Núðlur & nautarif
Matarkrókurinn 2. september 2026

Núðlur & nautarif

Höfundur: Hafliði Halldórsson

Fyrr á árinu fjallaði pistill minn um þrýstipotta og það hvernig ódýrari en seigir vöðvar njóta sín í slíkum pottum. Seigari vöðvar geta verið fljóteldaðir og afskaplega meyrir þegar rétt er farið með. Ég ætla að taka hér upp þráðinn og gefa uppskrift að einföldum núðlurétti með nautarifjum. Svona réttir eru einföld leið til að tryggja að afgangar í ísskápnum nýtist og þess vegna er bara frekar fínt ef þið breytið og bætið eftir efnum og aðstæðum.

Núðlur eru til í ýmsum tegundum og þurfa mismunandi eldun, ég mæli þess vegna með því að þið lesið á pakkann og eldið eftir leiðbeiningum framleiðenda.

Núðlur með nautarifjum, soja, sesam, eldpipar og eggjum

400 g elduð nautarif

4 egg

1 l nautasoð (úr eldun á nautarifjum)

1 laukur

4 hvítlauksrif

1–2 eldpipar

2 cm biti engifer

3 msk. sesamolía

½ dl sojasósa

4 msk. sesam

4 msk eplaedik

Svartur pipar

Núðlur

2 stk. vorlaukur

Byrjið á að sjóða egg eftir smekk, kæla og skræla. Því næst skrælið og skerið grænmetið, lauk í sneiðar, hvítlauk og engifer í smáa bita og eldpipar og vorlauk í þunnar sneiðar. Hitið víðan pott og svitið allt grænmetið nema vorlauk í 2–3 mínútur. Bætið soði, ediki og sojasósu við og sjóðið rólega. Hitið nautarifin í soðinu samtímis og smakkið til. Hér vantar e.t.v. meiri sojasósu, eldpipar, edik eða pipar.

Sjóðið núðlur eftir leiðbeiningum framleiðenda og bætið í pottinn og berið fram í djúpum skálum með egginu og stráið sesamfræjum og vorlauk yfir.

Nautarif elduð í þrýstipotti

1,5 kg nautarif

salt

pipar

matarolía

½ hvítlaukur, skorinn í tvennt

1 laukur

2 lárviðarlauf

1 msk timjan, þurrkað

1 msk. kórenderfræ

3 dl rauðvín (má sleppa)

1 l nautasoð (má nota vatn)

3 msk. eplaedik

Byrjið á að salta nautarifin ríkulega og brúna í 180 °C heitum ofni í 30 mínútur. Hitið þrýstipottinn án loks, skerið lauk í sneiðar og svitið í pottinum með hvítlauk, olíu og öllu kryddinu. Bætið öllum vökvanum í pottinn ásamt nautarifjum, lokið pottinum og náið upp suðu/þrýsingi og lækkið svo hitann. Sjóðið í 60 mínútur, slökkvið svo undir og hleypið gufu út með ventlinum, kælið pottinn, opnið varlega og fjarlægið rifin, sigtið soðið í annan pott og sjóðið niður fyrir sósu.

Ef þið eigið ekki þrýstipott þá mæli ég með eftirfarandi, allt ferlið er það sama nema að þið setjið allt í ofnfast mót og lokið með álpappír, eða ofnpott með loki og eldið í ofninum á 90 °C í 6 klst eða á 120 °C í 4 klst.

Þrýstipottur í mitt eldhús?

Þrýstipottur er mjög handhægt tæki sem að mínu viti á heima í öllum eldhúsum og voru ansi víða til hér áður. Með þrýstipotti má elda hratt bita sem annars þurfa afar langan eldunartíma, tryggja góða niðurstöðu, spara tíma og bæta nýtingu á hráefnum, s.s. seigum kjötbitum. Tímasparnaður er oft miðaður við helmingun hefðbundins tíma, en getur verið enn meiri.

