Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en mánaðar gamalt.
Nú tekur vinnan við
Skoðun 10. september 2026

Nú tekur vinnan við

Höfundur: Margrét Gísladóttir
Margrét Gísladóttir.

Niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslunnar liggur nú fyrir og meirihluti kjósenda vill ekki að Ísland hefji að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið. Mjótt var á mununum og því er mikilvægt að sýna ólíkum sjónarmiðum virðingu, virða niðurstöðuna, leggja deiluna til hliðar og beina kröftunum að þeim sameiginlegu verkefnunum sem bíða okkar hér heima.

Nei við aðildarviðræðum var ekki nei við Evrópu, alþjóðlegu samstarfi eða framförum. Ísland er og verður Evrópuþjóð. Við eigum í nánu samstarfi við okkar vina- og viðskiptaþjóðir í gegnum EES, EFTA, Schengen og fjölmargar samstarfsáætlanir. Við höfum eftir sem áður aðgang að hugmyndum, þekkingu, mörkuðum og samstarfi um rannsóknir og nýsköpun svo fátt eitt sé nefnt. Niðurstaðan þýðir heldur ekki að allt eigi að vera óbreytt. Þvert á móti. Hún felur í sér ábyrgð og tækifæri til að móta áfram íslenskt atvinnulíf og íslenska matvælaframleiðslu á okkar forsendum. Við búum við fjölmörg tækifæri sem teljast öfundsverð og þau eigum við að nýta til að vinna sameiginlega að bættum almannahag.

Framþróun í takt við íslenskar þarfir

Íslenskur landbúnaður er ekki safngripur sem bannað er að snerta. Hann hefur verið í stöðugri þróun og sú þróun heldur áfram. Sama á við um fyrirtækin sem vinna úr landbúnaðarafurðum og þjónusta greinina. Félagsmenn Samtaka fyrirtækja í landbúnaði eru fjölbreytt fyrirtæki um allt land sem skapa verðmæti úr íslenskum auðlindum, tryggja bændum markað fyrir afurðir sínar og standa undir mikilvægum störfum í fjölmörgum byggðarlögum.

Tækifærin fram undan eru stór. Íslensk matvælaframleiðsla býr að góðri dýraheilsu, lítilli sýklalyfjanotkun, hreinni orku, rekjanleika og sterkri tengingu við uppruna afurðanna. Með aukinni sjálfvirkni, betri nýtingu hráefna, aukinni stærðarhagkvæmni, orkuskiptum og þróun nýrra afurða má skapa meiri verðmæti, bæta framleiðni og sækja fram.

Við höfum jafnframt frelsi til að horfa til allra átta þegar kemur að mótun landbúnaðarkerfisins. Við getum sem dæmi lært af norskum fjárfestingarúrræðum, finnskum byggðaaðgerðum og evrópskum umhverfis- og nýsköpunarverkefnum, en einnig horft til reynslu annarra ríkja utan Evrópu, svo sem Bretlands og Kanada, varðandi stuðning við matvælaframleiðslu og atvinnulíf í dreifðum byggðum. Við getum tekið upp þær lausnir sem gagnast íslenskum aðstæðum, lagað þær að okkar þörfum og látið annað eiga sig. Það er verðmætt svigrúm sem við eigum að nýta af krafti.

Ákall um stöðugleika og tiltekt

En bjartsýni ein og sér dugar ekki. Háir vextir, verðbólga, fjármagnskostnaður, dýrir flutningar og sífellt umfangs- meira regluverk draga úr getu fyrirtækja til að fjárfesta og vaxa. Smár og landfræðilega dreifður markaður gerir það enn mikilvægara að fyrirtæki búi við fyrirsjáanlegt og samkeppnishæft starfsumhverfi.

Næstu skref eru því skýr. Ná þarf niður verðbólgu og vöxtum, einfalda regluverk og eftirlit og skapa hvata til fjárfestinga í nýsköpun, tækni og umhverfisvænum lausnum. Stjórnvöld þurfa einnig að gæta íslenskra hagsmuna betur við mótun og innleiðingu EES-reglna, aðlaga að raunverulegum aðstæðum hér á landi og forðast að ganga lengra en þörf krefur sem leggur meiri byrðar á íslensk fyrirtæki en samkeppnisaðila þeirra.

Lausnirnar eru að stórum hluta í okkar eigin höndum. Nú er tími til að bretta upp ermar, styrkja samkeppnishæfni íslenskrar matvælaframleiðslu og skapa fyrirtækjum um allt land skilyrði til að fjárfesta, vaxa og sækja fram. Við þurfum ekki að bíða eftir öðrum til að ráðast í þessi verkefni.

Höfundur er framkvæmdastjóri SAFL.

Skylt efni: Vinkill

Fengju reikning fyrir skemmdum með nýju frumvarpi
Fréttir 23. október 2026

Fengju reikning fyrir skemmdum með nýju frumvarpi

Stjórnvöld fengju auknar heimildir til að bregðast við ólögmætum utanvegaakstri ...

Ákall um að verja landbúnaðarstefnuna
Fréttir 23. október 2026

Ákall um að verja landbúnaðarstefnuna

Stokkhólmsyfirlýsing evrópskra bænda er afdráttarlaus og hvetur ráðamenn ríkja E...

Sýknuð vegna ágangs sauðfjár
Fréttir 23. október 2026

Sýknuð vegna ágangs sauðfjár

Héraðsdómur Austurlands hefur sýknað Fjarðabyggð af kröfu Hrefnu Dagbjartar Arna...

Fuglavernd mótmælir harðlega skotveiðum á bjargdúfum í Vestmannaeyjum
Fréttir 23. október 2026

Fuglavernd mótmælir harðlega skotveiðum á bjargdúfum í Vestmannaeyjum

Stjórn Fuglaverndar sendi nýlega bréf á umhverfis- orku og loftlagsráðuneytinið ...

Óánægja vegna gjalds á þrjá ferðamannastaði
Fréttir 23. október 2026

Óánægja vegna gjalds á þrjá ferðamannastaði

Mikil óánægja í Bláskógabyggð með gjald á þrjá ferðamannastaði. Íbúar Bláskógaby...

Terraforming LIFE á leið í umhverfismat
Fréttir 23. október 2026

Terraforming LIFE á leið í umhverfismat

Áburðar- og lífgasverksmiðja Terraforming LIFE, sem fyrirhugað er að reisa í Þor...

Halla tekur á móti viðurkenningunni
Fréttir 23. október 2026

Halla tekur á móti viðurkenningunni

Sólskins-garðyrkjubóndinn Halla Sif Svansdóttir Hölludóttir tók á dögunum á móti...

Vilja fella tollabreytingar úr frumvarpi
Fréttir 23. október 2026

Vilja fella tollabreytingar úr frumvarpi

Bændasamtök Íslands gera verulegar athugasemdir við frumvarpsdrög fjármála- og e...