Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 6 ára.
VW T-Cross Style.
VW T-Cross Style.
Mynd / HLJ
Á faglegum nótum 18. febrúar 2020

Ódýr, sparneytinn og fjórhjóladrifinn bensínbíll

Höfundur: Hjörtur L. Jónsson - liklegur@internet.is
Í september síðastliðinn prófaði ég Volkswagen T-Roc fjórhjóladrifinn ódýran dísilbíl. Í sambærilegum flokki bíla er Volkswagen T-Cross, en hann er fáanlegur í þremur mismunandi útfærslum með tvær miskraftmiklar bensín­vélar. 
 
Ég prófaði fyrir nokkru dýrasta bílinn með stærri vélinni og satt best að segja kom bíllinn mér töluvert á óvart.
 
Mikið af aukabúnaði til þæginda og öryggis
 
Strax og ég settist inn í bílinn fannst mér eitthvað við hann sem lét mér líða vel í honum, sætin góð með hitara sem hitaði vel upp með bakinu. Vitandi það að bíllinn er mjög ódýr bjóst ég fyrirfram ekki við miklum aukabúnaði (sá ódýrasti frá 2.990.000 og sá dýrasti á 4.190.000). 
 
Í bílnum eru nemar allan hringinn sem vara við hættum. Samanber ef ekið er of nálægt snjóruðningi, bakkað er í átt að steini eða annarri hættu. 
 
Akreinalesari er í bílnum sem les glettilega vel ógreinilegar miðjulínur og vegkanta, blindhornsvari í hliðarspeglum, fjölmörg USB tengi til að hlaða síma og fleira, gott útvarp og geislaspilari (sem er staðsettur inni í hanskahólfinu).
 
Kom á óvart eyðsla miðað við kraft
 
Aðstæður til að reyna virkilega á fjöðrun og aksturseiginleika voru ekki þær bestu vegna frosts og hálku. Fyrir vikið fór megnið af reynsluakstrinum fram á götum Reykjavíkur sem voru tiltölulega auðar og lausar við hálku. Í tvígang brá mér samt hressilega þegar bíllinn lenti í malbiksskemmd og hjó svo hressilega í annarri holunni að ég hélt mig hafa brotið felgu. 
 
Að keyra bílinn í borgarumferð er gott, hann er lipur, þægilegt að leggja í stæði og snerpan í vélinni góð. Malarkaflinn sem átti að prófa fjöðrun var snævi þakinn, en undir snjónum leyndust nokkrar holur sem bíllinn tók misvel. Í litlu holunum fannst mér bíllinn höggva örlítið, en í stærri holunum var fjöðrunin að virka betur. 
 
Eftir rúmlega 100 km akstur á meðalhraða upp á 26 km á klukkustund var mín eyðsla 8,6 lítrar á hundraðið, en uppgefin eyðsla samkvæmt bæklingi er 4,9 í blönduðum akstri. Ég var mjög sáttur við þessa eyðslu miðað við kraft, aksturslag, kulda og akstursskilyrði.
 
Einfaldlega ekki hægt að gefa neina mínusa miðað við stærð bíls og verð
 
Það eru nokkrir hlutir sem ég hefði viljað sjá í bílnum, eins og hita í stýrið, hita í aftursætin fyrir aftursætisfarþega og fl., en miðað við fjórhjóladrifinn bíl á svona góðu verði er ekki hægt að kvarta nema þá kannski út af lítilli dráttargetu sem er ekki nema 1000 til 1200 kg.
 
Plúsarnir eru fjölmargir á bílnum sem var prófaður: 
Fullbúið varadekk, a.m.k. 4 tengi til að hlaða síma, hitinn í framsætunum nær langt upp á bak, fjarlægðarskynjarar framan og aftan, blindhornsvari, akreinalesari, lítill hávaði frá vél inn í bíl (mældist 71db.), 16 tommu felgur (hefði ekki viljað vera á stærri felgu þegar ég ók í holuna á Gufunesveginum því þá hefði hún brotnað eða dekkið höggvist í sundur), en sem betur fer tók fjöðrunin í dekkinu mesta höggið.
 
Hægt að fá bílinn með ýmsum aukabúnaði
 
Í mörgum bílum er hægt að fá töluvert af aukabúnaði, en oftast hefur mér fundist sá aukabúnaður sem í boði er með nýjum bílum verið frekar dýr svo að ég hef ekkert verið að nefna hann. Í suma VW bíla hefur mér hins vegar fundist sumt vera ódýrt, samanber leiðsögukerfi, dráttarkrókur, þokuljós o.fl.
 
Eins og áður hefur komið fram er ódýrasti VW T-Cross á 2.990.000 upp í 3.350.000, þá með 95 hestafla vél, en 115 hestafla bíllinn er á verði frá 3.450.000 upp í 4.190.000. 
 
Allar nánari upplýsingar veita sölumenn Heklu eða á vefslóðinni www.hekla.is.
 
Þyngd 1.245–1.270 kg
Hæð 1.584 mm
Breidd 1.760 – 1.782 mm
Lengd  4.108 – 4.235 mm
 

 

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum
Fréttir 16. október 2026

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum

Skæð fuglainflúensa hefur greinst í sýnum sem tekin voru úr villtum fuglum á Nor...

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir
Fréttir 16. október 2026

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir

Undanfarin fimm ár hefur Bjarki Þór Sólmundsson, matreiðslumeistari og myndlista...

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni
Fréttir 16. október 2026

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni

Kynslóðaskipti hafa orðið á garðyrkjustöðinni Hveratúni í Laugarási. Skúli Magnú...

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða
Fréttir 15. október 2026

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða

„Hagvöxtur trompar allt annað í áherslum stjórnvalda. En er hann besti mælikvarð...

Fékk nafnið Vafi
Fréttir 15. október 2026

Fékk nafnið Vafi

Eins og allir vita þá kasta hryssur á vorin og eitthvað fram eftir sumri en að þ...

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn
Fréttir 15. október 2026

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn

Í reiðhæfni, öryggi og hugrekki fær íslenski hesturinn hæstu einkunn allra kynja...

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra
Fréttir 14. október 2026

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra

Það er mikið um að vera hjá Reykjagarði á Hellu því þar er verið að byggja fjögu...

Kornskemman hefur tæplega undan
Fréttir 14. október 2026

Kornskemman hefur tæplega undan

Kornskemman, félag bænda í Eyjafirði, auglýsti móttöku á korni öðru sinni. „Við ...