Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 4 ára.
Núverandi og fyrirhugaðar ljósleiðaratengingar  Íslands við útlönd. FARICE 1 var tengdur árið 2003. DANICE var tengdur 2009 og fyrirhugað er að tengja IRIS 2022. Núverandi og fyrirhugaðar ljósleiðaratengingar  Íslands við útlönd. FARICE 1 var tengdur árið 2003. DANICE var tengdur 2009 og fyrirhugað er að tengja IRIS 2022.
Núverandi og fyrirhugaðar ljósleiðaratengingar Íslands við útlönd. FARICE 1 var tengdur árið 2003. DANICE var tengdur 2009 og fyrirhugað er að tengja IRIS 2022. Núverandi og fyrirhugaðar ljósleiðaratengingar Íslands við útlönd. FARICE 1 var tengdur árið 2003. DANICE var tengdur 2009 og fyrirhugað er að tengja IRIS 2022.
Fréttir 26. maí 2021

Nýr ljósleiðarastrengur til Írlands í burðarliðnum

Höfundur: Hörður Kristjánsson

Staða ljósleiðaratenginga á Íslandi er í dag með því allra besta sem þekkist á heimsvísu. Þá hefur rík áhersla verið lögð á það á undanförnum árum að tryggja öryggi í fjarskiptatengingum við útlönd um fleiri sæstrengi. Eldgos gætu þó haft talsverð áhrif á þennan öryggisþátt landsins.

Þó ljósleiðari hafi verið lagður að stórum hluta um allt land, þá eiga símafyrirtækin eftir að ljúka lagningu á ljósleiðara síðasta spottann inn á fjölmörg heimili. Hefur skapast kurr í fólki víða um land út af þessu. Um þrettán þúsund heimili í þorpum og bæjum eru enn án tenginga. Þar hafa menn borið við þeirri afsökun að slíkar tengingar séu ekki nógu arðbærar. Þá á enn eftir að bæta í grunnnetið og tryggja hringtengingar og rekstraröryggi á einstökum svæðum með lagningu strengja á Suðausturlandi, Austurlandi og á sunnanverðum Vestfjörðum.

Haraldur Benediktsson, bóndi og alþingismaður, hefur verið ötull talsmaður uppbyggingar ljósleiðarakerfisins.

„Ég þekki til hundruð starfa sem hafa verið flutt í íslenskar sveitir eftir að tengingar bötnuðu. Ísland á að taka forustu í að leiða umræðu um þessa þróun og láta sig hana varða. Við erum líklega fyrsta landið í heiminum sem gengur jafn hraustlega til verks,“ sagði Haraldur í viðtali í Bændablaðinu 15. apríl síðastliðinn. Hvatti hann Bændasamtökin til að leiða áfram umræðuna um þessi mál og láta sig hana varða.

Tveir fjarskiptastrengir til landsins en gert ráð fyrir þrem

Í stefnu fyrir fjarskipti fyrir tímabilið 2019-2033 sem samþykkt var á Alþingi 2019 kemur fram að þrír virkir fjarskiptasæstrengir skuli tengja Ísland við Evrópu á hverjum tíma. Rökin eru margþætt en öryggissjónarmiðin þó mikilvægust. Jafnframt hefur atvinnulífið lagt þunga áherslu á að nýr fjarskiptasæstrengur verði lagður á næstu árum og að hann verði að fullu fjármagnaður af ríkissjóði.

Í dag erum við með tvær tengingar, þ.e. Farice 1, sem tekin var í notkun 2003 og er strengurinn tekinn á land á Seyðisfirði og Danice 1 sem komst í gagnið 2009 og var tekinn í land á Suðurlandi. Þessir strengir tengja Ísland við Skotland og Danmörku.

Nýr ljósleiðarastrengu frá Írlandi

Til stendur að leggja þriðja strenginn milli Írlands og Íslands sem lagður verður næsta sumar með landtöku við Grindavík. Eldgos á Reykjanesi vekur spurningar um hvort landtaka strengsins á þessum stað sé heppileg. Tengingar þaðan inn á meginkerfi landsins munu liggja þvert yfir sprungur í brotabelti Reykjanesskagans. Væntanlega er í þessu áhætta sem erfitt er að komast hjá. Mikilvæg gagnaver eru t.d. í Reykjanesbæ. Ef landtaka strengs frá Írlandi yrði á svipuðum slóðum og Danice strengurinn á Suðurlandi, yrði tengingar inn á Reykjanesið líka yfir sprungukerfi. Lagnir til höfuðborgarsvæðisins eru sama marki brenndar, nema mögulega þær sem koma hringleiðina að norðan.

