Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en mánaðar gamalt.
Mýrland um allt land
Á faglegum nótum 7. september 2026

Mýrland um allt land

Höfundur: Vigdís Freyja Helmutsdóttir
Vigdís Freyja Helmutsdóttir.

Af grónu flatarmáli Íslands eru um 20% þakin votlendi, vistkerfum sem einkennast af hárri grunnvatnsstöðu, sérhæfðum votlendisgróðri ofanjarðar og háu kolefnis- innihaldi neðanjarðar. Sorglega staðan er hins vegar sú að um helmingur þessar ra vistkerfa eru í röskuðu ástandi. Með framræsingu lækkar vatnsstaða og votlendisgróðri hnignar. Súrefni kemst að kolefnisríkum jurtaleifum sem áður voru varðveittar í hinum gegnsósa votlendisjarðvegi, sem einnig er kallaður mór. Við það taka allir vistkerfisferlar að hraðast, koltvísýringur losnar í auknum mæli út í andrúmsloftið og segja mætti að mýrin byrji að ofanda.

Eitt af hlutverkum Lands og skógar er að auka þekkingu á þessum landgæðum, vernda þau og endurheimta. Nýja vöktunarverkefnið Mýrland fór af stað í fyrra og er ætlað er að safna upplýsingum um ástand votlendisgróðurs og -jarðvegs á landsvísu. Mælireitir sem eru 10 x 10 m að stærð eru lagðir út í allar gerðir af náttúrulegu votlendi, röskuð votlendi með mismunandi skala framræsingar, sem og einhver endurheimt votlendi. Markmiðið er að leggja út 500 reiti um allt land, en að sumri loknu verður búið að leggja út og gera fyrstu mælingar á hátt í 100 af þeim. Hver þeirra verður síðan heimsóttur á 10 ára fresti um ókomna tíð.

Meðal gróðurmælinga sem fara fram eru þekjumælingar á æðplöntutegundum og mosa- og fléttuhópum, en að auki er mæld gróðurhæð og uppskerusýni tekin. Vistgerð er skráð samkvæmt vistgerðaflokkun Náttúrufræðistofnunar og svokallað raskstig metið á skala sem Land og skógur hefur þróað, út frá hlutfalli votlendis- og þurrlendistegunda innan gróðursamfélagsins. Þegar kemur að jarðvegi er niðurbrotsstig mósins metið og jarðvegslög eins og áfoks- og gjóskulög skráð. Einnig eru tekin jarðvegssýni niður á 40 cm dýpt, en með þeim fást upplýsingar um rúmþyngd, C/N hlutfall og sýrustig jarðvegs. Í sumum reitum er vatnshæðarrörum komið fyrir en þau virka eins og brunnar og í þeim er hægt er að mæla hæð niður á grunnvatn, handvirkt eða með sjálfvirkum mælum. Að lokum er dýpt mólagsins mæld með svokölluðum mýrarprjóni, en dýpsta mýrin sem mæld hefur verið í verkefninu hingað til var 5,7 m!

Til að stjórnvöld geti tekið upplýstar ákvarðanir um þetta mikilvæga vistlendi þurfa að liggja fyrir upplýsingar um legu þess, eiginleika og ástand. Mýrlandsverkefnið tekur þátt í að bæta þá þekkingu á áður óþekktum skala. Með áframhaldandi samstarfi við önnur votlendisverkefni Lands og skógar sem og aðrar stofnanir skapast breiður þekkingargrunnur sem nýtist til að að skala upp gögn sem safnað er á vettvangi. Sem dæmi styðja gróðurmælingar við fjarkönnun á gróðurfari með gervitunglum og drónum. Í hluta þessara vöktunarreita fara einnig fram beinar gasflæðimælingar á koltvísýringi og metani í samstarfi við Mýrgas-verkefni Lands og skógar sem fær einnig liðsauka frá náttúrustofum landsins. Þannig verður í náinni framtíð hægt að þróa líkön sem spá fyrir um gaslosun frá framræstu votlendi út frá fjarkönnunargögnum og einföldum mælingum eins og þeim sem framkvæmdar eru í Mýrlandi.

Höfundur er sérfræðingur hjá Landi og skógi.

Óánægja vegna gjalds á þrjá ferðamannastaði
Fréttir 23. október 2026

Óánægja vegna gjalds á þrjá ferðamannastaði

Mikil óánægja í Bláskógabyggð með gjald á þrjá ferðamannastaði. Íbúar Bláskógaby...

Terraforming LIFE á leið í umhverfismat
Fréttir 23. október 2026

Terraforming LIFE á leið í umhverfismat

Áburðar- og lífgasverksmiðja Terraforming LIFE, sem fyrirhugað er að reisa í Þor...

Halla tekur á móti viðurkenningunni
Fréttir 23. október 2026

Halla tekur á móti viðurkenningunni

Sólskins-garðyrkjubóndinn Halla Sif Svansdóttir Hölludóttir tók á dögunum á móti...

Vilja fella tollabreytingar úr frumvarpi
Fréttir 23. október 2026

Vilja fella tollabreytingar úr frumvarpi

Bændasamtök Íslands gera verulegar athugasemdir við frumvarpsdrög fjármála- og e...

Geymdu korn í jarðgöngum
Fréttir 22. október 2026

Geymdu korn í jarðgöngum

Bændur í Suður-Þingeyjarsýslu brugðu á það ráð að keyra vagna með nýþresktu bygg...

Samtök sveitarfélaga í landbúnaði stofnuð
Fréttir 22. október 2026

Samtök sveitarfélaga í landbúnaði stofnuð

Formaður stjórnar SLS var kjörinn Jón Björn Hákonarson, sveitarstjóri í Eyjafjar...

Ágangur álfta töluverður
Fréttir 22. október 2026

Ágangur álfta töluverður

Íslenskir kornbændur glíma við sívaxandi álag vegna ágangs álfta sem setjast á a...

Álftir valda tjóni árlega
Fréttir 22. október 2026

Álftir valda tjóni árlega

Álftir herjar á akra og valda kornbændum tjóni ár hvert. Bændur segja ástandið v...