Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 5 mánaða.
Jónatan kom afturábak og er með stór horn - sem betur fór gekk burðurinn samt vel, en getur annars valdið miklum örðugleikum.
Jónatan kom afturábak og er með stór horn - sem betur fór gekk burðurinn samt vel, en getur annars valdið miklum örðugleikum.
Mynd / Karólína Elísabetardóttir
Fréttir 24. apríl 2026

Nýtt myndband um burðarhjálp

Höfundur: Katrín Lilja Jónsdóttir

Nýtt myndband hefur verið sett inn á YouTube-rásina Leiðbeiningar um burðarhjálp, þar sem bændum er leiðbeint um sérstaka aðferð í burðarhjálp sem hentar vel þegar hausinn kemst ekki í gegnum grindina ef fæturnir fylgja með, eins og í venjulegum burði.

Ástæða fyrir erfiðleikum í burði geta verið vegna stórra horna á lambi, stórs hauss eða að lambið sé sérstaklega stórt. Í nýja myndbandinu fá bændur leiðbeiningar í burðarhjálp þar sem bönd eru fest á framfætur lambsins, þeir settir inn aftur og höfuð sótt á undan fótum. Síðan eru fæturnir sóttir hvor á eftir öðrum með hjálp bandanna. Hálsinn er talsvert mjórri en hausinn og því meira pláss í fæðingarvegi kindarinnar.

Í tilkynningu með myndbandinu frá Karólínu og Axel, umsjónarmanna Youtube-rásarinnar, segir að aðferðin krefjist sérstakrar varúðar, því böndin megi alls ekki hrökkva fram og einnig þurfi að gæta vel að því að fæturnir skaðist ekki eða að þeir skaddi leghálsinn.

Rásin verið starfrækt síðan 2019

Umsjón með rásinni er í höndum Karólínu Elísbetardóttur, sauðfjárbónda Hvammshlíð, og Axels Kárasonar, dýralæknis í Sólheimum. Þau settu YouTube-rásina í loftið í kringum 2019 og þar má nú nálgast 24 ítarleg leiðbeiningarmyndbönd í kringum burðarhjálp og sauðburð. Bændur um allt land hafa sent myndefni í gegnum árin, auk þeirra myndbanda sem Karólína tók á mismunandi bæjum í Skagafirði og Austur-Húnavatnssýslum. Það má því segja að rásin sé stórt samvinnuverkefni bænda. 

Myndböndin eru öllum opin á YouTube og jafnframt aðgengileg á ensku og þýsku til að auðvelda erlendu aðstoðarfólki vinnuna.

Mikilvægt er að þekkja réttu orðin - ekki síst þegar erlent starfsfólk kemur til vinnu.

Ljósmyndakeppni hjá Skógræktarfélagi Íslands
Fréttir 19. október 2026

Ljósmyndakeppni hjá Skógræktarfélagi Íslands

Skógræktarfélag Íslands efnir til ljósmyndakeppni undir þemanu „Skógurinn að vet...

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum
Fréttir 16. október 2026

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum

Skæð fuglainflúensa hefur greinst í sýnum sem tekin voru úr villtum fuglum á Nor...

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir
Fréttir 16. október 2026

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir

Undanfarin fimm ár hefur Bjarki Þór Sólmundsson, matreiðslumeistari og myndlista...

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni
Fréttir 16. október 2026

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni

Kynslóðaskipti hafa orðið á garðyrkjustöðinni Hveratúni í Laugarási. Skúli Magnú...

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða
Fréttir 15. október 2026

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða

„Hagvöxtur trompar allt annað í áherslum stjórnvalda. En er hann besti mælikvarð...

Fékk nafnið Vafi
Fréttir 15. október 2026

Fékk nafnið Vafi

Eins og allir vita þá kasta hryssur á vorin og eitthvað fram eftir sumri en að þ...

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn
Fréttir 15. október 2026

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn

Í reiðhæfni, öryggi og hugrekki fær íslenski hesturinn hæstu einkunn allra kynja...

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra
Fréttir 14. október 2026

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra

Það er mikið um að vera hjá Reykjagarði á Hellu því þar er verið að byggja fjögu...