Óánægja bænda kostaði Repúblikana fylgi
Mynd / Leo Visions, unsplash
Utan úr heimi 26. nóvember 2026

Óánægja bænda kostaði Repúblikana fylgi

Höfundur: Þröstur Helgason

Óánægja bandarískra bænda og búfjárræktenda með tollastefnu Donalds Trumps forseta, hækkandi áburðar- og eldsneytiskostnað og afleiðingar stríðsins við Íran virðist hafa átt þátt í miklu fylgistapi Repúblikanaflokksins í nýafstöðnum þingkosningum. Í ýmsum rótgrónum landbúnaðarhéruðum kusu kjósendur demókrata í auknum mæli eða sátu heima.

Umfjöllun The New York Times bendir til þess að breytt afstaða kjósenda í dreifbýli hafi átt þátt í góðu gengi Demókrataflokksins, meðal annars í Iowa, Kansas og Texas. Þar hafa afleiðingar efnahags- og viðskiptastefnu ríkisstjórnar Trumps komið hart niður á landbúnaði.

Lesly McNitt, varaforseti stefnumála hjá bandarískum samtökum maísræktenda, National Corn Growers Association, segir bændur hafa verið eins konar „kanarífugl í kolanámunni“. Þeir hafi fundið fyrr en margir aðrir fyrir afleiðingum ákvarðana stjórnvalda.

Þegar Kína svaraði tollastefnu Bandaríkjastjórnar með því að hætta kaupum á bandarískum sojabaunum misstu bændur tekjur sem þeir höfðu gert ráð fyrir. Stríðið við Íran leiddi síðan til hækkunar á áburðarverði, nokkru áður en eldsneytisverð tók að hækka verulega.

Bændur kalla eftir stöðugleika

„Við viljum stöðugleika,“ segir Kyle Hemmert, búfjárræktandi og Repúblikani í vesturhluta Kansas. Að hans mati hefur Repúblikanaflokknum brugðist illa í þeim efnum. „Þess vegna biðu þeir svona mikinn ósigur.“

Bandarísk stjórnvöld greiddu fyrr á árinu 12 milljarða dala í neyðaraðstoð til bænda. Ýmis bændasamtök sögðu greiðslurnar þó aðeins bráðabirgðalausn sem tæki ekki á undirliggjandi vanda landbúnaðarins.

Ríkisstjórn Trumps lofaði auk þess bændum og búfjárræktendum samtals 15 milljörðum dala í stuðning, þar af átta milljörðum vegna hækkandi dísilverðs. Þau loforð, sem komu á síðustu vikum fyrir kosningar, dugðu þó ekki til að koma í veg fyrir fylgistap Repúblikana.

Breytingin varð sérstaklega áberandi í Kansas. Þar var Demókratinn Adam Hamilton kjörinn í öldungadeild Bandaríkjaþings, fyrstur Demókrata til þess í ríkinu síðan 1932. 

Mesta fylgistap Repúblikana varð í Seward-, Ford- og Finney-sýslum í suðvesturhluta Kansas. Á svæðinu fer fram um fjórðungur allrar nautakjötsframleiðslu Bandaríkjanna, samkvæmt The New York Times.

Árið 2024 fékk Trump 66 prósent atkvæða í Finney-sýslu. Nú fékk Roger Marshall, öldungadeildarþingmaður Repúblikanaflokksins, sem sóttist eftir endurkjöri, aðeins 47 prósent.

Áburður, eldsneyti og vinnuafl

Atvinnulíf suðvesturhluta Kansas, allt frá mjólkurbúum og nautgripafóðrun til ræktunar, kjötvinnslu og vöruflutninga, byggist að verulegu leyti á því að kjötvinnslustöðvar geti starfað með fullum afköstum.

Alríkisyfirvöld gerðu umfangsmiklar aðgerðir gegn innflytjendum á svæðinu í september sem nautgripageirinn gagnrýndi harðlega.

„Við heyrum frá mörgum bændum í suðvesturhluta Kansas sem eru óánægðir,“ segir Martin Rosas, forseti staðardeildar verkalýðssamtakanna United Food and Commercial Workers. „Eldsneytisverðið, áburðarverðið og stríðið við Íran hafa aukið áhyggjur þeirra og flokkur Trumps samræmist ekki lengur þörfum þeirra.“

Bændasamtök studdu Demókrata

Í Iowa varð einnig veruleg sveifla í átt til Demókrata þótt Repúblikanar héldu velli víða í dreifbýli. Demókratar unnu ríkisstjóraembættið, öldungadeildarsæti og þrjú af fjórum sætum ríkisins í fulltrúadeild Bandaríkjaþings. Öll höfðu áður verið í höndum Repúblikana.

