Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 4 mánaða.
Hægt er að mæta með ílát og sækja sér moltu á endurvinnslustöðvar Sorpu.
Hægt er að mæta með ílát og sækja sér moltu á endurvinnslustöðvar Sorpu.
Mynd / Sorpa
Fréttir 15. júní 2026

Moltan er súr en góð

Höfundur: Edda Kristín Sigurjónsdóttir

Molta frá Gaju sem lyktar illa reyndist súr en er sneisafull af næringarefnum og góð til ræktunar.

Í Gaju er tekið á móti um 19 þúsund tonnum af matarleifum á ári og íbúum, sveitarfélögum og fyrirtækjum er nú annað árið í röð boðið að sækja sér moltu unna úr þeirra eigin sérsöfnuðu matarleifum.

Gunnar Dofri Ólafsson.

Góð molta á að ilma vel

Fjör varð á spjallþræði í hópnum Ræktaðu garðinn þinn – Garðyrkju- ráðgjöf á Facebook þegar meðlimur hópsins sendi út neyðarkall vegna illa lyktandi moltu sem í boði er á endurvinnslustöðvum Sorpu. „Nú er lyktin óbærileg, ekki hægt að opna glugga og finnst fnykurinn langt í burtu, ólétt kona gubbar, börn gráta“, segir í neyðarkalli Hildar Steinþórsdóttur, sem býr í Holtahverfinu í miðbæ Reykjavíkur. Ekki stóð á svörunum þar sem lagt var til allt frá því að gera öndunaræfingar, sýna þolinmæði, hringja á vælubílinn, vökva, banna moltu í þéttbýli, sækja hana frekar á Raufarhöfn og að Sorpa vinni moltuna betur. Fleiri tóku undir og höfðu sömu reynslu af fnyknum í sínum hverfum og rifjuðu upp að hann hafi verið slæmur síðasta sumar líka og lengi að fara.

„Lyktin kom okkur á óvart en hún stafar af því að moltan var súrari en hún ætti að vera,“ segir Gunnar Dofri Ólafsson, sviðsstjóri þjónustu- og samskiptasviðs hjá Sorpu. „Það er eitthvað í vinnsluferlinu sem veldur þessu og við erum að vinna okkur í gegnum það. Þetta er lifandi ferli og nú er annað árið sem við erum með moltu úr sérsöfnuðum matarleifum.“

Í athugasemd segir garðyrkjufræðingurinn Konráð Bragason að það sé slæmt hvað þessi molta komi slæmu orði á moltu almennt, „góð molta á að lykta vel og vera gott að vinna með,“ segir Konráð. „Hún var slæm í fyrra, en ég lét mig hafa það þá. Plönturnar voru svo agalega glaðar með hana“, segir í einni athugasemd annars meðlims.

„Vinnsla á einni lotu tekur 12-16 vikur svo við erum lengi að prófa okkur áfram. Það er ekkert í henni sem er skaðlegt, hún stenst öll próf og gildi,“ segir Gunnar.

Ruslabransi á iðnaðarskala

Molta er gulls ígildi til blöndunar jarðvegs í hvers kyns útiræktun og bætir næringarefnum hægt og rólega í moldina eftir því sem hún brotnar niður. Plöntur taka næringuna upp til vaxtar og þroska. Moltu má bera í beð hvenær sem er, ekki síður að hausti en vori. GAJA molta er framleidd í samræmi við starfsleyfi Matvælastofnunar og skráð sem lífrænn áburður.

Aðspurður um hvernig sé best að nota moltuna sem nú er í boði og ilmar síst vel segir Gunnar að „einfalda lausnin er að bera smá lag af mold yfir moltuna, að hylja hana og þá lyktar hún ekki. Fólk losnar svo við lyktina á smá tíma. Við erum að tryggja leiðir til að hún verði eins og hún á að vera þegar líður á sumarið.“

Í Gaju er tekið á móti 19 þúsund tonnum af matarleifum á ári og nokkur þúsund tonn af moltu eru unnin. „Þetta er eins og 19 þúsund Yarisar,“ segir Gunnar. „Ruslabransinn er eins og álver, þetta er á iðnaðarskala.“ Umhverfisáhrif Gaju hljóta þó að teljast jákvæðari en af hinu síðarnefnda.

„Við erum að þiggja matarleifar frá Suðurnesjunum, Hveragerði og Akranesi líka, auk höfuðborgarsvæðisins, og það er hægt að sækja moltu þar líka, ekki bara á höfuðborgarsvæðinu.“

„Sveitarfélögin eru að nota moltuna hjá sér, en svo geta allir komið og sótt sér moltu,“ segir Gunnar Dofri, sem að endingu vill koma á framfæri botnlausu þakklæti til íbúa höfuðborgarsvæðisins, Vesturlands, Suðurlands og Suðurnesja fyrir að flokka matarleifarnar sínar svona vel. „Þetta eru um 300 þúsund íbúar sem eru að standa sig með prýði, án þeirra gætum við ekki gert okkar.“

Skylt efni: molta | sorp

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn
Fréttir 28. október 2026

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn

Í sumar var endurnýjaður samningur Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins (RML) við ...

Verðhækkun um 2,5% tryggð
Fréttir 28. október 2026

Verðhækkun um 2,5% tryggð

Bændur huga brátt að áburðarmálum næsta ræktunartímabils. Í rúmlega 10 ár hefur ...

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir
Fréttir 28. október 2026

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir

Stjórn Byggðastofnunar hefur ákveðið að auka fjárframlög til verkefnisins Brothæ...

Sjálfbær þróun með sólarorku
Fréttir 27. október 2026

Sjálfbær þróun með sólarorku

Eins og frá var greint í síðasta tölublaði Bændablaðsins er stærsta birtuorkuver...

Þór hf. hættir með DEUTZ-FAHR dráttarvélar
Fréttir 27. október 2026

Þór hf. hættir með DEUTZ-FAHR dráttarvélar

Þór hf. og SDF hafa komist að sameiginlegri niðurstöðu um að ljúka samstarfi um ...

Samræmdar aðferðir þróaðar við vöktun á rusli í vatni
Fréttir 27. október 2026

Samræmdar aðferðir þróaðar við vöktun á rusli í vatni

Matís stýrir stóru evrópsku verkefni sem felst í að þróa samræmdar og hagkvæmar ...

Áform um matvælakjarna  og votlendissetur
Fréttir 27. október 2026

Áform um matvælakjarna og votlendissetur

Hjá Landbúnaðarháskóla Íslands (LbhÍ) er í undirbúningi verkefni sem felst í að ...

Skinka úr íslensku svínakjöti
Fréttir 26. október 2026

Skinka úr íslensku svínakjöti

Stjörnugrís er eini framleiðandinn sem framleiðir skinku aðeins úr íslensku svín...