Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 5 ára.
Björk og pabbi hennar Brynjar að sigta jarðgerðina í kjölfar gerjunar. Í fyrsta fasa tilraunarinnar var lagt upp úr því að læra bæði hratt og ódýrt og því minniháttar tækjabúnaður nýttur til að jarðgera fyrstu þrjú tonnin.
Björk og pabbi hennar Brynjar að sigta jarðgerðina í kjölfar gerjunar. Í fyrsta fasa tilraunarinnar var lagt upp úr því að læra bæði hratt og ódýrt og því minniháttar tækjabúnaður nýttur til að jarðgera fyrstu þrjú tonnin.
Mynd / Jarðgerðarfélagið
Líf og starf 6. apríl 2021

Nýting á mikilvægu hráefni fyrir hringrásarhagkerfið

Höfundur: smh

Í Rangárvallasýslu, á Strönd í Rangárþingi ytra, stendur nú yfir tilraunaverkefni þar sem lífrænn heimilisúrgangur er jarðgerður með svokallaðri bokashi-aðferð. Um samstarfsverkefni er að ræða á milli Jarðgerðarfélagsins, Sorpstöðvar Rangárvallasýslu og Landgræðslunnar.

Frumkvæðið að þessari tilraun, sem hófst sumarið 2020, á Björk Brynjarsdóttir stofnandi Jarðgerðar­félagsins sem er frumkvöðlafyrirtæki og vinnur með hringrásarlausnir í bokashi-jarðgerð fyrir sveitarfélög, fyrirtæki og einstaklinga.

Nýting á auðlind heimilisúrgangsins

Hugmyndafræðin gengur út á að fullvinna og nýta þá auðlind sem lífrænn heimilisúrgangur er. Helstu kostir aðferðarinnar eru að um staðbundna aðferð er að ræða, hún er orkunýtin, dregur úr losun gróðurhúsalofttegunda og lokaafurðina má nota til landgræðslu, skógræktar og endurheimt vistkerfa.

Bokashi-aðferðin er gerjunaraðferð sem er loftfirrð, hún er hraðvirkari en hefðbundin moltugerð; tekur einungis fáeinar vikur en að molta tekur gjarnan nokkra mánuði að lágmarki – og nánast engin lyktarmengun er af bokashi-aðferðinni. Dýr dragast ekki að lífræna úrganginum, auk þess sem hann er óaðgengilegur. Niðurbrotsferlinu er komið af stað með örverum sem blandað er saman við lífræna úrganginn.

Björk Brynjarsdóttir og Julia Miriam Brenner, stofnendur Jarðgerðarfélagsins.

Björk og samstarfskona hennar, Julia Miriam Brenner, standa að Jarðræktarfélaginu og tilraunarverkefninu. Björk segir að Rangárþing ytra hafi verið ákjósanlegur upphafs­reitur fyrir verklega starfsemi Jarðræktarfélagsins og því hafi hún hafi ákveðið að athuga hljómgrunninn hjá sveitarfélaginu. „Það var þegar til staðar ákveðin grunnflokkun á lífræna úrganginum og svo eru höfuðstöðvar Landgræðslunnar auðvitað staðsettar innan sveitar­félagsins, í Gunnarsholti.

Við erum mikið að fókusera á þetta með lífkerfi í forgangi, það er að segja bæði mannleg eða samfélagsleg lífkerfi og lífkerfi í jarðvegi – en ég er menntuð í samfélagshönnun og teymisþjálfun og Julia er jarðvegsfræðingur. Gott viðhorf og rökrétt, umhverfisvæn og staðbundin meðhöndlun á lífrænum hráefnum er svo frábært verkfæri til að byggja upp hringrásarsamfélög og hringrásarhugsun hjá fólki – og það er svo ótrúlega skýr ávinningur af því,“ segir Björk og telur að líklega sé þetta með fyrstu verkefnum sinnar tegundar í heiminum.

Góður skóli

„Við fórum svo inn í þetta verkefni þannig að við vildum læra sem mest, bæði hratt og ódýrt. Lykilspurningin var hvort þetta væri fýsileg leið fyrir sveitarfélög til að nýta þennan ónýtta lífræna úrgang – eða „hráefni“ sem ég kýs frekar að kalla þetta. Við unnum innan þess ramma sem þegar var til staðar í sorpflokkun og -söfnun í sýslunni; þar sem lífrænt er flokkað í maíspoka og sótt á tveggja vikna fresti. Íbúarnir hafa verið að flokka lífræna úrganginn frá 2019, í þeim tilgangi að hann fari síðan í iðnaðar­jarðgerð hjá Terra í Hafnarfirði. Ein af niðurstöðunum núna var til dæmis að maíspokarnir virka ekki til niðurbrots í bokashi-jarðgerð – og það kemur fram í niðurstöðum skýrslu um fyrsta fasa verkefnisins sem við vorum að klára.

Við erum svo nýlega komnar aftur af stað að leita eftir áhugasömum íbúum í Rangárvallasýslu sem væru til í að taka þátt í öðrum fasa verkefnisins, til að prófa aðeins öðruvísi flokkunarferli sem er sérstaklega hugsað fyrir bokashi-jarðgerð, en ekki iðnaðarjarðgerð. Þegar þeim fasa lýkur, vonandi í sumar eða snemma í haust, verður komin heildarniðurstaða fyrir verkefnið og sýslan fær þar með tækifæri til að ákveða hvort þau vilji innleiða bokashi-meðhöndlun að fullu á Strönd og stuðla þannig að staðbundinni hringrás,“ segir Björk.

