Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 10 ára.
Mikilvægt að huga vel að dýrunum um áramótin
Mynd / HKr.
Fréttir 28. desember 2015

Mikilvægt að huga vel að dýrunum um áramótin

Matvælastofnun minnir dýraeigendur á að huga vel að dýrum sínum á meðan á flugeldaskotunum stendur um áramótin. Slíkar sprengingar kunna að valda dýrunum ofsahræðslu og geta þau valdið slysum á sjálfum sér og öðrum við slíkar aðstæður.

Í tilkynningu frá Matvælastofnun segir að hægt sé að fyrirbyggja slys af þessum völdum með því að grípa til viðeigandi varúðarráðstafana fyrir gamlárskvöld og þrettándann.

Dæmi séu um að hundar sleppi og hlaupi fyrir bíla eða á fjöll. Hestar úti í haga eru sérlega í hættu. Fjölmörg dæmi eru um að hestar hafi fælst við flugelda, brotist út úr girðingum og hlaupið til fjalla eða í veg fyrir bílaumferð, og valdið slysum á sjálfum sér og öðrum. Hestar eru mikil hópdýr svo ef einn hleypur af stað getur allur hópurinn fylgt. Einnig eru margir komnir með hesta á hús á þessum tíma og farnir að stunda útreiðar. Óþarfi er að lýsa því hvað getur gerst ef flugeldum er skotið upp rétt hjá eða yfir fólki við útreiðar.

Matvælastofnun beinir því til almennings, og sérstaklega foreldra og forráðamanna barna og unglinga, að sýna þá tillitsemi við dýrin og eigendur þeirra að eingöngu stunda flugeldaskot, hvellhettusprengingar og nota ýlur á gamlárskvöld eða á þrettándanum. Það hjálpar dýraeigendum við að grípa til ýmissa fyrirbyggjandi ráðstafana.

Það helsta sem hægt er að gera er eftirfarandi:

  • Hestum sem komnir eru á gjöf í hesthúsum skal gefið vel, hafa ljósin kveikt og útvarp í gangi. 
  • Gott er að gefa hestum vel sem eru á útigangi og halda þeim á kunnuglegum slóðum, þar sem þau fara sér síður að voða ef hræðsla grípur þá. Ef hægt er að setja hesta inn er það öruggast.
  • Eigendur ættu helst að fylgjast með hestunum ef því er komið við, eða alla vega vitja þeirra sem fyrst eftir lætin.
  • Gæludýr: Í þéttbýli er best er að halda köttum alveg inni dagana í kringum áramót og hafa hunda alltaf í taumi þegar þeim er hleypt út, þó það sé bara út í garð.
  • Hunda er best að viðra vel árla dags í birtu svo þeir verði þreyttir um kvöldið og ef þeir eru mjög hræddir þá gjarna viðra fyrir utan bæinn. Svo að kvöldi er mjög snjallt að viðra stutt meðan skaupið er, þá er yfirleitt afar rólegt. 
  • Dýr sem sýna mikla hræðslu ber ekki að skilja eftir ein. Misjafnt er hvort hrædd gæludýr vilja félagsskap eigandans eða hvort þau vilji skríða í felur. Ef þeim líður betur í felum skildi maður leyfa þeim það. Allra mikilvægast er að dýrin sleppi ekki út. 
  • Gott er að tala rólega en glaðlega við dýrin, til að sannfæra þau um að heimurinn sé ekki að farast. Jafnvel er hægt að gefa þeim smá dýranammi meðan eða strax á eftir hvelli, svo þau tengi þessi læti einhverju jákvæði. Strokur og snerting eiganda róar einnig flest dýr og veitir þeim styrk.
  • Þegar það versta gengur yfir ber að að halda dýrunum inni, gjarna í rými sem þau þekkja, loka og byrgja glugga og hafa tónlist í gangi. Yfirleitt er best að hafa ljósin kveikt, til að draga úr ljósaglömpum. Fyrir hunda er jafnvæl hægt að prófa að nota eyrnartappa, sumir sætta sig við það, aðrir ekki.
  • Ef ofangreint er ekki talið nægjanlegt, þá er gæludýraeigendum ráðlagt að tala við sinn dýralækni vel tímanlega fyrir áramót og fá ráðleggingar. Hægt er að fá lyfseðil fyrir kvíðadempandi lyf og þá er mikilvægt að byrja ekki meðhöndlun of seint þegar dýrið er komið í hræðslukast, en þá er virknin mun takmarkaðri. En varað er við að gefa dýrum nokkur lyf nema í samráði við dýralækni. 
  • Þó hundar virðist rólegir skyldi ekki taka hundana með út, hvorki á brennur né til að skjóta flugeldum. Blys og rakettur geta skotist í allar áttir og annað fólk getur stundum verið óútreiknanlegt, þannig að slíkt umhverfi er alls ekki hundavænt. Munið að hundar heyra mun betur en við. Hundur sem verður fyrir mjög slæmri upplifun getur borið skaða af því ævilangt. Einnig þó hundur virðist rólegur getur hann í raun verið ofsahræddur, en bara verið í hálfgerðu lömunarástandi af hræðslu.
  • Ungum dýrum sem eru að upplifa sín fyrstu áramót þarf að sýna sérstaka aðgát. Dagarnir fyrir áramót geta gefið vísbendingu um hvað verða vill.
  • Ef reynslan sýnir að dýr verður ofsahrætt við lætin kringum áramótin er ráðlagt að byrja þjálfun fyrir næsta ár einhverjum mánuðum fyrr. Hljóð af sprengjum og látum er t.d. hægt að finna á YouTube sem er hægt að venja þau við hægt og rólega, og samtímis nota jákvæða styrkingu. Of seint er að byrja slíka þjálfun nokkrum dögum fyrr og getur það gert illt verra.
  • Einnig fæst hjá mörgum dýralæknum róandi lykt ýmist í hálsbandi, eða til að setja í innstungu og er gott að setja slíkt upp ekki seinna en 2 vikum fyrir áramót.
  • Allra mikilvægast er alltaf að dýrin séu í öruggu umhverfi og njóti stuðnings eiganda sinna.
Annað innbrot í svínabú Stjörnugríss
Fréttir 2. september 2026

