Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 4 mánaða.
Á undanförnum misserum hefur notkun LED-lampa aukist í gróðurhúsum á Íslandi og eru útfærslurnar fjölbreyttar. Hér sést hvar salatblöð hjá gróðrarstöðinni Lambhaga eru ræktuð á færibandi undir LED-lýsingu hluta vaxtartímans.
Á undanförnum misserum hefur notkun LED-lampa aukist í gróðurhúsum á Íslandi og eru útfærslurnar fjölbreyttar. Hér sést hvar salatblöð hjá gróðrarstöðinni Lambhaga eru ræktuð á færibandi undir LED-lýsingu hluta vaxtartímans.
Mynd / ál
Fréttir 12. júní 2026

Mikill gangur í LED-væðingu

Höfundur: Ástvaldur Lárusson

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið hefur veitt fjármunum á undanförnum misserum til þess að styðja garðyrkjubændur til fjárfestinga á LED-lömpum í gróðurhúsum. Með breyttri lýsingu tekst bændum að spara orku.

„Núna eru mörg gróðurhús búin að setja upp LED-lýsingu eða eru að vinna að því,“ segir Georg Ottósson í samtali. Hann rekur garðyrkjustöðvarnar Flúða-Jörfa og Flúðasveppi. „Við garðyrkjubændur komum skilaboðunum til stjórnvalda og það verður að segjast eins og er að ríkisstjórnin sem nú er við völd tók þátt í þessari þróun með því að veita styrk úr orkusjóði til kaupa á LED-ljósum. Með því hefur LED-væðingin í íslenskri garðyrkju verið tekin skrefinu lengra.

Þetta er búið að vera í deiglunni í mörg ár, en það eru tíu til fimmtán ár síðan fyrstu LED-ljósin komu í gróðurhús. Það sem háði okkur lengst af í garðyrkjunni var helst verðið á lömpunum, en fyrir ekki nema fimm árum var fjárfestingin einstaklega íþyngjandi. Þessi LEDvæðing er ekki bara í gróðurhúsum, heldur er þetta komið víða, enda eyða LED-ljós miklu minna rafmagni en eldri tækni miðað við ljósmagn. Þróunin hefur verið ört vaxandi síðustu árin og núna fannst okkur á garðyrkjustöðinni FlúðaJörfa ástæða til að fara af stað aftur og hafa fleiri stórar stöðvar á Íslandi.

Í okkar tilfelli vorum við með gamla natríumlampa sem við höfðum áfram til taks í húsinu og bættum LED-lýsingunni við. Það er ekki svo auðvelt að skipta yfir án nokkurra breytinga, þar sem LEDlýsingin gefur ekki sama hitann. En miðað við sama ljósmagn er hægt að áætla að við spörum 30 prósent orkunnar, eða meira. Ég vona að stjórnvöld haldi áfram að styrkja garðyrkjubændur á þessari vegferð, því að LED-lýsingin sparar rafmagn sem gæti nýst fyrir þúsundir heimila. Peningunum er vel varið og er árangurinn mikill og sýnilegur.

Í Flúða-Jörfa ræktum við meðal annars paprikur og hefur það gengið vel yfir dimmasta tímann í vetur. Þegar kemur að lýsingu er paprikan erfiðari við að eiga en til að mynda tómatar og gúrkur. Hún þarf ljósgeisla sem við fáum frá sólinni en ekki hefðbundinni raflýsingu, á meðan LED gefur möguleika á að breyta hlutfallinu á milli ólíkra geisla. Paprikunni líður vel undir þessari lýsingu því að þarna fær hún jafnvægi milli geisla sem við höfum verið að leita eftir og við getum stjórnað því mjög nákvæmlega. Ég geri ráð fyrir að þetta muni þróast enn meira á næstu árum. Þetta mun breyta miklu í framleiðslu á papriku yfir háskammdegið í nóvember, desember og janúar,“ segir Georg.

Fengju reikning fyrir skemmdum með nýju frumvarpi
Fréttir 23. október 2026

Fengju reikning fyrir skemmdum með nýju frumvarpi

Stjórnvöld fengju auknar heimildir til að bregðast við ólögmætum utanvegaakstri ...

Ákall um að verja landbúnaðarstefnuna
Fréttir 23. október 2026

Ákall um að verja landbúnaðarstefnuna

Stokkhólmsyfirlýsing evrópskra bænda er afdráttarlaus og hvetur ráðamenn ríkja E...

Sýknuð vegna ágangs sauðfjár
Fréttir 23. október 2026

Sýknuð vegna ágangs sauðfjár

Héraðsdómur Austurlands hefur sýknað Fjarðabyggð af kröfu Hrefnu Dagbjartar Arna...

Fuglavernd mótmælir harðlega skotveiðum á bjargdúfum í Vestmannaeyjum
Fréttir 23. október 2026

Fuglavernd mótmælir harðlega skotveiðum á bjargdúfum í Vestmannaeyjum

Stjórn Fuglaverndar sendi nýlega bréf á umhverfis- orku og loftlagsráðuneytinið ...

Óánægja vegna gjalds á þrjá ferðamannastaði
Fréttir 23. október 2026

Óánægja vegna gjalds á þrjá ferðamannastaði

Mikil óánægja í Bláskógabyggð með gjald á þrjá ferðamannastaði. Íbúar Bláskógaby...

Terraforming LIFE á leið í umhverfismat
Fréttir 23. október 2026

Terraforming LIFE á leið í umhverfismat

Áburðar- og lífgasverksmiðja Terraforming LIFE, sem fyrirhugað er að reisa í Þor...

Halla tekur á móti viðurkenningunni
Fréttir 23. október 2026

Halla tekur á móti viðurkenningunni

Sólskins-garðyrkjubóndinn Halla Sif Svansdóttir Hölludóttir tók á dögunum á móti...

Vilja fella tollabreytingar úr frumvarpi
Fréttir 23. október 2026

Vilja fella tollabreytingar úr frumvarpi

Bændasamtök Íslands gera verulegar athugasemdir við frumvarpsdrög fjármála- og e...