Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 11 mánaða.
Húsið verður allt hið glæsilegasta en það er Arkís, sem hannar nýja menningarhúsið í Skagafirði. Hægt er að skoða vinnslutillöguna í Skipulagsgátt Skipulagsstofnunar á www.skipulagsgatt.is undir málsnúmerinu 1294/2025.
Húsið verður allt hið glæsilegasta en það er Arkís, sem hannar nýja menningarhúsið í Skagafirði. Hægt er að skoða vinnslutillöguna í Skipulagsgátt Skipulagsstofnunar á www.skipulagsgatt.is undir málsnúmerinu 1294/2025.
Mynd / Aðsendar
Líf og starf 21. október 2025

Nýtt og glæsilegt menningarhús

Höfundur: Magnús Hlynur Hreiðarsson

Það stendur mikið til á Sauðárkróki, sem tilheyrir Sveitarfélaginu Skagafirði, en þar á að fara að byggja glæsilegt menningarhús, sem á að verða tilbúið eftir tvö ár. Sérstök byggingarnefnd er að störfum en á dögunum var skrifað undir samning við Arkís um teikningu og hönnun hússins. Sigfús Ingi Sigfússon er sveitarstjóri og veit allt um nýja menningarhúsið.

Sigfús Ingi Sigfússon.

„Ég er afar spenntur fyrir vegferðinni, sem er fram undan og hlakka til að mæta í nýtt og glæsilegt menningarhús á Sauðárkróki og njóta alls þess sem þar mun verða í boði,“ segir Sigfús Ingi.

Ákvörðun ríkisstjórnarinnar frá 1999

„Aðdragandi málsins er nokkuð langur því grundvöllur nýs menningarhúss á Sauðárkróki er ákvörðun ríkisstjórnar Íslands frá árinu 1999 um að veita stofnstyrki til uppbyggingar menningarhúsa utan höfuðborgarsvæðisins með það að markmiði að bæta þar aðstöðu til menningar- og listastarfsemi. Árið 2005 undirrituðu svo þau Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, þáverandi menntamálaráðherra, Gísli Gunnarsson, þáverandi forseti sveitarstjórnar Sveitarfélagsins Skagafjarðar og Agnar H. Gunnarsson, þáverandi oddviti Akrahrepps, samkomulag um uppbyggingu menningarhúss í Skagafirði.

Samkomulagið var byggt á niðurstöðum samstarfshóps skipuðum fulltrúum menntamálaráðuneytis og sveitarfélaganna í Skagafirði. Annars vegar var gerð tillaga um endurbætur á félagsheimilinu Miðgarði, þar sem áhersla yrði lögð á tónlistarflutning, stærri hátíðir og ráðstefnuhald. Var endurbætt hús, Menningarhúsið Miðgarður, formlega vígt við upphaf Sæluviku Skagfirðinga í apríl 2009. Hins vegar var gerð tillaga um að byggt yrði við núverandi Safnahús Skagfirðinga á Sauðárkróki og að þar yrði menningarmiðstöð með áherslu á fræðastörf og sýningar, sem hýsti m.a. sýningarsal, bókasafn, listasafn og skjalasafn, auk fjölnota sýningarsals,“ segir Sigfús Ingi. Það var svo á atvinnulífssýningu í Skagafirði vorið 2023, sem Lilja Alfreðsdóttir, þáverandi menningarog viðskiptaráðherra og Sigfús Ingi sveitarstjóri skrifuðu undir samning um byggingu nýs menningarhúss í Skagafirði á grundvelli fyrra samkomulags við ríkið og þarfagreiningar sem unnin var í samstarfi ráðuneytisins og hagaðila í Skagafirði.