Fjármögnun á nýjum sæstreng til Írlands tryggð

Á ríkisstjórnarfundi í september 2020 var samþykkt tillaga samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra og fjármála- og efnahagsráðherra þess efnis að tryggja fjármögnun nýs fjarskiptasæstrengs milli Íslands og Írlands. Strengurinn, sem hlotið hefur nafnið ÍRIS, mun liggja milli suðvesturhluta Íslands (Grindavík) og Galway á Írlandi og verður þriðji fjarskiptastrengurinn sem tengir Ísland við Evrópu. Ýmis tækifæri eru talin geta falist í beinni tengingu milli Íslands og Írlands fyrir íslensk fyrirtæki og almenning enda er Írlands ein helsta netmiðja Evrópu. Stefnt er að því að taka nýja strenginn í gagnið fyrir lok árs 2022 og árið 2023 hið síðasta. Farice áætlaði stofnkostnað við strenginn um 50 milljónir evra.

Undirbúningur hófst með samningi fjarskiptasjóðs við Farice ehf. í árslok 2018 um fyrsta fasa verkefnisins sem er botnrannsókn og hefur sleitulaust síðan verið unnið skipulega að margvíslegum undirbúningi. Farice vann að undirbúningi verkefnisins á árunum 2019 og 2020 með samningi við Fjarskiptasjóð. Farice hefur samið við Subcom LLC um framleiðslu og lagningu strengsins. Félagið er leiðandi í framleiðslu og framkvæmdum við neðansjávar fjarskiptasæstrengi í heiminum og hefur komið að slíkum verkefnum víða um heim.

Farice ehf., sem nú er í fullri eigu ríkisins, á og annast rekstur strengjanna. Frá því að FARICE-1 og DANICE strengirnir voru teknir í notkun hefur samfélagið orðið enn háðara öruggum fjarskiptatengingum við útlönd.

Rof á fjarskiptasambandi getur valdið miklu tjóni

Rof á fjarskiptasambandi, hvort sem er stutt eða langt, getur haft í för með sér verulegt tjón og óhagræði fyrir einstaklinga, fyrirtæki og efnahag landsins. Stjórnvöld hafa því lagt áherslu á að fjarskiptatengingar við Evrópu verði í gegnum þrjá sæstrengi sem koma á land á mismunandi landtökustöðum.

„Það er nauðsynlegt að endurnýja kerfið tímanlega þar sem Farice-strengurinn er kominn til ára sinna. Að auki er skjót uppfærsla útlandasambanda jafnvel enn brýnni nú þegar samgöngur í heiminum eru takmarkaðar um ófyrirséðan tíma vegna Covid-19,“ sagði Sigurður Ingi Jóhannsson samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra á síðastliðnu hausti.

„Til lengri tíma litið er enn fremur mikilvægt út frá viðskiptasjónarmiðum og samkeppnishæfni, að tryggja fullnægjandi tengingar við umheiminn sem þjónað geta kröfuhörðum og eftirsóknarverðum viðskiptavinum. Betri tengingar við landið styðja jafnframt við nýsköpun, þekkingariðnað og ýmis önnur tækifæri til atvinnu-, menningar- og verðmætasköpunar.“

Skylt efni: ljósleiðari

Þrjátíu þjóðerni í Rangárþingi ytra
Fréttir 30. apríl 2026

Þrjátíu þjóðerni í Rangárþingi ytra

Laugardaginn 9. maí verður fjölmenningarhátíð haldin í íþróttahúsinu á Hellu frá...

Fjölmenni á Skeifudeginum á sumardaginn fyrsta
Fréttir 29. apríl 2026

Fjölmenni á Skeifudeginum á sumardaginn fyrsta

Skeifudagurinn fór fram á sumardaginn fyrsta að Mið-Fossum í blíðskaparveðri. Vi...

Kílómetragjald á dráttarvélum
Fréttir 25. apríl 2026

Kílómetragjald á dráttarvélum

Bændasamtök Íslands auglýsa eftir bændum sem hafa orðið varir við að kílómetragj...

Nýtt myndband um burðarhjálp
Fréttir 24. apríl 2026

Nýtt myndband um burðarhjálp

Nýtt myndband hefur verið sett inn á YouTube-rásina Leiðbeiningar um burðarhjálp...

Hótanir í garð starfsmanna Matvælastofnunnar
Fréttir 24. apríl 2026

Hótanir í garð starfsmanna Matvælastofnunnar

Í tilkynningu frá Matvælastofnun kemur fram að starfsfólk þess hafi orðið fyrir ...

Guðmundur Vernharðsson hjá Mörk í Útvarpi Bændablaðsins
Fréttir 22. apríl 2026

Guðmundur Vernharðsson hjá Mörk í Útvarpi Bændablaðsins

Í þættinum er rætt við Guðmund Vernharðsson hjá Gróðrarstöðinni Mörk í Reykjavík...

Skaðleg áhrif varnarefnis á lýðheilsu og lífríki
Fréttir 22. apríl 2026

Skaðleg áhrif varnarefnis á lýðheilsu og lífríki

Hertar reglur um innflutning á vörum sem innihalda skordýraeitrið thiamethoxam t...

Fyrsti Angus-holdakálfur hjá Nautís í vor
Fréttir 21. apríl 2026

Fyrsti Angus-holdakálfur hjá Nautís í vor

Nýlega kom fyrsti kálfur vorsins í heiminn hjá Nautís á Stóra-Ármóti í Flóahrepp...