Tæknin er einföld, potturinn er með öryggisloki, og er virkjaður með því að loka þétt með hráefnum og vökva, s.s. kjötsoði eða vatni. Potturinn hitnar í allt að 120 °C sem myndar háþrýsting sem flýtir fyrir eldun. Eldun á kjöti í þrýstipotti gefur mjúka, bragðgóða bita, auk þess gefur aðferðin hratt soð eða sósugrunn og er oft notuð við soðgerð þegar bein og grænmeti er soðið í pottinum. Best er að nota aðferðina á þá bita sem eru seigir og þurfa langa eldun eins og t.d. nautarif, skanka af ýmsum dýrum og fleiri slíka bita. Ekki fyrir bita eins og lundir, hryggvöðva eða aðra bita sem við flest eldum minna og höfum bleika eða rauða í miðjunni.

Varist að fylla þrýstipott aldrei meira en að tveimur þriðju þar sem gufan þarf ákveðið rými. Á pottinum er ventill sem stýrir því hversu mikil gufa kemst út. Ventillinn hefur alla jafna þrjár stillingar sem er mikilvægt að skilja og fylgja samkvæmt leiðbeiningum framleiðenda. Í lok eldunartíma þarf að gæta þess að opna ekki pottinn fyrr en hann hefur kólnað nóg og þrýstingurinn hefur slaknað þannig að engin gufa komi lengur út um ventilinn. Það má líka færa pottinn (lokaðan) í vaskinn og kæla í vatni til að flýta hér fyrir. Þrýstipotta má finna í góðum verslunum, jafnvel slæmum ef vel er að gáð.

Skylt efni: matarkrókur

Annað innbrot í svínabú Stjörnugríss
Fréttir 2. september 2026

Annað innbrot í svínabú Stjörnugríss

Annað innbrot átti sér stað í morgun þegar að svínum Stjörnugríss var sleppt út ...

Fjölbreytt verkefni fram undan
Fréttir 2. september 2026

Fjölbreytt verkefni fram undan

Hjá Byggðastofnun er ýmislegt á döfinni með haustinu, en m.a. hefur stjórnin ákv...

Málþing um vinnu, Sturlungu, goðafræði og Gerplu
Fréttir 2. september 2026

Málþing um vinnu, Sturlungu, goðafræði og Gerplu

Málþing var haldið í Kakalaskála laugardaginn 29. ágúst klukkan 14 þar sem fjóri...

Bókmenntahátíðin Haustgildi næstu helgi
Fréttir 2. september 2026

Bókmenntahátíðin Haustgildi næstu helgi

Haustgildi, bókmenntahátíð Bókabæjanna austanfjalls, verður haldin dagana 5. og ...

Halla Sif meðal 100 kvenhetja
Fréttir 2. september 2026

Halla Sif meðal 100 kvenhetja

Halla Sif Svansdóttir Hölludóttir, garðyrkjubóndi og eigandi Sólskins grænmetis,...

Óska eftir tilnefningum fyrir framúrskarandi árangur í lífrænni ræktun
Fréttir 1. september 2026

Óska eftir tilnefningum fyrir framúrskarandi árangur í lífrænni ræktun

Atvinnuvegaráðuneytið óskar eftir tilnefningum til viðurkenningar fyrir framúrsk...

Gjaldtaka hafin á nýjum hringveg um Hornafjörð
Fréttir 1. september 2026

Gjaldtaka hafin á nýjum hringveg um Hornafjörð

Gjaldtaka á nýjum hringveg um Hornafjörð hófst í dag. Vegurinn var opnaður fyrir...

Auglýst eftir umsækjendum um stuðning til söfnunar ullar
Fréttir 1. september 2026

Auglýst eftir umsækjendum um stuðning til söfnunar ullar

Atvinnuvegaráðuneytið auglýsir eftir umsækjendum um stuðning til söfnunar ullar ...