200 manna salur

Sigfús Ingi var að skrifa undir samning við Arkís um hönnun á húsinu. „Það var afar ánægjulegur áfangi. Í nýju menningarhúsi, sem verður staðsett á Flæðunum á Sauðárkróki, í hjarta bæjarins, mun verða lifandi vettvangur sviðslista í Skagafirði, sem fá nýja og glæsilega aðstöðu í 180–200 manna sal. Auk þess mun þar fara fram starfsemi Héraðsbókasafns Skagfirðinga, Héraðsskjalasafns Skagfirðinga, Listasafns Skagfirðinga, Byggðasafns Skagfirðinga og tengd fræðastarfsemi, auk þess sem hluti hússins mun rúma viðurkennd varðveislurými, sem uppfylla kröfur ríkisins um aðbúnað opinberra skjalaog byggðasafna eins og fram kemur í lögum og reglugerðum. Í húsinu verður aðstaða til að halda metnaðarfullar sýningar í fjölnota sýningarsal, s.s. myndlistarsýningar, ljósmyndasýningar, sýningar á höggmyndalist o.s.frv. Þar mun jafnframt verða miðstöð rannsókna á skagfirskum menningararfi og öll aðstaða almennings til að njóta fjölbreyttrar menningar og menningararfs verður stórefld,“ segir Sigfús Ingi. Þarfagreining gerir ráð fyrir að húsið verði ekki undir 2.241 fmen núverandi Safnahúsi Skagfirðinga verður breytt, uppfært til þarfa nútímans, auk þess sem nýbygging verður líklega um 1.450 fm að gólffleti.

Ríkið greiðir 60% og sveitarfélagið 40%

Samkvæmt samningum við ríkið á húsið að vera tilbúið fyrir áramótin 2027/2028. Kostnaðarskipting er með þeim hætti að ríkið greiðir 60% og sveitarfélagið 40% en þátttaka ríkisins er bundin við ákveðin fjárhæðarmörk. „Kostnaðaráætlun fyrir húsið verður uppfærð í því hönnunarferli, sem nú stendur yfir. Við framkvæmd þessa verkefnis er lögð áhersla á að ná fram hagkvæmni í kostnaði, á sama tíma og gætt er að markmiðum gæða byggingarinnar og tímaramma,“ segir sveitarstjórinn.

Gjörbylt aðstaða

En hverju mun nýja húsið breyta fyrir Skagfirðinga?  „Það mun gjörbylta allri aðstöðu fyrir söfnin okkar í Skagafirði, bæði með tilliti til sýnigarhalds en einnig aukins þverfaglegs samstarfs. Þá mun aðstaða til sviðslistastarfsemi loksins fá þann sess sem hún hefur kallað eftir til margra áratuga. Við höfum fengið afar jákvæð viðbrögð við fyrirhuguðum framkvæmdum en íbúum gefst einnig færi á að láta skoðun sína í ljós í því deiliskipulagsferli, sem nú er í gangi fyrir svæðið en markmið þess er að hanna heildstætt yfirbragð fyrir áformaða uppbyggingu menningarhúss og umhverfis, afmörkun lóða, skilgreining byggingarreita og skilmála, ásamt því að skapa forsendur fyrir öruggt umferðarflæði gangandi, akandi og hjólandi vegfarenda,” segir Sigfús Ingi að lokum.

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum
Fréttir 16. október 2026

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum

Skæð fuglainflúensa hefur greinst í sýnum sem tekin voru úr villtum fuglum á Nor...

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir
Fréttir 16. október 2026

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir

Undanfarin fimm ár hefur Bjarki Þór Sólmundsson, matreiðslumeistari og myndlista...

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni
Fréttir 16. október 2026

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni

Kynslóðaskipti hafa orðið á garðyrkjustöðinni Hveratúni í Laugarási. Skúli Magnú...

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða
Fréttir 15. október 2026

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða

„Hagvöxtur trompar allt annað í áherslum stjórnvalda. En er hann besti mælikvarð...

Fékk nafnið Vafi
Fréttir 15. október 2026

Fékk nafnið Vafi

Eins og allir vita þá kasta hryssur á vorin og eitthvað fram eftir sumri en að þ...

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn
Fréttir 15. október 2026

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn

Í reiðhæfni, öryggi og hugrekki fær íslenski hesturinn hæstu einkunn allra kynja...

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra
Fréttir 14. október 2026

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra

Það er mikið um að vera hjá Reykjagarði á Hellu því þar er verið að byggja fjögu...

Kornskemman hefur tæplega undan
Fréttir 14. október 2026

Kornskemman hefur tæplega undan

Kornskemman, félag bænda í Eyjafirði, auglýsti móttöku á korni öðru sinni. „Við ...