjóðinn og ráðstafa honum til kaupa á nútíma tæknibúnaði til fóðurrannsókna á tilraunabúinu á Hesti.

Tölvubúnaðurinn var settur upp í október á síðasta ári og voru grindurnar og annað tengt búnaðinum tilbúið í byrjun þessa árs. Við prófuðum okkur áfram með fyrstu kindurnar í febrúar, aðallega til þess að læra á búnaðinn sjálf. Næsta haust og vetur munum við halda því áfram og fljótlega ætti allt að vera klárt til að hefja alvöru rannsóknir.

Þetta opnar á mjög mikla möguleika á tilraunir með fóður og fóðrun og búnaðurinn býður upp á miklu nákvæmari stýringu en áður þekktist og í fyrsta skipti á einstaklingsgrunni. Enn fremur verður gagnasöfnunin ekki eins vinnufrek og áður þar sem búnaðurinn er að mestu sjálfvirkur,“ segir Jóhannes.f

Skylt efni: sauðfjárrækt

Fengju reikning fyrir skemmdum með nýju frumvarpi
Fréttir 23. október 2026

Fengju reikning fyrir skemmdum með nýju frumvarpi

Stjórnvöld fengju auknar heimildir til að bregðast við ólögmætum utanvegaakstri ...

Ákall um að verja landbúnaðarstefnuna
Fréttir 23. október 2026

Ákall um að verja landbúnaðarstefnuna

Stokkhólmsyfirlýsing evrópskra bænda er afdráttarlaus og hvetur ráðamenn ríkja E...

Sýknuð vegna ágangs sauðfjár
Fréttir 23. október 2026

Sýknuð vegna ágangs sauðfjár

Héraðsdómur Austurlands hefur sýknað Fjarðabyggð af kröfu Hrefnu Dagbjartar Arna...

Fuglavernd mótmælir harðlega skotveiðum á bjargdúfum í Vestmannaeyjum
Fréttir 23. október 2026

Fuglavernd mótmælir harðlega skotveiðum á bjargdúfum í Vestmannaeyjum

Stjórn Fuglaverndar sendi nýlega bréf á umhverfis- orku og loftlagsráðuneytinið ...

Óánægja vegna gjalds á þrjá ferðamannastaði
Fréttir 23. október 2026

Óánægja vegna gjalds á þrjá ferðamannastaði

Mikil óánægja í Bláskógabyggð með gjald á þrjá ferðamannastaði. Íbúar Bláskógaby...

Terraforming LIFE á leið í umhverfismat
Fréttir 23. október 2026

Terraforming LIFE á leið í umhverfismat

Áburðar- og lífgasverksmiðja Terraforming LIFE, sem fyrirhugað er að reisa í Þor...

Halla tekur á móti viðurkenningunni
Fréttir 23. október 2026

Halla tekur á móti viðurkenningunni

Sólskins-garðyrkjubóndinn Halla Sif Svansdóttir Hölludóttir tók á dögunum á móti...

Vilja fella tollabreytingar úr frumvarpi
Fréttir 23. október 2026

Vilja fella tollabreytingar úr frumvarpi

Bændasamtök Íslands gera verulegar athugasemdir við frumvarpsdrög fjármála- og e...