Hún vonast til að fleiri sveitar­félög fylgi í kjölfarið og Ísland geti orðið leiðandi í þessum málum í nánustu framtíð. „Sérstaklega held ég að þetta sé vænlegt fyrir sveitarfélög á landsbyggðinni því það er bæði dýrt að reisa og reka iðnaðarjarðgerð. Flutningar á þessu hráefni eru líka kostnaðarsamar – fjárhagslega og loftslagslega – og auk þess missa þau þessi verðmæti út úr sveitarfélaginu. Svo getur lífræn áburðargjöf aukið hreysti jarðvegs, en hraustur jarðvegur hefur betri getu til að binda kolefni en eyddur jarðvegur.“

Tilraunin bar árangur

Í skýrslunni um fyrsta fasa verkefnisins kemur fram að þrjú tonn af lífrænu hráefni hafi verið gerjuð í fimm 660 lítra fiskikörum til að kanna hvort aðferðin gæti virkað innan núverandi ramma sorpflokkunar og -söfnunar í sýslunni. Þar með var kannað hvort maíspokar væru efniviður til gerjunar og reyndust þeir ekki henta í slíkt. Pappírspokar reyndust hins vegar ákjósanlegri.

Gerðir voru tilraunareitir þar sem birkigræðlingar voru gróðursettir með jarðgerðinni til að meta áhrif hennar á áburðarnotkun, að gerjun lokinni. Í skýrslunni kemur fram að bokashi-aðferðin hafi heilt yfir borið árangur, þar sem háefnið í fjórum af fimm körum var full gerjað að átta vikum loknum. Mun skemmri tíma tekur gerjunin í heimajarðgerð. Næringargildi jarðgerðarinnar var hátt. Hlutfall kolefnis og niturs var 15,7 sem gefur til kynna hátt innihald niturs miðað við kolefni. Lágt sýrustig var í jarðgerðinni eða 5,46, sem hefur bælandi áhrif á virkni metanógena og mögulegra sýkla og sjúkdómsvaldandi örvera.

Er dregin sú ályktun að þessar niðurstöður gefi til kynna að um sé að ræða bæði örugga og hverfisvæna meðhöndlun á lífrænu hráefni. Er aðferðin talin efnileg og skilvirk en tækifæri séu til að breyta örlítið heimaflokkun og meðhöndlunina á sorpstöð til að gera ferlið í Rangárvallasýslu enn skilvirkari og stöðugra. Með því að nýta hakkara, bæta heimilisflokkun og nota ekki maíspoka megi auka endurvinnslugetu bokashi-jarðgerðar í sýslunni.

Frá gróðursetningu birkigræðlingana í tilraunarreit við sorpstöðina Strönd síðasta haust, þar sem jarðgerðin var nýtt. Mynd / Jarðgerðarfélagið

Hlutverk Landgræðslunnar að prófa áburðinn

Fulltrúi Landgræðslunnar í verkefnisstjórn verkefnisins er Magnús H. Jóhannesson. „Landgræðslan leggur áherslu á að auka notkun lífrænna efna til uppgræðslu. Lífrænn áburður hentar langtímamarkmiðum uppgræðslu vel þar sem áburðarefnin brotna hægt niður og verða aðgengileg plöntum til lengri tíma. Það er líka í anda aukinnar sjálfbærnihugsunar að nýta allan lífrænan úrgang til góðra hluta í stað þess að urða hann eða farga með öðrum hætti. Næg eru tækifærin úti um allt land að nýta þetta efni til uppgræðslu eða ræktunar,“ segir hann.

„Hlutverk Landgræðslunnar í þessu verkefni er að prófa bokashi moltuna sem áburð til uppgræðslu. Gerðar verða samanburðartilraunir á bokashi moltunni og öðrum lífrænum áburði á rofnum melum í næsta nágrenni sorpstöðvarinnar. Tilraunirnar verða settar upp í vor og gróðurmældar í haust og svo árlega í a.m.k. tvö ár,“ segir Magnús.

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum
Fréttir 16. október 2026

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum

Skæð fuglainflúensa hefur greinst í sýnum sem tekin voru úr villtum fuglum á Nor...

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir
Fréttir 16. október 2026

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir

Undanfarin fimm ár hefur Bjarki Þór Sólmundsson, matreiðslumeistari og myndlista...

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni
Fréttir 16. október 2026

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni

Kynslóðaskipti hafa orðið á garðyrkjustöðinni Hveratúni í Laugarási. Skúli Magnú...

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða
Fréttir 15. október 2026

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða

„Hagvöxtur trompar allt annað í áherslum stjórnvalda. En er hann besti mælikvarð...

Fékk nafnið Vafi
Fréttir 15. október 2026

Fékk nafnið Vafi

Eins og allir vita þá kasta hryssur á vorin og eitthvað fram eftir sumri en að þ...

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn
Fréttir 15. október 2026

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn

Í reiðhæfni, öryggi og hugrekki fær íslenski hesturinn hæstu einkunn allra kynja...

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra
Fréttir 14. október 2026

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra

Það er mikið um að vera hjá Reykjagarði á Hellu því þar er verið að byggja fjögu...

Kornskemman hefur tæplega undan
Fréttir 14. október 2026

Kornskemman hefur tæplega undan

Kornskemman, félag bænda í Eyjafirði, auglýsti móttöku á korni öðru sinni. „Við ...