Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 7 mánaða.
Vonandi þurfa íslenskir bændur ekki að mála nautgripi sína með svörtum og hvítum sebraröndum í náinni framtíð en hugmyndin gæti nýst þar sem bitvargur er skæður.
Vonandi þurfa íslenskir bændur ekki að mála nautgripi sína með svörtum og hvítum sebraröndum í náinni framtíð en hugmyndin gæti nýst þar sem bitvargur er skæður.
Mynd / Tomoki Kojima et al.
Utan úr heimi 6. mars 2026

Nautgripir í dulbúningi

Höfundur: Steinunn Ásmundsdóttir

Ágangur bitvargs minnkar um helming þegar nautgripir eru málaðir með sebraröndum.

Það að mála sebrarendur á nautgripi getur minnkað flugnabit um allt að helming. Rannsókn sem framkvæmd var af Tomoki Kojima og japönsku vísindateymi hans, og birt var árið 2020, leiddi þetta í ljós. Teymið hlaut Ig Nobel‑verðlaunin í líffræði sl. haust fyrir rannsóknina. Verðlaunin eru veitt árlega fyrir tíu veruleg vísindaafrek sem þykja óvenjuleg, skapandi og forvitnileg. Þykir rannsóknin hafa sannað að sebrarandamálun sé einföld, umhverfisvæn og eiturefnalaus leið til að draga úr flugnaplágu hjá nautgripum.

Í rannsóknagreininni sem birtist á PLOS ONE, er vísað til þess að bitflugur valdi verulegu óþoli og jafnvel fjárhagslegu tjóni í búfjárhaldi, en rannsóknir á sebradýrum (sebrahestum) hafi lengi gefið til kynna að röndótt feldmynstur fæli slíkar flugur frá.

Í tilrauninni voru sex japanskir nautgripir málaðir með annaðhvort svarthvítum röndum, svörtum röndum eða látnir vera ómálaðir. Þeim var svo fylgt eftir í níu daga á náttúrulegu beitilandi, magn flugna talið með ljósmyndun og hegðun gripanna skráð á mínútu fresti.

Kom í ljós að nautgripir með svarthvítar sebrarendur voru með tæplega helmingi færri flugur á sér en ómálaðir, sem og gripir með einlitum svörtum röndum. Þar að auki sýndi sebra‑nautpeningurinn um 20% minni varnarhegðun, s.s. að kasta til höfði, fótastapp og halavings. Eina undantekningin frá þessu var aukin húðhreyfing (e. skin twitch), sem er varnarviðbragð sem virðist koma fram við minni flugu.

Rannsakendur telja áhrifin skýrast af því hvernig svarthvítt mynstur truflar sjónskynjun bitvargs, sem eigi þá erfiðara með að lenda á húð dýranna. Er þar mögulega kominn hluti þróunarfræðilegrar skýringar á tilurð raunverulegra sebraranda. Höfundar leggja áherslu á að þetta sé fyrsta rannsóknin sem kannar áhrif sebramynsturs á lifandi nautgripum. Þeir telja að málning geti verið umhverfisvænn valkostur við hefðbundin varnarefni, á tímum þegar aukið varnarefnaþol flugna veldur sívaxandi vandamálum í landbúnaði.

Bændur eru þó ekki ýkja upprifnir af hugmyndinni og benda á mikla vinnu við slíka málun og sömuleiðis að málningin sé ekki varanleg heldur skolist eða nuddist af með tíð og tíma.

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum
Fréttir 16. október 2026

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum

Skæð fuglainflúensa hefur greinst í sýnum sem tekin voru úr villtum fuglum á Nor...

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir
Fréttir 16. október 2026

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir

Undanfarin fimm ár hefur Bjarki Þór Sólmundsson, matreiðslumeistari og myndlista...

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni
Fréttir 16. október 2026

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni

Kynslóðaskipti hafa orðið á garðyrkjustöðinni Hveratúni í Laugarási. Skúli Magnú...

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða
Fréttir 15. október 2026

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða

„Hagvöxtur trompar allt annað í áherslum stjórnvalda. En er hann besti mælikvarð...

Fékk nafnið Vafi
Fréttir 15. október 2026

Fékk nafnið Vafi

Eins og allir vita þá kasta hryssur á vorin og eitthvað fram eftir sumri en að þ...

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn
Fréttir 15. október 2026

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn

Í reiðhæfni, öryggi og hugrekki fær íslenski hesturinn hæstu einkunn allra kynja...

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra
Fréttir 14. október 2026

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra

Það er mikið um að vera hjá Reykjagarði á Hellu því þar er verið að byggja fjögu...

Kornskemman hefur tæplega undan
Fréttir 14. október 2026

Kornskemman hefur tæplega undan

Kornskemman, félag bænda í Eyjafirði, auglýsti móttöku á korni öðru sinni. „Við ...