Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 4 mánaða.
Nautgripasjúkdómar í Evrópu, gin- og klaufaveiki á búi í Slóvakíu
Mynd / Sören Gerber Nielsen
Skoðun 14. apríl 2026

Nautgripasjúkdómar í Evrópu, gin- og klaufaveiki á búi í Slóvakíu

Höfundur: Elin Nolsöe Grethardsdóttir
Elin Nolsöe Grethardsdóttir.

Dagana 23. og 24. febrúar var árlega nautgriparæktar ráðstefnan, Kvægkongres, haldin í Herning í Danmörku. Þar var saman komin nokkur fjöldi manns með sameiginlegan áhuga á öllu því er viðkemur nautgriparækt, hvort sem það varðaði fóðrun, rekstur búa, heimsmarkaðsstaða, velferð gripa, uppeldi, sjúkdómar – hægt var að finna fyrirlestra við allra hæfi.

Undirrituð valdi fyrirlestra eftir áhugasviði og voru því fyrirlestrar um fóðrun, mjaltir, sjúkdóma og velferð kúa og kálfa meðal annars fyrir valinu.

Erik Rattenborg, dýralæknir hjá SEGES og Sören Gerber Nielsen, bústjóri, sögðu okkur frá sjúkdómahættum á kúabúum í Evrópu, hvað ber að varast og hvernig. En Sören þessi var í forsvari fyrir 3000 kúa búi í Slóvakíu þegar gin- og klaufaveiki barst inn á búið, meira um það neðar í greininni.

Erik Rattenborg fór vandlega yfir hvernig eigi að fylgjast með og verjast sjúkdómum sem krauma allt í kring um Danmörku og sumir sjúkdómar einnig í Danmörku.

Eftirlitið er skipt í tvennt, það er virkt eftirlit sem er lögbundið og svo er það eftirlitið sem bændur, dýralæknar, sláturhúsin og ráðgjafar eiga að sjá um, sem sagt fólkið sem er í kring um gripina úti á búunum og þeir sem taka við þeim þegar þeir fara af búunum af einhverjum ástæðum. En sláturhúsin og rannsóknarstofur eru tilkynningaskyldar ef sýni reynast jákvæð eða sláturhúsin sjá eitthvað athugunarvert á gripum sem koma til slátrunar.

Virkar eftirlitsáætlanir ná yfir þó nokkuð marga sjúkdóma, en eftirlitið er gert með töku mjólkur- og blóðsýna á búunum. Allir mjólkurframleiðendur eru undir eftirliti og flestir þeir sem eru með holdagripi. Sjúkdómarnir sem verið er að leita að í þessum sýnatökum eru meðal annars veiruskíta (BVD), sýni tekin  fjórum sinnum á ári, IBR (infectious bovine rhinotracheitis) sem er af herpesveiruætt, tekið einu sinni á ári, salmonella, tekið fjórum sinnum á ári, B-streptokokkar, tekið tvisvar á ári og blátunga, einu sinni á ári, Lumpy skin disease, berklar og fuglaflensa ásamt öðrum minna þekktum sjúkdómum.

Gin- og klaufaveiki er líka í þessum hóp, en eftirlitið er virkjað ef sjúkdómurinn greinist í nágrannalöndum. Gin- og klaufaveiki var síðast greind í Danmörku árið 1983.

Mikil hræðsla greip um sig í Danmörku þegar gin- og klaufaveiki greindist í vatnabuffalóum í dýragarði í Þýskalandi snemma árs í fyrra. Ekki var vitað hvaðan það smit hafði borist, en í kjölfarið greindist sjúkdómurinn á búum í Ungverjalandi og Slóvakíu. Sérstök áhættustiga-trappa er tiltæk ef gin- og klaufaveiki greinist nálægt Danmörku, sjá mynd. En þar segir hvað eigi að gera heima á búum í Danmörku ef smit greinist í 200-500 km fjarlægð frá landinu, áhættan er talin verulega há ef smit greinist í Schleswig-Holstein sem er nyrst í Þýskalandi. En slátra þarf öllum gripum á búinu ef smit greinist.

