Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 3 ára.
Ársgömul TTS-herfing í frjósömu graslendi. Í slíku landi eru ummerki jarðvinnslu mjög fljót að hverfa
Ársgömul TTS-herfing í frjósömu graslendi. Í slíku landi eru ummerki jarðvinnslu mjög fljót að hverfa
Mynd / Þröstur Eysteinsson
Lesendarýni 2. september 2022

Nokkur orð um jarðvinnslu

Höfundur: Þröstur Eysteinsson, skógræktarstjóri

TTS-herfing er væg aðferð við jarðvinnslu til skógræktar miðað við aðrar aðferðir sem völ er á.

Þröstur Eysteinsson.

Sárin gróa fljótt og jarðvinnslan eykur lífslíkur trjánna, flýtir fyrir vexti þeirra og þar með þeim árangri sem vænst er af viðkomandi skógræktarverkefni.

Ljósmyndir af skógræktarsvæðum sem unnin hafa verið með TTS-herfi sýna að ummerkin eru fljót að hverfa.

Upp hefur komið nokkur umræða um jarðvinnslu sem gjarnan er stunduð í skógrækt og gætir þar stundum nokkurs misskilnings. Í þeirri umræðu er ýmsu haldið fram sem ekki stenst nánari skoðun. Því er rétt að segja frá tilgangi og afleiðingum jarðvinnslu.

Tilgangurinn með jarðvinnslu er einkum þríþættur; 1) að skapa gróðursetningarset þar sem samkeppni annars gróðurs við ungar trjáplöntur er minnkuð, 2) að auka sumarhita jarðvegs og 3) að auðvelda gróðursetningu. Allt eykur þetta lifun og vöxt trjánna og minnkar kostnað við skógrækt. Afföll eru kostnaðarsöm. Kostnaður við það að 20% nýgróðursettra plantna drepist er um kr. 100.000 á hvern hektara lands. Því er mjög mikilvægt að gera það sem hægt er til að draga úr þeim afföllum. Að tré hefji vöxt tiltölulega fljótt og vel er einnig mikilvægt, m.a. svo þau hefji kolefnisbindingu sem fyrst.

Væg jarðvinnsla

Það jarðvinnslutæki sem mest er notað núna er svo kallað TTS-herfi. Á því eru tveir gróftenntir diskar sem velta við gróðurhulunni en rista ekki djúpt. Það rífur frekar en að skera og skapar rásir sem eru svolítið óreglulegar, ólíkt plægingu sem sker gróðurhuluna og ristir dýpra. Útkoman er sú að þegar velturnar gróa líkjast þær þúfum en ekki plógstrengjum.

Þótt TTS-herfing líti groddalega út í fyrstu er hún í raun vægari jarðvinnsla en flestar aðrar, er fljótari að gróa og myndar að lokum land sem er óþekkjanlegt frá íslensku þýfi. TTS-herfing þurrkar ekki land og leiðir til mun minni CO2-losunar en jarðvinnsla sem ristir dýpra. Þar sem förin gróa fljótt varir CO2-losun stutt, enda er markmiðið að skapa góðar aðstæður fyrir ungar trjáplöntur á fyrstu árum þeirra en ekki að skapa varanleg sár.

Skógrækt mest á rofnu landi

Stundum er gagnrýnt að verið sé að gróðursetja í „algróið land“ sem útheimti jarðvinnslu á annað borð. Þar býr að baki annars vegar sú hugsun að eini tilgangur skógræktar sé að græða upp örfoka land og hins vegar að hið algróna land sé í einhvers konar „ósnortnu“ ástandi.

Hvort tveggja er fjarri lagi.Til- gangur með skógrækt er margháttaður, stundum uppgræðsla, stundum timburframleiðsla, stundum endurheimt vistkerfa og búsvæða, stundum útivist, stundum skjól og á seinni árum ekki síst að binda CO2 úr andrúmsloftinu til að stemma stigu við hraðfara loftslagsbreytingum.

Flestum þessum markmiðum er betur hægt að ná á landi þar sem enn er mold til staðar en þar sem hún er fokin burt.

Þær gróðurgerðir sem mest eru teknar til skógræktar eru rofið land, mólendi og graslendi. Allar eru þær mótaðar af upphaflegri skógareyðingu og aldalangri beit. Þær eru langt frá því að vera í upprunalegu eða ósnortnu ástandi.

Þriggja ára TTS-herfing í grasmóa. Herfiförin eru komin vel á veg með að gróa.

Lerki í 13 ára gamalli TTS-herfingu í Mosfelli. Herfiförin eru gróin og herfingin skapaði skilyrði fyrir loðvíði og fleiri plöntur þar sem áður var nánast hrein mosaþemba.

Í þessari rúmlega tvítugu TTS-herfingu sjást varla nokkur ummerki. Hér var áður rýr lyngmói.

Ummerkin hverfa fljótt

Auðvelt er að taka myndir af nýlega herfuðu landi og kalla það lýti. Jarðvinnsla í skógrækt gerir þó mikið gagn og aðferðirnar sem nú eru notaðar valda ekki varanlegum skemmdum; rásirnar eru fljótar að gróa. Herfing eða tæting eru mun ákjósanlegri jarðvinnsluaðferðir en t.d. plæging eða úðun illgresiseiturs.

Skógræktin mun því halda áfram að mæla með jarðvinnslu og fylgjast áfram með þróun þeirrar tækni svo ávallt séu notaðar bestu aðferðir sem völ er á.

Skylt efni: Skógrækt | jarðvinnsla

Greiðir tæplega helming skuldar við bændur
Fréttir 16. janúar 2026

Greiðir tæplega helming skuldar við bændur

Vegna rekstrarvanda á undanförnum misserum náði Ístex ekki að standa í skilum vi...

Ingólfur sæmdur fálkaorðunni
Fréttir 16. janúar 2026

Ingólfur sæmdur fálkaorðunni

Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, sæmdi fjórtán Íslendinga heiðursmerki hinnar...

Mata fær langmest af kjötkvóta
Fréttir 16. janúar 2026

Mata fær langmest af kjötkvóta

Búið er að úthluta tollkvótum fyrir landbúnaðarvörur frá Evrópusambandinu fyrir ...

2025 hlýjast frá upphafi mælinga
Fréttir 16. janúar 2026

2025 hlýjast frá upphafi mælinga

Árið 2025 var hlýjasta árið á Íslandi frá upphafi mælinga samkvæmt upplýsingum f...

Dæmdur fyrir vanrækslu nautgripa
Fréttir 16. janúar 2026

Dæmdur fyrir vanrækslu nautgripa

Héraðsdómur Norðurlands vestra dæmdi nautgripabónda til sex mánaða skilorðsbundi...

Hvað á klukkan að vera?
Fréttir 15. janúar 2026

Hvað á klukkan að vera?

Nú eru í gangi tveir undirskriftalistar á island.is þar sem annars vegar er bari...

Undanþáguheimildir til sameininga felldar niður
Fréttir 15. janúar 2026

Undanþáguheimildir til sameininga felldar niður

Drög að frumvarpi um breytingu á búvörulögum hafa verið birt á vef Alþingis. Í þ...

Tap af nautaeldi nam 19 krónum á hvert framleitt kíló
Fréttir 15. janúar 2026

Tap af nautaeldi nam 19 krónum á hvert framleitt kíló

Enn er nokkurt rekstrartap af nautaeldi á Íslandi og samkvæmt rekstraryfirliti R...