Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 4 ára.
Alls eru 13 íbúðir í byggingu í sveitarfélaginu og þær eru bæði á Hvammstanga og í sveitunum.
Alls eru 13 íbúðir í byggingu í sveitarfélaginu og þær eru bæði á Hvammstanga og í sveitunum.
Mynd / Aðsendar
Líf og starf 7. mars 2022

Næg vinna í sveitarfélaginu en vantar fleiri íbúðir

Höfundur: Margrét Þóra Þórsdóttir

Íbúðarhúsnæði hefur verið byggt af kappi í Húnaþingi vestra undanfarin ár, en þrátt fyrir það er mikil uppsöfnuð þörf þegar kemur að framboði á íbúðarhúsnæði í sveitarfélaginu. Framboð af lóðum er gott þó svo mörgum lóðum hafi verið úthlutað.

Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir sveitarstjóri segir að vegna mikillar eftirspurnar eftir íbúðarhúsnæði nú hafi sveitarstjórn samþykkt tímabundna heimild til að fella niður gatnagerðargjöld á níu lóðum á Hvammstanga og tveimur á Laugabakka. Íbúum í Húnaþingi vestra hafi fjölgað stöðugt síðustu ár og bendi allt til að framhald verði þar á. Næg vinna sé í sveitarfélaginu en tímabundinn húsnæðisskortur geti haft áhrif.

Uppsöfnuð húsnæðisþörf
Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir, sveitarstjóri í Húnaþingi vestra.

Nýverið samþykkti Húnaþing vestra húsnæðisáætlun fyrir sveitarfélagið, en hlutverk slíkra áætlana er að draga upp mynd af því hver staða húsnæðismála sé í sveitarfélögum, greina framboð og eftirspurn eftir margvíslegum húsnæðisformum og setja fram áætlun um á hvern hátt sveitarfélagið ætlar að mæta húsnæðisþörf, bæði til lengri og skemmri tíma.

Mikil uppsöfnuð húsnæðisþörf er í Húnaþingi vestra og kemur hún ekki fram í áætluninni, að sögn Ragnheiðar Jónu. Gert er ráð fyrir að uppsöfnuð þörf sé um það bil sex íbúðir umfram áætlunina. Fram kemur í áætluninni að 13 íbúðir eru í byggingu í sveitarfélaginu, þær eru bæði á Hvammstanga og í sveitunum. Áframhaldandi uppbygging er fram undan og stefnt er á að byggja fjórar íbúðir í samvinnu við Bríet á árinu 2022. „Miðað við núverandi þörf mun það ekki nægja til að koma á móts við hana,“ segir hún.

Nú í upphafi árs úthlutaði byggðarráð fjórum lóðum undir íbúðarhúsnæði og fyrr í vetur var þremur lóðum úthlutað undir íbúðarhúsnæði svo óhætt er að segja að uppbyggingin haldi áfram á þessu ári.

Byggt við grunnskólann

Fjölgun fólks í sveitarfélaginu kallar á sterkari innviði að sögn Ragnheiðar Jónu sem nefnir að nú standi yfir framkvæmdir við Grunnskóla Húnaþings vestra þar sem verið er að byggja rúmlega 1200 fermetra viðbyggingu.

Hluti byggingarinnar var tekinn í notkun á liðnu hausti, en þar er eldhús, fjölnota salur, frístund, skrifstofur og Tónlistarskóli Húnaþings vestra. Lokið verður við bygginguna á komandi vori og bætast þá við skólastofur og vinnuaðstaða kennara. „Með tilkomu byggingarinnar verður öll aðstaða til skólastarfs orðin til fyrirmyndar.“

Ragnheiður Jóna bendir á að mikilvægt sé að bregðast við bæði uppsafnaðri þörf og einnig framtíðarþörf fyrir húsnæði í sveitarfélaginu, einkum á Hvammstanga, sem sé þjónustukjarni Húnaþings vestra.

Alls eru 13 íbúðir í byggingu í sveitarfélaginu og þær eru bæði á Hvammstanga og í sveitunum.

Fjölbreytt atvinnulíf stuðlar að jákvæðri byggðaþróun

Helstu atvinnuvegir í héraðinu eru landbúnaður og þjónusta. Fæðingarorlofssjóður er staðsettur á Hvammstanga, einnig er öflugur rannsóknaklasi þar sem Selasetur Íslands, Háskólinn á Hólum, Náttúrustofa Norðurlands og Hafrannsóknastofnun stunda rannsóknir.

