Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 6 ára.
Nú er tíminn til að efla innlenda matvælaframleiðslu
Lesendarýni 20. apríl 2020

Nú er tíminn til að efla innlenda matvælaframleiðslu

Höfundur: Karl Gauti Hjaltason

Sjúkdómar og faraldrar hafa hrjáð mannkynið um aldir. Með tilkomu lyfja, auknu hreinlæti og betri heilbrigðisþjónustu höfum við náð að bæta almennt heilbrigði. Á móti kemur að ferðalög heimshorna á milli er nú á færi stórs hluta mannskyns.

Útbreiðsla smitsjúkdóma hring­inn í kringum veröldina getur því gerst á undra skömmum tíma.

Tímamót

Heimurinn stendur á tímamótum, nú þegar ný tegund veiru herjar á. Þótt veiran sé skæð sýnist hún ekki eins illvíg og margar þær sem mannkynið hefur áður þurft að takast á við. En nú ber nýrra við, því hraði útbreiðslunnar er með áður óþekktum hætti. Öflug efnahagskerfi veraldar riða nánast samtímis til falls og enginn veit hver áhrifin verða til lengri tíma. Viðbúið er að veröldin muni líta öðruvísi út þegar þessum faraldri linnir. Hver hefði búist við því að ferðafrelsi yrði heft með þeim hætti sem flest lönd hafa tekið upp? Og það í lýðræðisþjóðfélögum nútímans.

Fæðuöryggi

Í svari dómsmálaráðherra við fyrirspurn sem ég lagði fram fyrr í vetur um þjóðaröryggi og fæðuöryggi kom fram að ekki liggur fyrir sérstök viðbragðsáætlun ef flutningsleiðir til landsins lokast skyndilega eða teppast. Maður skyldi ætla að stjórnvöld hefðu skoðað þennan möguleika, ekki síst eftir reynslu síðustu ára. Það hefur gerst að minnsta kosti þrisvar sinnum á síðustu árum að slík staða var ekki fjarlægur möguleiki, fyrst vegna heimsfaraldurs inflúensu 2008, síðan vegna hrunsins og loks vegna Eyjafjallagossins. Allir þessir atburðir gátu, ef allt færi á versta veg, valdið vöruskorti hér á landi, um lengri eða skemmri tíma.

Eldsneyti til tveggja vikna

Í fyrirspurninni spurði ég sérstaklega um matvæli, eldsneyti og lyfja­birgðir. Þrátt fyrir að vera matvælaframleiðsluþjóð, er augljóst að til að afla hráefna til þeirrar framleiðslu þarf eldsneyti, ella stöðvast mest öll framleiðsla þeirra vara. Í svari ráðherra kom fram að birgðir eldsneytis í landinu geta minnst verið til tveggja vikna.

Matvæli, eldsneyti og lyf

Þjóð, sem býr lengst úti í hafi, getur ekki leyft sér að vera vanbúin að þessu leyti, við getum ekki bara yppt öxlum og treyst á tíðar skipakomur og að innflutningur matvæla sé ætíð tryggur. Nú er rétti tíminn til að styrkja stoðir innlendrar matvælaframleiðslu, skjóta tryggum stoðum undir framleiðslu mjólkur, kjöts og eggja í landbúnaði og stórefla grænmetisræktun. Við búum svo vel að hafa aðgang að nægri raforku og höfum alla burði til að vera sem mest sjálfum okkur næg um matvæli.

Loftslagsáhrif flutninga

Um leið og íslensk matvælaframleiðsla væri efld sparast langir flutningar með vörur landa og heimsálfa á milli. Áhrif umsvifa mannsins á umhverfi sitt, ekki hvað síst á loftslag, er flestum mikið áhyggjuefni. Ef vörur eru framleiddar sem næst neytandanum væri unnt að minnka þá mengun sem er tilkomin vegna flutninga með matvæli sem unnt er að rækta eða vinna innanlands.

Framleiðum okkar matvæli innanlands

Ástandið nú vegna veiru­far­aldursins ætti að kenna okkur að við þurfum að geta brauðfætt okkur af því sem unnt er að framleiða hér innanlands. Landbúnaðarframleiðsla okkar á undir högg að sækja fyrir margra hluta sakir, hún getur illa keppt við oft niðurgreiddar og verksmiðjuframleiddar vörur stórþjóðanna. Holl, hrein og örugg vara íslenskra bænda er dýrari en kjötmeti framleitt með aðstoð sýklalyfja við óheilbrigðar aðstæður. Sláum tvær flugur í einu höggi, minnkum kolefnisfótspor okkar og eflum í leiðinni íslenska framleiðslu, sem er gjaldeyrissparandi og viðheldur þekkingu á framleiðsluaðferðum hér innanlands.

Karl Gauti Hjaltason
Höfundur er þingmaður
Miðflokksins í Suðurkjördæmi
kgauti@althingi.is 

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum
Fréttir 16. október 2026

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum

Skæð fuglainflúensa hefur greinst í sýnum sem tekin voru úr villtum fuglum á Nor...

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir
Fréttir 16. október 2026

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir

Undanfarin fimm ár hefur Bjarki Þór Sólmundsson, matreiðslumeistari og myndlista...

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni
Fréttir 16. október 2026

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni

Kynslóðaskipti hafa orðið á garðyrkjustöðinni Hveratúni í Laugarási. Skúli Magnú...

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða
Fréttir 15. október 2026

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða

„Hagvöxtur trompar allt annað í áherslum stjórnvalda. En er hann besti mælikvarð...

Fékk nafnið Vafi
Fréttir 15. október 2026

Fékk nafnið Vafi

Eins og allir vita þá kasta hryssur á vorin og eitthvað fram eftir sumri en að þ...

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn
Fréttir 15. október 2026

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn

Í reiðhæfni, öryggi og hugrekki fær íslenski hesturinn hæstu einkunn allra kynja...

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra
Fréttir 14. október 2026

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra

Það er mikið um að vera hjá Reykjagarði á Hellu því þar er verið að byggja fjögu...

Kornskemman hefur tæplega undan
Fréttir 14. október 2026

Kornskemman hefur tæplega undan

Kornskemman, félag bænda í Eyjafirði, auglýsti móttöku á korni öðru sinni. „Við ...