Helsta hættan núna er ef fuglaflensan (HPAI) smitist í naugripi, en vitað er að slík smit hafa átt sér stað í Bandaríkjunum, það var fyrst uppgötvað árið 2024. Smitið barst vítt og breitt vegna lífgripa flutninga innan Bandaríkjanna.

Brýnt er fyrir kúabændum að vera sérstaklega varkárir, en 115.000 hænsnum var slátrað vegna fuglaflensusmits í byrjun febrúar í Danmörku. Fuglaflensu-einkenni í nautgripum eru kvef-einkenni, fylgjast þarf einnig með mjólkinni þar sem hún fer að líkjast broddi ef smitið berst í júgrað.

Fuglaflensan getur borist í fólk, oftast eru einkenni í mönnum væg en smitið getur verið lífshættulegt. Vitað er að evrópska HPAI-tegundin getur líka farið í nautgripi þar sem slík tilfelli hafa uppgötvast í Hollandi og kindur hafa smitast af tegundinni í Bretlandi.

Hafa skal í huga að við berum sjálf ábyrgð á smitvörnum á okkar búum, fara þarf eftir sóttvarnar reglum þegar farið er erlendis og heim aftur. Umferð inn á og af búum þarf að lágmarka eins og kostur er. Hafa búnað (skóhlífar, skó og föt) tiltækan á búinu fyrir utanaðkomandi starfsfólk, hvort sem það eru dýralæknar, sæðarar, ráðgjafar, sölufólk eða aðrir. Einangra skal aðkomugripi. Víða erlendis eru núorðið gerðar kröfur um fataskipti og sturtuferðir áður enn farið er inn á kúabú, svipað eins og við þekkjum frá svínabúum. Og bílar keyra í gegnum sótthreinsandi efni þegar keyrt er inn og út af bæjarhlaði. Ábyrgð ábúenda er mikil í þessum efnum, það er ekki óþekkt að mjólkurbílar þurfa að keyra í gegnum mjög óhrein svæði til þess að komast að og frá mjólkurhúsum og jafnvel draga mjólkurslöngur í óhreinindi til að komast að mjólkurtönkum.

Slíkar smitvarnir, eins og nefnt var hér ofar, hafa einmitt verið teknar upp á búinu hans Sören Gerber Nielsen í Slóvakíu. En hann rekur einnig svínabú og naut góðs af því að eiga til sóttvarnar-leiðbeiningar sem hægt var að yfirfæra á kúabúið, en það var gert eftir að gin- og klaufaveikin kom upp á kúabúinu.

En í byrjun árs 2025 greindist gin- og klaufaveiki í einni kú á 2.800 kúabúi þar sem þessi Sören er bústjóri. Smitið uppgötvaðist í morgunmjöltum þar sem blöðrur fundust á spenum á fullorðinni kýr, sjá mynd.

Í framhaldið fór allt á fullt á búinu. Starfsfólkið einangraðist strax á búinu og var bústjórinn þeim afar þakklátur að taka þessu alvarlega, starfsfólkið vildi allt gera til þess að gera þessa ömurlegu lífsreynslu eins bærilega og hægt var.

Mikið var gert til að reyna að finna hvaðan smitið hafði borist, en fyrsta hugsun var að smitið hafði komið frá kúabúi í Ungverjalandi þar sem einhver samgangur hafði verið á milli þessara tveggja búa. En DNA-rannsókn leiddi í ljós að það var sitt hvor veirustofninn á þessum tveimur búum og því var hægt að útiloka að smitið hafði borist þaðan. Mestar líkur eru taldar á að smitið hafi komið með utanaðkomandi fólki, faratækjum eða fuglum.

Í fjósinu þar sem smitið fannst voru mjólkurkýrnar og yngstu gripir búsins, samtals um 4000 gripir. Lögin eru skýr þegar kemur að gin- og klaufaveiki – lóga þarf öllum gripum í fjósinu. Aðrir gripir voru í fjósum fjarri smit-fjósinu og sluppu.