Ferðaþjónusta hefur vaxið síðustu ár með margvíslegum afleiddum störfum sem skapar fjölbreyttara atvinnulíf og laðar að fleira fólk. Borgarvirki, Hvítserkur og Kolugljúfur hafa aðdráttarafl og þá er öflug selaskoðun í boði í sveitarfélaginu.

Fjölbreytt atvinnulíf stuðlar að jákvæðari byggðaþróun

Fjöldi lítilla fyrirtækja í þjónustu og iðnaði er hlutfallslega mikill miðað við íbúafjölda og er Húnaþingi vestra mikilvægur þar sem rétt er að nefna prjónastofuna Kidku sem framleiðir hágæða prjónavöru. „Fjölbreytt atvinnulíf stuðlar að jákvæðri byggðaþróun,“ segir sveitarstjórinn og bendir á að á Hvammstanga sé sláturhús, verslun, ýmiss konar iðnaður og heilsugæslustöð. Mikið sé um sjálfstætt starfandi verktaka á svæðinu enda þjónusta af margvíslegu tagi stór þáttur í atvinnustarfseminni.

Nýlega var skrifstofusetur tekið í notkun á Hvammstanga og er sveitarfélagið í samstarfi við Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra í viðræðum við stofnanir um fjarvinnslustörf. „Það er því enn meiri þörf á að sinna uppbyggingu húsnæðis af krafti því áhugi fyrir samstarfinu er fyrir hendi,“ segir Ragnheiður Jóna. Sveitarfélagið hefur lokið ljósleiðaravæðingu í dreifbýli og er um 60% íbúa á Hvammstanga með ljósleiðara sem gefur tækifæri til uppbyggingar á fjölbreyttri atvinnustarfsemi.

„Íbúar sveitarfélagsins hafa tekist á við margs konar áskoranir síðastliðin ár og hafa staðið það af sér með samstöðu og framsýni. Unga fólkið er að snúa heim og vill búa sér framtíð í sveitarfélaginu. Framtíðin er því björt í Húnaþingi vestra,“ segir sveitarstjórinn.

Þungarokkshátíðin Sátan haldin í Stykkishólmi næstu helgi
Fréttir 3. júní 2026

Þungarokkshátíðin Sátan haldin í Stykkishólmi næstu helgi

Þungarokkshátíðin Sátan verður haldin í Stykkihólmi dagna 4.-6. júní. Þetta er í...

Erfitt að sætta ólík sjónarmið
Fréttir 3. júní 2026

Erfitt að sætta ólík sjónarmið

Verðmæti efnisins sem Ísteka vinnur úr blóði fylfullra hryssna veltir um tveimur...

Rekstrarerfiðleikar halda áfram
Fréttir 3. júní 2026

Rekstrarerfiðleikar halda áfram

Ístex getur ekki greitt bændum fyrir ullarinnlegg þeirra núna í júní, en býður þ...

Baldur og Herjólfur sigla til og frá Vestmannaeyjum
Fréttir 3. júní 2026

Baldur og Herjólfur sigla til og frá Vestmannaeyjum

Ferjurnar Baldur og Herjólfur munu sigla til og frá Vestmannaeyjum frá 8. júní n...

Útlit fyrir aukna kornrækt
Fréttir 2. júní 2026

Útlit fyrir aukna kornrækt

Á síðasta ári studdu stjórnvöld í fyrsta skipti kornframleiðslu með beinum hætti...

Upplýsingagátt um almyrkvann 12. ágúst
Fréttir 2. júní 2026

Upplýsingagátt um almyrkvann 12. ágúst

Ný upplýsingagátt um almyrkvann 12. ágúst er kominn í loftið á Ísland.is. Þar má...

Reglur Evrópusambandsins gilda ekki á Íslandi
Fréttir 1. júní 2026

Reglur Evrópusambandsins gilda ekki á Íslandi

Fyrirtækjum sem flytja inn og selja sítrusávexti ber ekki skylda til að merkja þ...

Áburðarsalar rólegir
Fréttir 1. júní 2026

Áburðarsalar rólegir

Samkvæmt svörum við fyrirspurnum sem sendar voru fyrirtækjum sem selja tilbúinn ...