Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 6 ára.
Athugið útblástur.
Athugið útblástur.
Fréttir 29. janúar 2020

Nokkrar ábendingar sem gætu gagnast vel

Höfundur: Hjörtur L. Jónsson - liklegur@internet.is
Nánast allir dísilbílar sem hafa komið á göturnar hér síðustu 10–15 árin eru með í útblásturskerfinu hljóðkút sem nefnist hvarfakútur. Í öllum bílunum er einnig s súrefnisskynjari. Þessi hluti útblásturs­kerfisins er einhver sá dýrasti sem seldur er í flesta bíla.
 
Inni í hvarfakútnum eru nemar sem eiga m.a. að skynja óbrunnar sótagnir sem koma frá vélinni. Frá þessum skynjurum koma oft boð upp í mælaborðið um að eitthvað sé að, ýmist gul eða rauð ljós sem á stendur STOPP. Í flestum tilfellum þarf ekki að hafa miklar áhyggjur af þessum ljósum, en samt vill maður þau í burt. Ástæðan fyrir að þessi ljós kvikna er oftast sú að bílnum er ekið of stutt og lítið í einu mörgum sinnum eða að vélin gengur of mikið í hægagangi.
 
Miðað við hitastig hér á landi er þessi mengunarbúnaður sjaldnast að virka á Íslandi þar sem til að mengunarbúnaður virki eins og hann á að gera þarf hitastig að vera nálægt 15 gráðum. Mín persónulega skoðun er að þetta virkar einfaldlega ekki á Íslandi nema örfáa daga á ári. Sem sagt gagnslaus búnaður og ekki neinum til gagns og skapar bara aukakostnað fyrir bíleigendur.
 
Ef vél hitnar oft lítið og ekið er stutt fyllist pústið af óhreinindum
 
Til að losna við þessa sótmyndun þarf ýmist að fara á verkstæði (stundum með töluverðum kostnaði) og láta verkstæðismanninn stilla vélina með tölvu þannig að vélin brenni úr pústinu sótinu. Mikið af nýjustu bílunum er með búnað sem fer sjálfkrafa í gang þegar bíllinn skynjar að komið sé sót í hvarfakútinn, en í mörgum bílum virkar þessi búnaður ekki fyrr en bíllinn er orðin fullheitur (kominn í fullan vinnsluhita með vélina). Þetta er mjög algengt með bíla yfir vetrarmánuðina sem eru mjög sjaldan keyrðir það lengi að vélin nái vinnsluhita. Fyrir þá sem keyra daglega um 15 km eða lengur í senn er óalgengara að útblásturskerfi sóti sig að innan, en bílar sem eru keyrðir 5 km eða styttra í senn yfir köldustu mánuðina er þetta vandamál.
 
Bilun í eldsneytisinnsprautun.
 
Að leysa vandamálið er tiltölulega auðvelt
 
Hægt er að kaupa hjá nokkrum efni til að setja út í eldsneytið vökva sem settur er út í eldsneytið sem eykur brunann frá vélinni og losar um sótið sem safnast í útblásturskerfinu. Sjálfur hef ég ágætis reynslu af efni frá Liqui Moly sem Stilling selur.
 
Efni frá Liqui Moly sem eykur brunann frá vélinni og losar um sótið sem safnast í útblásturskerfinu.
 
Eftir að efnið hefur verið sett á eldsneytistankinn þarf vélin að hitna, því næst er farið í bíltúr og vélin látin snúast í þeim bíltúr mikið í um 20 mín. Ágætt er að miða við að snúningur vélarinnar sé 3x4 sinnum sá snúningur sem bílvélin snýst í hægagangi. Bíllinn sem ég hef nokkrum sinnum gert þessa aðgerð á snýst í hægagangi um 750 snúninga og er ég því í bíltúrnum á snúning sem er yfir 3000 snúningar á mínútu. Nánast undantekningalaust hverfa bæði gul og rauð ljós úr mælaborðinu eftir þessa aðgerð. Ef það gerist ekki þá er vissara að fara með bílinn á verkstæði og láta tölvu lesa hvort eitthvað annað sé að.
 
Forvarnir sem gagnast vel
 
Til að koma í veg fyrir sótmyndun þá er hægt að setja svona efni reglulega á bíla og þá sérstaklega þegar á að keyra eitthvað langt eða langkeyrslu. Þá setur maður efnið á og keyrir bílinn þegar hann er orðinn heitur á aðeins hærri snúning með vélina. Þarna á ég ekki við að halda bílnum í botni í efsta gír, heldur nota gírana, vera í lægri gír og láta vélina snúast létt og halda sig á löglegum hraða. Eflaust finnst sumum eins og að maður sé að ofsnúa vélinni, en þetta er í lagi svo framarlega að viðhald á vél sé rétt, þ.e.a.s. olíuskipti  rétt og olíumagn rétt.
Annað innbrot í svínabú Stjörnugríss
Fréttir 2. september 2026

Annað innbrot í svínabú Stjörnugríss

Annað innbrot átti sér stað í morgun þegar að svínum Stjörnugríss var sleppt út ...

Fjölbreytt verkefni fram undan
Fréttir 2. september 2026

Fjölbreytt verkefni fram undan

Hjá Byggðastofnun er ýmislegt á döfinni með haustinu, en m.a. hefur stjórnin ákv...

Málþing um vinnu, Sturlungu, goðafræði og Gerplu
Fréttir 2. september 2026

Málþing um vinnu, Sturlungu, goðafræði og Gerplu

Málþing var haldið í Kakalaskála laugardaginn 29. ágúst klukkan 14 þar sem fjóri...

Bókmenntahátíðin Haustgildi næstu helgi
Fréttir 2. september 2026

Bókmenntahátíðin Haustgildi næstu helgi

Haustgildi, bókmenntahátíð Bókabæjanna austanfjalls, verður haldin dagana 5. og ...

Halla Sif meðal 100 kvenhetja
Fréttir 2. september 2026

Halla Sif meðal 100 kvenhetja

Halla Sif Svansdóttir Hölludóttir, garðyrkjubóndi og eigandi Sólskins grænmetis,...

Óska eftir tilnefningum fyrir framúrskarandi árangur í lífrænni ræktun
Fréttir 1. september 2026

Óska eftir tilnefningum fyrir framúrskarandi árangur í lífrænni ræktun

Atvinnuvegaráðuneytið óskar eftir tilnefningum til viðurkenningar fyrir framúrsk...

Gjaldtaka hafin á nýjum hringveg um Hornafjörð
Fréttir 1. september 2026

Gjaldtaka hafin á nýjum hringveg um Hornafjörð

Gjaldtaka á nýjum hringveg um Hornafjörð hófst í dag. Vegurinn var opnaður fyrir...

Auglýst eftir umsækjendum um stuðning til söfnunar ullar
Fréttir 1. september 2026

Auglýst eftir umsækjendum um stuðning til söfnunar ullar

Atvinnuvegaráðuneytið auglýsir eftir umsækjendum um stuðning til söfnunar ullar ...

https://bestun.airserve.net/banner_bundles/de3e87e0d8dde67f98882b3ac12f8b2f