Iowa Farmers Union, sem að jafnaði styður ekki einstaka frambjóðendur í landskosningum, ákvað í sumar að gera það að þessu sinni. Aaron Lehman, forseti samtakanna, segir ákvörðunina hafa verið tekna eftir tveggja ára „mistök í stefnumótun“ hjá ríkisstjórn Trumps.

Samtökin höfðu vænst þess að þingmenn Iowa, sem allir voru Repúblikanar, létu í sér heyra gegn tollastefnunni, stríðinu við Íran og innflutningi á ódýru nautakjöti. Í september lýstu þau yfir stuðningi við frambjóðendur Demókrata.

„Við bjuggumst við mótspyrnu,“ segir Lehman. „En raunin varð þveröfug. Við heyrðum frá fólki sem sagði: „Ég er ánægður með að einhver skuli standa upp og segja þetta.“

„Þeir eru að ganga frá okkur“

Í Texas varð einnig mikið fylgistap hjá Repúblikönum. Sid Miller, fráfarandi land- búnaðarmálastjóri ríkisins og Repúblikani, sagði flokkinn hafa verið „gjöreyðilagðan“.

Að hans mati réð andstaða við uppbyggingu gagnavera miklu um úrslitin. Bændur og búfjárræktendur hafa lagst gegn þeim, meðal annars vegna staðsetningar gagnavera og raflína á og við landbúnaðarland.

Óánægjan náði einnig til landbúnaðar- stefnunnar. Áform Trumps um aukinn innflutning nautakjöts höfðu þrýst niður verði til búfjárræktenda á sama tíma og þeir þurftu að greiða meira fyrir áburð og dísilolíu.

Miller lýsti afstöðu margra kjósenda þannig: „Ég er stuðningsmaður Trumps í einu og öllu en þeir eru að ganga frá okkur. Þess vegna kýs ég þá ekki eða mæti alls ekki á kjörstað.“

Demókratar þurfa að halda fylginu

Góður árangur Demókrata í land- búnaðarhéruðum tryggir þeim þó ekki varanlegt fylgi bænda. Eitt helsta verkefni nýs þingmeirihluta verður fimm ára landbúnaðarlöggjöfin, Farm Bill, sem þegar hefur verið samþykkt í fulltrúadeildinni en bíður afgreiðslu öldungadeildarinnar.

Þá þrýsta maísframleiðsluríki á um sölu eldsneytis með 15 prósenta etanólblöndu allt árið og samtök mjólkurframleiðenda kalla eftir breytingum á reglum um vegabréfsáritanir fyrir tímabundið erlent vinnuafl.

Kosningaúrslitin sýna að afkoma bænda og óvissa í landbúnaði geta haft veruleg pólitísk áhrif. Í nokkrum helstu landbúnaðarríkjum Bandaríkjanna reyndist hefðbundinn stuðningur dreifbýliskjósenda við Repúblikana að þessu sinni mun brothættari en áður.

Eini háskólinn sem fær lægri krónutölu til reksturs
Fréttir 26. nóvember 2026

Eini háskólinn sem fær lægri krónutölu til reksturs

Landbúnaðarháskóli Íslands (LbhÍ) fær lægra fjármagn frá ríkinu til reksturs en ...

Túrbó-hani, hundrað svín
Fréttir 26. nóvember 2026

Túrbó-hani, hundrað svín

Í kjölfar umfjöllunar um íslenska skinku í síðasta blaði skal sjónum beint að be...

Bætt fjarskiptaöryggi á fimm stöðum
Fréttir 25. nóvember 2026

Bætt fjarskiptaöryggi á fimm stöðum

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra undirritaði nýlega tvo samninga um uppbyggin...

Hvetur alla til að skrá geitur
Fréttir 25. nóvember 2026

Hvetur alla til að skrá geitur

Skráning í skýrsluhaldsforrit geitfjárræktarinnar, Heiðrúnu, er gjaldfrjáls. Hák...

Vilhjálmur Svanberg átti bestu myndina af mýralífi
Fréttir 25. nóvember 2026

Vilhjálmur Svanberg átti bestu myndina af mýralífi

Vinningshafar í Myndasam- keppni Mýralífs árið 2026 voru Vilhjálmur Svanberg Arn...

Íbúum fjölgað um 83 prósent á tíu árum
Fréttir 24. nóvember 2026

Íbúum fjölgað um 83 prósent á tíu árum

Íbúar Hörgársveitar eru orðnir fleiri en þúsund í fyrsta sinn. Sveitarfélagið te...

Helsta verkefnið að rækta félagsauðinn
Fréttir 24. nóvember 2026

Helsta verkefnið að rækta félagsauðinn

Sverrir Bollason var kjörinn nýr formaður Skógræktarfélags Íslands (SÍ) á dögunu...

27 milljónir til verkefna á landsbyggðinni
Fréttir 24. nóvember 2026

27 milljónir til verkefna á landsbyggðinni

Innviðaráðuneytið úthlutaði 27 milljónum króna til 14 verkefna sem snúa að því a...