Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 7 mánaða.
Norska stórþingið fellir tillögu um að athuga aðild að ESB
Mynd / Úr safni
Fréttir 17. mars 2026

Norska stórþingið fellir tillögu um að athuga aðild að ESB

Höfundur: Þröstur Helgason

Tæplega 79% þingmanna norska stórþinginu greiddu í liðinni viku atkvæði gegn þingsályktunartillögu þingmanna Venstre um að ríkis- stjórn Noregs léti kanna möguleika á aðild ríkisins að Evrópusambandinu.

Tillagan var felld með 78 atkvæðum gegn 21 en 70 þingmenn tóku ekki þátt í atkvæðagreiðslunni.

Tillögur um að auka tengsl Noregs við Evrópusambandið voru einnig felldar, þar á meðal tillaga um að hefja viðræður við ESB um nánara samstarf á sviði sameiginlegrar öryggis- og varnarstefnu.

Tillögur um að Noregur félli undir ákvæði Lissabon-sáttmálans um sam- eiginlegar varnir og að Noregur sækti um aðild að tollabandalagi Evrópu- sambandsins voru einnig felldar.

Þessar tillögur voru felldar með 91 atkvæði gegn sjö. Venstre er fylgjandi aðild Noregs að Evrópusambandinu eins og Hægriflokkurinn og Umhverfis- flokkurinn en aðrir flokkar Stórþingsins eru andvígir.

Verkamannaflokkurinn, sem leiðir núverandi minnihlutastjórn, hefur þó ekki tekið skýra afstöðu með eða á móti inngöngu.

Tvívegis hafa Norðmenn hafnað aðild að ESB í þjóðaratkvæðisgreiðslu árin 1972 og 1994.

Skylt efni: esb | Noregur

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn
Fréttir 28. október 2026

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn

Í sumar var endurnýjaður samningur Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins (RML) við ...

Verðhækkun um 2,5% tryggð
Fréttir 28. október 2026

Verðhækkun um 2,5% tryggð

Bændur huga brátt að áburðarmálum næsta ræktunartímabils. Í rúmlega 10 ár hefur ...

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir
Fréttir 28. október 2026

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir

Stjórn Byggðastofnunar hefur ákveðið að auka fjárframlög til verkefnisins Brothæ...

Sjálfbær þróun með sólarorku
Fréttir 27. október 2026

Sjálfbær þróun með sólarorku

Eins og frá var greint í síðasta tölublaði Bændablaðsins er stærsta birtuorkuver...

Þór hf. hættir með DEUTZ-FAHR dráttarvélar
Fréttir 27. október 2026

Þór hf. hættir með DEUTZ-FAHR dráttarvélar

Þór hf. og SDF hafa komist að sameiginlegri niðurstöðu um að ljúka samstarfi um ...

Samræmdar aðferðir þróaðar við vöktun á rusli í vatni
Fréttir 27. október 2026

Samræmdar aðferðir þróaðar við vöktun á rusli í vatni

Matís stýrir stóru evrópsku verkefni sem felst í að þróa samræmdar og hagkvæmar ...

Áform um matvælakjarna  og votlendissetur
Fréttir 27. október 2026

Áform um matvælakjarna og votlendissetur

Hjá Landbúnaðarháskóla Íslands (LbhÍ) er í undirbúningi verkefni sem felst í að ...

Skinka úr íslensku svínakjöti
Fréttir 26. október 2026

Skinka úr íslensku svínakjöti

Stjörnugrís er eini framleiðandinn sem framleiðir skinku aðeins úr íslensku svín...