Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 2 ára.
Í fjörunni má finna gnægð nýtilegs gróðurs.
Í fjörunni má finna gnægð nýtilegs gróðurs.
Mynd / Jonatan Pie
Líf og starf 7. október 2024

Nýting náttúruauðlindanna

Höfundur: Sigrún Pétursdóttir

Í aldanna rás hafa Íslendingar lært að nýta ríkar náttúruauðlindir landsins til bæði matar og drykkjar auk þess að tilreiða ýmsar tinktúrur og smyrsl okkur til heilsubóta.

Í dag má finna nokkurn fjölda íslenskra fyrirtækja sem nýta þessar staðbundnu jurtir og plöntur til þess að framleiða sjálfbærnivottaðar snyrtivörur – sem eru sem betur fer vaxandi hluti af fegurðariðnaðinum.

Burt með eiturefnin

Í framleiðsluferli þeirra er bæði heilsa manna og umhverfisvernd sett í forgang, en með sjálfbærum snyrtivörum er átt við snyrtivörur sem eru samsettar úr náttúrulegum innihaldsefnum endurnýjanlegra auðlinda. Sem dæmi um slíkt eru grös, leir, þörungar eða viðlíka náttúruauðlindir sem myndast aftur þó af þeim sé tekið. Framleiðendur kjósa sem sagt að leggja áherslu á umhverfisábyrgð, lágmarka neikvæð vistfræðileg áhrif, með það fyrir augum að varan sjálf gagnist ekki aðeins neytendum heldur sé umhverfið einnig virt í framleiðsluferlinu.

Þessi stefna er jákvæð ef litið er til blýeitraðra snyrtivara sem seldar voru fyrr á tímum. Þess má geta að breytingin í átt að umhverfisvænni snyrtivörum er knúin áfram af eftirspurn neytenda, sem kjósa nú frekar náttúrulega valkosti. Ef einhver veltir fyrir sér kostum þess að bæta blýi út í snyrtivörur þá var það líklegast vegna þess að blýið þótti gera liti bjartari og skærari auk þess að vera rakagefandi.

Í dag eru notaðar olíur á borð við kókos-, avocado- eða arganolíu sem rakagjafi auk glýseríns, sem einnig veitir náttúrulegan raka og næringu og er unnið úr pálmaolíu eða sojabaunum.

Þegar kemur að rotvarnarefnum kjósa mörg vörumerki að nota náttúruleg efni, þá rósmarínþykkni eða E-vítamín í stað hefðbundinna rotvarnarefna sem geta valdið heilsufarsáhættu. Jurtir eins og kamilla og lavender eru nýttar sem róandi viðbót, vallhumall og mjaðjurt til styrktar ónæmiskerfinu og þar fram eftir götunum.

Svo fátt eitt sé nefnt

Eitt fyrsta íslenska snyrtivörufyrirtækið með náttúrulegar vörur er Purity Herbs, stofnað á Akureyri árið 1994. Eigendur þess eru hjónin André Raes og Ásta Kristín Sýrusdóttir og var kveikjan áhugamál André, að búa til krem, olíur og te úr jurtum. Fyrsta kremið, Undrakrem, er enn fáanlegt í dag eftir 30 ára sigurgöngu, en gerð þess fékk hjólin til að snúast.

Flest þekkjum við svo orðið sem fer af kíslinum sem losnar úr bergi Bláa lónsins og breytist í leðju sem er þekkt fyrir að hafa mjög jákvæð áhrif á húðsjúkdóminn psóríasis. Undir merkjum fyrirtækisins Blue Lagoon má nú versla maska, rakakrem, serum og olíur sem væntanlega standa undir nafni.

Kolbrúnu grasalækni má einnig nefna en heilræði hennar birtust fyrst almenningi á síðum Dags árið 1997. Þar mælir hún með ýmsu gagnlegu í baráttunni við kvefflensu, til að mynda skal borða mikinn lauk og hvítlauk auk þess að drekka sítrónu- safa því þetta þrennt er bakteríu- drepandi. Taka að auki inn sólhatt sem sé náttúrulegt pensilín og gjarnan kallað indíánapensilín að hennar sögn. Kolbrún á fyrirtækið Jurtaapótekið í dag og vörur hennar reynst landsmönnum vel í gegnum tíðina.

Villimey er annað vörumerki sem einbeitir sér að því að virkja kraft innlendra jurta sem finnast á Vestfjörðum. Vörur þeirra eru lífrænt vottaðar og lausar við öll ilm-, litar- og rotvarnarefni, en þau innihalda náttúrulega rotvörn sem kemur frá jurtunum. Þróun og framleiðsla á vörum Villimeyjar hefur staðið frá 1990, en eigandinn, Aðalbjörg Þorsteinsdóttir, hefur unnið uppskriftirnar sjálf, eins og kemur fram á vefsíðu hennar; með vísdóm og verkkunnáttu, sem gengið hafa mann fram af manni, að leiðarljósi. Vörurnar eru í dag, eins og nærri má geta, vel kunnar fyrir
gæði og góða virkni.

Leggjum okkar af mörkum

Ávinningurinn af því að velja sjálfbærar snyrtivörur nær út fyrir persónulega heilsu en með því að velja vörur úr endurnýjanlegum auðlindum eða jurtum getum við lagt okkar af mörkum til umhverfisverndar.

Fyrir áhugasama stinga ýmis námskeið upp kollinum með vissu millibili þar sem almenningur er hvattur til að kynna sér undirstöðuatriði við gerð smyrsla.

Einnig getur verið bæði gaman og gagnlegt að fara og tína grös sér til heilsubótar úti í náttúrunni, eða þang í fjörunni en á bókasöfnum finnst aragrúi bóka sem innihalda kosti jurtanna.

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum
Fréttir 16. október 2026

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum

Skæð fuglainflúensa hefur greinst í sýnum sem tekin voru úr villtum fuglum á Nor...

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir
Fréttir 16. október 2026

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir

Undanfarin fimm ár hefur Bjarki Þór Sólmundsson, matreiðslumeistari og myndlista...

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni
Fréttir 16. október 2026

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni

Kynslóðaskipti hafa orðið á garðyrkjustöðinni Hveratúni í Laugarási. Skúli Magnú...

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða
Fréttir 15. október 2026

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða

„Hagvöxtur trompar allt annað í áherslum stjórnvalda. En er hann besti mælikvarð...

Fékk nafnið Vafi
Fréttir 15. október 2026

Fékk nafnið Vafi

Eins og allir vita þá kasta hryssur á vorin og eitthvað fram eftir sumri en að þ...

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn
Fréttir 15. október 2026

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn

Í reiðhæfni, öryggi og hugrekki fær íslenski hesturinn hæstu einkunn allra kynja...

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra
Fréttir 14. október 2026

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra

Það er mikið um að vera hjá Reykjagarði á Hellu því þar er verið að byggja fjögu...

Kornskemman hefur tæplega undan
Fréttir 14. október 2026

Kornskemman hefur tæplega undan

Kornskemman, félag bænda í Eyjafirði, auglýsti móttöku á korni öðru sinni. „Við ...