Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 4 mánaða.
Mikilvægi moldar
Fréttir 16. júní 2026

Mikilvægi moldar

Höfundur: Karólína Rós Ólafsdóttir

Mikilvægi moldar var rædd á málþingi í Norræna húsinu 4. júní síðastliðinn. Þar var fjallað um moldina sem eina mikilvægustu en vanmetnustu auðlind jarðar.

Á málþinginu héldu vistfræðingurinn Thomas Crowther, prófessor við ETH Zürich og Kristín Sigurðardóttir, slysa- og bráðalæknir erindi. Kristín talaði um tengsl heilbrigðrar moldar og heilbrigðs fólks út frá heildrænni sýn á heilsu.

Um 95% þeirrar fæðu sem mannkynið neytir á uppruna sinn í jarðvegi og gegnir hann lykilhlutverki í hringrás næringarefna, hreinsun vatns og bindingu kolefna. Kristín lagði meðal annars áherslu á góð matvæli og merkingu þeirra. Henni finnst vöntun á skýrum reglugerðum varðandi merkingu matvæla á Íslandi. „Ég vil vita hvaðan maturinn minn kemur, frá hvaða búum hann kemur og hvað fer í matvælin, þegar ég hef kost á því vel ég frekar lífrænt ræktað, því það vantar gjarnan upplýsingar. Eins og með möguleg eiturefni í ræktun eða jarðvegi þá vil ég fá að vita með saltið okkar, er mikið plast í því eða ekki, hvernig eru snefilefnin í því? Gegnsæi og upplýsing skiptir öllu máli.“ Bein snerting við mold hefur jákvæð áhrif á ónæmiskerfið og minnti Kristín á að við erum órjúfanlegur partur af náttúrunni. „Ekki hika við að sleppa hönskununum í garðyrkjunni,“ segir Kristín.

Að málþinginu loknu var pallborð með Kristínu, Ólafi Arnalds, prófessor emeritus í jarðvegsfræði við Landbúnaðarháskóla Íslands, og Salvöru Jónsdóttur skipulagsfræðingi. Ólafur lagði áherslu á að tala um moldina sem auðlind og að fjalla ætti um jarðveginn með einbeittari hætti í námsefni frá unga aldri. „Náttúruverndarsamtök hafa gleymt moldinni í baráttunni,“ segir Ólafur og vill aukna áherslu á endurheimt lands og jarðvegs á Íslandi. Bæði sögðu Kristín og Ólafur að bæta þyrfti samband okkar við jarðveginn. „Heilbrigður jarðvegur er undirstaða nær alls lífs á landi og okkur á því að þykja miklu vænna um jarðveginn,“ segir Kristín.

Skylt efni: Jarðvegur | mold

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn
Fréttir 28. október 2026

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn

Í sumar var endurnýjaður samningur Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins (RML) við ...

Verðhækkun um 2,5% tryggð
Fréttir 28. október 2026

Verðhækkun um 2,5% tryggð

Bændur huga brátt að áburðarmálum næsta ræktunartímabils. Í rúmlega 10 ár hefur ...

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir
Fréttir 28. október 2026

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir

Stjórn Byggðastofnunar hefur ákveðið að auka fjárframlög til verkefnisins Brothæ...

Sjálfbær þróun með sólarorku
Fréttir 27. október 2026

Sjálfbær þróun með sólarorku

Eins og frá var greint í síðasta tölublaði Bændablaðsins er stærsta birtuorkuver...

Þór hf. hættir með DEUTZ-FAHR dráttarvélar
Fréttir 27. október 2026

Þór hf. hættir með DEUTZ-FAHR dráttarvélar

Þór hf. og SDF hafa komist að sameiginlegri niðurstöðu um að ljúka samstarfi um ...

Samræmdar aðferðir þróaðar við vöktun á rusli í vatni
Fréttir 27. október 2026

Samræmdar aðferðir þróaðar við vöktun á rusli í vatni

Matís stýrir stóru evrópsku verkefni sem felst í að þróa samræmdar og hagkvæmar ...

Áform um matvælakjarna  og votlendissetur
Fréttir 27. október 2026

Áform um matvælakjarna og votlendissetur

Hjá Landbúnaðarháskóla Íslands (LbhÍ) er í undirbúningi verkefni sem felst í að ...

Skinka úr íslensku svínakjöti
Fréttir 26. október 2026

Skinka úr íslensku svínakjöti

Stjörnugrís er eini framleiðandinn sem framleiðir skinku aðeins úr íslensku svín...