Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en mánaðar gamalt.
Nóg til og meira frammi?
Skoðun 12. október 2026

Nóg til og meira frammi?

Höfundur: Elínborg Erla Ásgeirsdóttir

Það getur verið erfitt að taka umræðuna um fæðuöryggi alvarlega þegar hillur matvöruverslana svigna undan hvers konar góðgæti. Hvaða læti eru þetta, hér verður enginn svangur í bráð. En raunveruleikinn er sá að maturinn birtist ekki tilbúinn til neyslu um leið og hillan tæmist.

Hvenær fæddist kvígan sem gekk með kálfinn sem lagði til nautasteik gærkvöldsins?

Hvenær var rófunni plantað sem bar fræið sem síðan varð að uppskeru morgundagsins?

Á bak við hverja einustu máltíð, hverja einustu vöru, er saga. Vissulega mislöng eftir því um hvaða matvæli ræðir, en maturinn er þó aldrei úr lausu lofti gripinn. Oft er að baki margra mánaða eða ára vinna og ekki síður metnaður og hugsjón bænda og framleiðenda. Hreinlega ævistarf, byggt á þekkingu sem telja mætti til raunverulegustu verðmæta landbúnaðarins. Hver bóndi sem hættir störfum er ekki bara einstaklingur að skipta um vettvang, heldur þekkingartap úr atvinnugrein sem við okkar íslensku aðstæður getur ekki talist annað en mjög sérhæfð. Innflutningur getur verið skemmtileg viðbót við vöruúrvalið, en ef í harðbakkann slær hljóta allir að átta sig á því að við verðum að geta framleitt matvæli innanlands.

En snýst þetta bara um hámarksmagn hér og nú?

Við tölum líka oft um fæðuöryggi eins og það snúist eingöngu um að framleiða meira og hraðar. Það er vissulega mikilvægt að horfa til magntala, en við þurfum líka að spyrja okkur hvernig við framleiðum og hvaða aðföng við þurfum til framleiðslunnar. Ef innlend framleiðsla er alfarið háð innfluttum aðföngum hlýtur að hrikta aðeins í stoðum fæðuöryggisins. Starfsemi langt út fyrir landsteinana getur haft áhrif á matvælin sem hér eru framleidd.

Í þessu samhengi er lífrænn landbúnaður mikilvægur hluti af lausninni. Lífrænn landbúnaður reiðir sig til dæmis hvorki á innfluttan tilbúinn áburð né varnarefni. Þess í stað er lögð áhersla á að nýta næringarefni úr nærumhverfinu sem áburðarefni, vinna með þær aðstæður sem til staðar eru og rækta hraustar og þolnar plöntur og búfénað. Að stuðla að uppbyggingu og verndun jarðvegs og vatnsauðlinda; forsendu framtíðar ræktunar. Það sem samfélagið kallar lífrænan úrgang og flokkar jafnvel sem vandamál sem þarf að leysa (eða urða), notar lífrænn landbúnaður sem hráefni í ferli sem skilar af sér matvælum.

Auðvitað notast lífrænn landbúnaður líka að hluta til við innflutt aðföng, allar búgreinar eru að einhverju leyti háðar innflutningi frá öðrum löndum. En ef okkur er alvara með að vilja efla fæðuöryggi Íslands ættum við að leggja áherslu á að fjárfesta í lífrænum landbúnaði, þeim aðferðum sem þar er beitt og síðast en ekki síst fólkinu sem kann að beita þeim.

Við viljum nefnilega ekki bara eiga nóg til, það þarf líka að vera meira frammi.

Höfundur er formaður Vor - verndun og ræktun, félags um lífræna ræktun og framleiðslu.

Skylt efni: Vinkill

Eini háskólinn sem fær lægri krónutölu til reksturs
Fréttir 26. nóvember 2026

Eini háskólinn sem fær lægri krónutölu til reksturs

Landbúnaðarháskóli Íslands (LbhÍ) fær lægra fjármagn frá ríkinu til reksturs en ...

Túrbó-hani, hundrað svín
Fréttir 26. nóvember 2026

Túrbó-hani, hundrað svín

Í kjölfar umfjöllunar um íslenska skinku í síðasta blaði skal sjónum beint að be...

Bætt fjarskiptaöryggi á fimm stöðum
Fréttir 25. nóvember 2026

Bætt fjarskiptaöryggi á fimm stöðum

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra undirritaði nýlega tvo samninga um uppbyggin...

Hvetur alla til að skrá geitur
Fréttir 25. nóvember 2026

Hvetur alla til að skrá geitur

Skráning í skýrsluhaldsforrit geitfjárræktarinnar, Heiðrúnu, er gjaldfrjáls. Hák...

Vilhjálmur Svanberg átti bestu myndina af mýralífi
Fréttir 25. nóvember 2026

Vilhjálmur Svanberg átti bestu myndina af mýralífi

Vinningshafar í Myndasam- keppni Mýralífs árið 2026 voru Vilhjálmur Svanberg Arn...

Íbúum fjölgað um 83 prósent á tíu árum
Fréttir 24. nóvember 2026

Íbúum fjölgað um 83 prósent á tíu árum

Íbúar Hörgársveitar eru orðnir fleiri en þúsund í fyrsta sinn. Sveitarfélagið te...

Helsta verkefnið að rækta félagsauðinn
Fréttir 24. nóvember 2026

Helsta verkefnið að rækta félagsauðinn

Sverrir Bollason var kjörinn nýr formaður Skógræktarfélags Íslands (SÍ) á dögunu...

27 milljónir til verkefna á landsbyggðinni
Fréttir 24. nóvember 2026

27 milljónir til verkefna á landsbyggðinni

Innviðaráðuneytið úthlutaði 27 milljónum króna til 14 verkefna sem snúa að því a...