Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 7 mánaða.
Matreiðslunemar í Menntaskólanum í Kópavogi taka upp grænmeti í uppsveitum Árnessýslu síðastliðið haust.
Matreiðslunemar í Menntaskólanum í Kópavogi taka upp grænmeti í uppsveitum Árnessýslu síðastliðið haust.
Mynd / Dóra Svavarsdóttir
Fréttir 11. mars 2026

Nýr vettvangur frumframleiðenda og ferðaþjónustuaðila

Höfundur: Edda Kristín Sigurjónsdóttir

Slow Food á Íslandi stendur fyrir stefnumóti frumframleiðenda og ferðaþjónustunnar í uppsveitum Árnessýslu. Markmiðið er að hvetja til tengsla á milli hagaðila og leiða til að auka verðmæti.

Uppsveitir Árnessýslu eru matarkista þar sem sveitir eru blómlegar, mikill landbúnaður stundaður og gríðarlega mikil ferðaþjónusta. Stefnumót frumframleiðenda og ferðaþjónustunnar er hagnýtur tengslavettvangur fyrir bændur og aðra matvælaframleiðendur til að kynna afurðir sínar fyrir ferðaþjónustuaðilum, veitingastöðum, mötuneytum og fyrirtækjum sem vinna með mat og upplifanir á Suðurlandi. Stefnumótið sem Slow Food á Íslandi stendur fyrir fór fram í félagsheimilinu á Flúðum þann 10. mars.

Eftirspurn íslenskra og erlendra ferðamanna eftir staðbundnum mat og matarupplifunum hefur aukist og tækifæri gefst nú til að stytta aðfangakeðjuna og mynda bein tengsl á milli hagaðila í nærumhverfi.

„Okkur þykir kaldhæðnislegt að bílarnir sem keyra með vörur frá bændum mæta bílum sem koma með hráefni fyrir ferðaþjónustuaðila og aðra sem selja mat svo sem til veitingastaða og mötuneyta,“ segir Dóra Svavarsdóttir formaður Slow Food á Íslandi. Hugmyndin að stefnumótinu er að draga fram sérstöðu svæðisins og hvað er framleitt á því, fá yfirsýn og að hagaðilar geti myndað tengsl sín á milli.

Hugmyndin að viðburðinum kemur frá Dóru sem ætlaði að hafa samband við framleiðendur á Skagaströndinni á ferð sinni fyrir nokkrum árum en upplýsingar um hverjir það voru var hvergi að finna, hvorki hjá sveitarfélögum né neinum samtökum. Í samstarfi við byggðaþróunarfulltrúa Uppsveita Árnessýslu ákváðu Slow Food á Íslandi að skipuleggja viðburð og láta reyna á hugmyndina. Ætlunin er að útbúa yfirlit yfir frumframleiðendur og hafa það aðgengilegt á heimasíðu Slow Food á Íslandi og hjá byggðaþróunarfulltrúa, þannig að til að mynda fyrir þá sem langar að bjóða upp á morgunmat með gistingunni séu upplýsingar um framleiðendur í nærumhverfinu aðgengilegar.

Dagskráin stendur yfir frá 13.00–16.00 og samanstendur af stuttum erindum um tækifæri og áskoranir í milliliðalausri sölu og hvernig ferðaþjónusta og frumframleiðsla geta styrkt hvort annað. Framleiðendur munu kynna vörur sínar og gestir geta gengið á milli og skoðað úrvalið. Að lokum verður gestum boðið að skrá sig á 10 mínútna örfundi með þeim framleiðendum sem þeir vilja tengjast betur en slíkt fyrirkomulag hefur gefist vel á sambærilegum vettvangi erlendis.

Draumurinn er að taka öll landsvæði fyrir og kortleggja með þessu móti, segir Dóra, en vænlegast þótti að hefja leika í heimasveit hennar þar sem hún er öllum hnútum kunnug. Ef ekki sé hægt að koma slíku tengslaneti og yfirlit yfir frumframleiðendur á í uppsveitum Árnessýslu, sem er kjörlendi fyrir slíkt, þá muni það reynast erfitt alls staðar.

Dóra nefnir stjörnukokkinn Gísla á Ylju, nýopnuðum veitingastað í Laugaráslóninu og Bjarka Þór á veitingastaðnum Hvönn í Skálholti sem vinni þegar með staðbundið hráefni og hún vonast eftir að verði öðrum innblástur. Skipuleggjendur eru vongóðir um árangurinn og hvetja framleiðendur og gesti til að skrá sig á heimasíðu Slow Food á Íslandi, enginn sé of lítill framleiðandi eða of stór til að taka þátt og gestir muni geta gætt sér á kaffi og kruðeríi úr nærumhverfinu.

Óánægja vegna gjalds á þrjá ferðamannastaði
Fréttir 23. október 2026

Óánægja vegna gjalds á þrjá ferðamannastaði

Mikil óánægja í Bláskógabyggð með gjald á þrjá ferðamannastaði. Íbúar Bláskógaby...

Terraforming LIFE á leið í umhverfismat
Fréttir 23. október 2026

Terraforming LIFE á leið í umhverfismat

Áburðar- og lífgasverksmiðja Terraforming LIFE, sem fyrirhugað er að reisa í Þor...

Halla tekur á móti viðurkenningunni
Fréttir 23. október 2026

Halla tekur á móti viðurkenningunni

Sólskins-garðyrkjubóndinn Halla Sif Svansdóttir Hölludóttir tók á dögunum á móti...

Vilja fella tollabreytingar úr frumvarpi
Fréttir 23. október 2026

Vilja fella tollabreytingar úr frumvarpi

Bændasamtök Íslands gera verulegar athugasemdir við frumvarpsdrög fjármála- og e...

Geymdu korn í jarðgöngum
Fréttir 22. október 2026

Geymdu korn í jarðgöngum

Bændur í Suður-Þingeyjarsýslu brugðu á það ráð að keyra vagna með nýþresktu bygg...

Samtök sveitarfélaga í landbúnaði stofnuð
Fréttir 22. október 2026

Samtök sveitarfélaga í landbúnaði stofnuð

Formaður stjórnar SLS var kjörinn Jón Björn Hákonarson, sveitarstjóri í Eyjafjar...

Ágangur álfta töluverður
Fréttir 22. október 2026

Ágangur álfta töluverður

Íslenskir kornbændur glíma við sívaxandi álag vegna ágangs álfta sem setjast á a...

Álftir valda tjóni árlega
Fréttir 22. október 2026

Álftir valda tjóni árlega

Álftir herjar á akra og valda kornbændum tjóni ár hvert. Bændur segja ástandið v...