Annað innbrot í svínabú Stjörnugríss

Annað innbrot átti sér stað í morgun þegar að svínum Stjörnugríss var sleppt út ...

Fjölbreytt verkefni fram undan
Fréttir 2. september 2026

Fjölbreytt verkefni fram undan

Hjá Byggðastofnun er ýmislegt á döfinni með haustinu, en m.a. hefur stjórnin ákv...

Málþing um vinnu, Sturlungu, goðafræði og Gerplu
Fréttir 2. september 2026

Málþing um vinnu, Sturlungu, goðafræði og Gerplu

Málþing var haldið í Kakalaskála laugardaginn 29. ágúst klukkan 14 þar sem fjóri...

Bókmenntahátíðin Haustgildi næstu helgi
Fréttir 2. september 2026

Bókmenntahátíðin Haustgildi næstu helgi

Haustgildi, bókmenntahátíð Bókabæjanna austanfjalls, verður haldin dagana 5. og ...

Halla Sif meðal 100 kvenhetja
Fréttir 2. september 2026

Halla Sif meðal 100 kvenhetja

Halla Sif Svansdóttir Hölludóttir, garðyrkjubóndi og eigandi Sólskins grænmetis,...

Óska eftir tilnefningum fyrir framúrskarandi árangur í lífrænni ræktun
Fréttir 1. september 2026

Óska eftir tilnefningum fyrir framúrskarandi árangur í lífrænni ræktun

Atvinnuvegaráðuneytið óskar eftir tilnefningum til viðurkenningar fyrir framúrsk...

Gjaldtaka hafin á nýjum hringveg um Hornafjörð
Fréttir 1. september 2026

Gjaldtaka hafin á nýjum hringveg um Hornafjörð

Gjaldtaka á nýjum hringveg um Hornafjörð hófst í dag. Vegurinn var opnaður fyrir...

Auglýst eftir umsækjendum um stuðning til söfnunar ullar
Fréttir 1. september 2026

Auglýst eftir umsækjendum um stuðning til söfnunar ullar

Atvinnuvegaráðuneytið auglýsir eftir umsækjendum um stuðning til söfnunar ullar ...