Við tók mikið og erfitt skipulag. Ekki var hægt að fara með gripina til slátrunar í sláturhúsi, þeim var því lógað á hlaðinu. Koma þyrfti miklum fjölda gáma á búið til að geta komið skrokkunum í burtu, en ekki var hægt að byrja að slátra kúnum fyrr en þremur dögum eftir að smitið fannst, þá fyrst var skipulagið komið á hreint. Þetta voru erfiðir þrír dagar og samskipti við stjórnvöld í Slóvakíu voru flókin og erfið.

Passað var vel upp á að forvitnir fjölmiðlar kæmust ekki að og lögreglan setti bann við drónaflugi yfir svæðinu. Gerð var hólmbagga-girðing allt í kring.

Ekki var leyfilegt að nota fjósið sem smitið hafði fundist í fyrr en búið var að þrifa það og sótthreinsa nokkrum sinnum, fjósið stóð autt í marga mánuði. Á því tímabili komu eftirlitsaðilar nokkrum sinnum og tóku sýni, en sýna þyrfti fram á nokkurn fjölda neiðkvæðra sýna tekin með nokkurra mánaða millibili áður en gefið var grænt ljós á að mega nota fjósið á ný.

Kvígur búsins, sem báru á meðan fjósið var ónothæft, voru sumar hverjar færðar á önnur bú, en svo var komið upp mjaltaaðstöðu í kvígufjósinu, þannig að hægt var að nýta kvígurnar á meðan beðið var eftir að tíminn leið.

Nú er allt aftur komið á fullt í fjósinu sem smitið fannst í, keyptir voru gripir af búum sem voru að hætta og kvígur voru fluttar inn frá Danmörku. Nytin var 11.800 kg OLM/kú fyrir smit, hún er ekki alveg komin þangað enn sem komið er, enda hjörðin ung, en stefnt er að því að hafa náð sama kúafjölda, eins og var fyrir smit, um mitt ár 2026.

Það var áhrifaríkt að hlusta á raunir Sörens Gerber Nielsen, hann sagðist ekki óska sínum versta óvini að ganga í gegnum það að fá gin- og klaufaveiki inn á sitt bú.

Sóttvarnir á búum eru mikilvægar og á ábyrgð ábúenda.

Höfundur er gæðaráðgjafi hjá Auðhumlu svf.

Umfangsmiklar breytingar yrðu á  stuðningskerfi landbúnaðar við ESB-aðild
Fréttir 28. ágúst 2026

Umfangsmiklar breytingar yrðu á stuðningskerfi landbúnaðar við ESB-aðild

Ný áfangaskýrsla um endurskoðun stuðningskerfis íslensks landbúnaðar dregur upp ...

Veikindi í hestum á Norðurlandamóti íslenska hestsins í Svíþjóð
Fréttir 28. ágúst 2026

Veikindi í hestum á Norðurlandamóti íslenska hestsins í Svíþjóð

Veikindi komu upp í hrossum danska landsliðsins á nýafstöðnu Norðurlandamóti ísl...

Bakteríur segja ósýnilega sögu
Fréttir 28. ágúst 2026

Bakteríur segja ósýnilega sögu

Rannveig Þórhallsdóttir, doktorsnemi í fornleifafræði við Háskóla Íslands, skoða...

Umsögn um byggðastefnu lokið
Fréttir 27. ágúst 2026

Umsögn um byggðastefnu lokið

Gert er ráð fyrir tæpum fjórum milljörðum króna í framlög til byggðaáætlunar á á...

Handtökur vegna innbrots
Fréttir 27. ágúst 2026

Handtökur vegna innbrots

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur handtekið fólk sem grunað er um að tengist ...

Skógræktarátak
Fréttir 27. ágúst 2026

Skógræktarátak

„Við erum auðvitað svolítið stórhuga að ætla okkur að planta 50.000 trjám árlega...

Lokanir vegna viðhaldsvinnu
Fréttir 26. ágúst 2026

Lokanir vegna viðhaldsvinnu

Núna er unnið að viðgerðum á brúni sem liggur yfir Jökulsá á Fjöllum við Hringve...

Íslenskt handverk í hávegum
Fréttir 22. ágúst 2026

Íslenskt handverk í hávegum

Safnasafnið, ein af perlum Eyjafjarðar, var stofnað þann 17. febrúar 1995 af hjó...