Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 7 mánaða.
Nýr framkvæmdastjóri ráðinn
Mynd / Úr safni
Fréttir 18. mars 2026

Nýr framkvæmdastjóri ráðinn

Höfundur: Magnús Hlynur Hreiðarsson
Berglind Guðmundsdóttir

Hestamannafélagið Sprettur á höfuðborgarsvæðinu hefur ráðið Berglindi Guðmundsdóttur í fullt starf sem framkvæmdastjóra.

Berglind hefur stundað hesta- mennsku í mörg ár en hún er menntaður viðskiptafræðingur með meistaragráðu í fjárfestingastjórnun. Á árunum 20152017 sat Berglind í stjórn Spretts, var gjaldkeri félagsins og þekkir því vel til rekstursins.

„Ég mun hefja störf í byrjun mars og hlakka mikið til að takast á við nýtt hlutverk og fá tækifæri til að vinna fyrir það öfluga félag sem hestamannafélagið Sprettur er. Hlutverk framkvæmdastjóra er í grunninn að tryggja að daglegur rekstur félagsins gangi vel, styðja stjórn í stefnumótun, skipulagi og fjármálum félagsins ásamt því að vera í góðum samskiptum við félagsmenn, samstarfsaðila og bæjarfélögin. Það er mikilvægt að hlúa vel að félaginu og því fjölbreytta starfi sem þar er,“ segir Berglind.

Sprettur er eitt af stærstu hestamannafélögum landsins með um 1300 félagsmenn í dag og tilheyrir félagið bæði Kópavogi og Garðabæ.

Í Spretti hafa félagsmenn aðgang að skemmtilegum reiðleiðum, reiðvöllum og tveimur reiðhöllum sem eru vel nýttar til þjálfunar, námskeiðs- og keppnishalds. En hvernig metur Berglind stöðu hestamennskunnar?

„Staða hestamennskunnar á Íslandi er almennt góð og hestamenn metnaðarfullir bæði í tengslum við mótshald, námskeið, reiðleiðir, ferðalög um landið okkar, uppbyggingu aðstöðu og ræktun. Fjöldi barna og ungmenna er töluverður í félaginu og áhugi fyrir hestamennskunni mikill. Hestamennska hefur mikið forvarnargildi líkt og önnur íþróttaiðkun og því er mikilvægt að hlúa vel að unga fólkinu og styrkja það í áhugamálinu,“ segir Berglind og bætir við. „Hestarnir hafa verið hluti af mínu lífi frá barnsaldri, tengslin við hrossin, náttúruna og að sjálfsögðu allt frábæra fólkið í kringum þessa íþrótt gerir þetta svo skemmtilegt og nærandi.“

Berglind segir mikla spennu fyrir Landsmóti hestamanna, sem fer fram á Hólum í Hjaltadal í sumar. „Jú, það er gríðarlega spennandi að landsmót sé fram undan, það er alltaf mikil stemning í kringum þessi stórmót og að sjálfsögðu stefnir Sprettur á að mæta sterkt til leiks á Landsmóti í sumar með öflugan hóp knapa og hesta,“ segir Berglind.

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn
Fréttir 28. október 2026

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn

Í sumar var endurnýjaður samningur Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins (RML) við ...

Verðhækkun um 2,5% tryggð
Fréttir 28. október 2026

Verðhækkun um 2,5% tryggð

Bændur huga brátt að áburðarmálum næsta ræktunartímabils. Í rúmlega 10 ár hefur ...

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir
Fréttir 28. október 2026

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir

Stjórn Byggðastofnunar hefur ákveðið að auka fjárframlög til verkefnisins Brothæ...

Sjálfbær þróun með sólarorku
Fréttir 27. október 2026

Sjálfbær þróun með sólarorku

Eins og frá var greint í síðasta tölublaði Bændablaðsins er stærsta birtuorkuver...

Þór hf. hættir með DEUTZ-FAHR dráttarvélar
Fréttir 27. október 2026

Þór hf. hættir með DEUTZ-FAHR dráttarvélar

Þór hf. og SDF hafa komist að sameiginlegri niðurstöðu um að ljúka samstarfi um ...

Samræmdar aðferðir þróaðar við vöktun á rusli í vatni
Fréttir 27. október 2026

Samræmdar aðferðir þróaðar við vöktun á rusli í vatni

Matís stýrir stóru evrópsku verkefni sem felst í að þróa samræmdar og hagkvæmar ...

Áform um matvælakjarna  og votlendissetur
Fréttir 27. október 2026

Áform um matvælakjarna og votlendissetur

Hjá Landbúnaðarháskóla Íslands (LbhÍ) er í undirbúningi verkefni sem felst í að ...

Skinka úr íslensku svínakjöti
Fréttir 26. október 2026

Skinka úr íslensku svínakjöti

Stjörnugrís er eini framleiðandinn sem framleiðir skinku aðeins úr íslensku svín...