Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 5 ára.
MG ZS EV er 143 hestöfl og á að komast 263 km á einni hleðslu.
MG ZS EV er 143 hestöfl og á að komast 263 km á einni hleðslu.
Mynd / HLJ
Á faglegum nótum 7. ágúst 2020

MG ZS EV – 100% rafdrifinn fimm manna fólksbíll

Höfundur: Hjörtur L. Jónsson - liklegur@internet.is
Í júní síðastliðnum frumsýndi BL nýjan rafmagnsbíl sem ber nafnið MG ZS EV. Um síðustu helgi gafst mér kostur á að prófa bílinn. Satt best að segja var ég mun ánægðari með bílinn eftir aksturinn en áður en ég prófaði hann!  
 
Samkvæmt orðabók er þetta ekki jeppi eða jepplingur
 
Ég er ekki vanur að byrja bíla­um­fjöllun á neikvæðum nótum, en nú verð ég: Að nota villandi og rangan texta til að fá fólk til að skoða bíla er ekki meðmæli með kynningu á nýjum bílum. Við sem teljum okkur vera ábyrga „bílablaðamenn“ eigum ekki að taka þátt í lygunum með því að kalla eindrifsbíla jepplinga, jeppa eða smájeppa. 
 
Í kynningartexta um bílinn segir á heimasíðu BL: „MG ZS EV er 100% rafdrifinn fimm manna fram­hjóladrifinn og ríkulega búinn smájeppi.“ Maður á ekki að ljúga, þetta er ekki jeppi, jepplingur eða smájeppi! Til að nota orðið jeppi verður bíllinn, fyrir mér a.m.k. (og samkvæmt orðabók), að vera fjórhjóladrifinn. BL til varnar þá er það ekki eina umboðið sem hefur ranglega kynnt bíla sem jeppa, jepplinga eða smájeppa sem eru bara með drif á einum öxli.
 
Niðurtalning á kílómetrum af rafhlöðu tiltölulega rétt
 
Þegar ég fékk bílinn til prufuaksturs hafði hann verið í prufuakstri yfir daginn og því ekki fullhlaðinn. Samkvæmt mælaborði átti ég að geta komist 212 km. Vitandi það að með mínu aksturslagi væri þetta ekki sá kílómetrafjöldi sem ég kæmist. Fyrir fram taldi ég mig varla ná helmingi af þessum kílómetrum af fenginni reynslu af rafmagnsbílum, en eftir 84 km sýndi aksturstölvan mér að ég ætti 120 km eftir á rafhlöðunni. Greinilegt að þessi bíll var að telja niður meira í takt við minn akstur í samanburði við aðra rafmagnsbíla sem telja hraðar niður. Þrátt fyrir að ég hafi verið með hita í sætum, ljós kveikt, mest í sportstillingunni og fleira sem talið er eyða miklu rafmagni.
 
Það fer ekki mikið fyrir rafmagnsvélinni í samanburði við hefðbundnar dísil- eða bensínvélar.
 
Kraftmikil vél og mikið af öryggisbúnaði
 
Samkvæmt bæklingi á vélin að skila 143 hestöflum. Þessi hestöfl skila bílnum úr kyrrstöðu upp í umferðarhraða á mun skemmri tíma en minn 178 hestafla bíll sé hann stilltur á sportstillinguna (snerpustillingar eru þrjár: eco, normal og sport. Uppgefin hröðun úr 0 í 100 er 8,2 sek.). Í bílnum er mikið af öryggis- og þægindabúnaði, s.s. hraðastillir sem fylgir bílnum á undan, akreinalesari, blind­hornsvari, neyðar­bremsu­aðstoð og sjálfvirk neyðarhemlun, hemla­jöfnun, brekku­aðstoð og margt fleira. 
 
Að keyra bílinn er ljúft, sætin eru góð og bíllinn rennur áfram nánast hljóðlaust. Í hefðbundinni hávaðamælingu á 90 km hraða mældist hávaðinn inni í honum 68–70 db (sem er betra en margir aðrir rafmagnsbílar sem ég hef mælt). Á malarvegi er bíllinn frekar stífur, en bíllinn sem var prófaður var á 17 tommu felgum og nánast enginn prófíll í dekkjunum (Comfort bíllinn kemur á 16 tommu felgum og á hærri dekkjum sem ætti að vera betra á möl). Tiltölulega lítið smásteinahljóð heyrist undir bílnum á malarvegum.
 
Frábær kaup í þessum bíl
 
MG Comfort er á verði frá 3.990.000 kr. (sá ódýrari) og bíllinn sem prófaður var heitir Luxury og kostar 4.390.000 kr.  Gott verð miðað við hvað mikið er í bílnum af alls konar aukabúnaði. Vel hljóðeinangraður, gott að keyra –þá er þetta verð mjög gott! (Þetta er í fyrsta sinn, síðan ég prófaði Jaguar-rafmagnsbílinn, að mig langar að eiga bílinn sem ég prófa). 
 
Ekki alveg gallalaus 
 
Bíllinn er samt ekki alveg gallalaus. Það þarf að kveikja afturljósin þegar bjart er úti svo að maður sé löglegur í akstri. Við það dofna svo mikið öll ljós í mælaborðinu að erfitt er að sjá sumt í mælaborðinu. Svo er það þessi hefðbundna kvörtun mín þegar ekkert varadekk er í bílnum að bíllinn fær hjá mér mínus fyrir það. 
 
Helstu mál og upplýsingar:
 
Þyngd 1.491 kg
Hæð 1.644 mm
Breidd 1.809  mm
Lengd 4.314 mm
 

 

Reglulegar kvikmyndasýningar
Fréttir 17. apríl 2026

Reglulegar kvikmyndasýningar

Laugardaginn 18. apríl verður myndin Duggholufólkið sýnd á vegum Bíóteksins á Þi...

Fosfór úr landeldisseyru gerður nýtanlegur til áburðar
Fréttir 17. apríl 2026

Fosfór úr landeldisseyru gerður nýtanlegur til áburðar

Hjá Matís er nú unnið að verkefni sem hefur það að markmiði að vinna fosfór úr f...

Beðið útgáfu reglugerðar um eyrnamerki í sauðfé
Fréttir 16. apríl 2026

Beðið útgáfu reglugerðar um eyrnamerki í sauðfé

Á deildarfundi sauðfjárbænda hjá Bændasamtökum Íslands (BÍ) á Búnaðarþingi í mar...

Tæp fjörutíu prósent telja áframhaldandi búskap ekki tryggðan
Fréttir 16. apríl 2026

Tæp fjörutíu prósent telja áframhaldandi búskap ekki tryggðan

Niðurstöður könnunar sýna að skiptar skoðanir eru meðal bænda um það hvort áfram...

Nýsjálenskt lambakjöt á Íslandi
Fréttir 16. apríl 2026

Nýsjálenskt lambakjöt á Íslandi

Heildsalan Danól er handhafi WTO intnflutningskvóta á lambakjöti og hefur flutt ...

Nauðsynlegt að samningsmarkmið liggi skýrt fyrir
Fréttir 16. apríl 2026

Nauðsynlegt að samningsmarkmið liggi skýrt fyrir

Bændasamtök Íslands (BÍ) segja í umsögn, um tillögu til þingsályktunar um þjóðar...

Kynbótasýningar 2026 og val kynbótahrossa á Landsmót
Fréttir 15. apríl 2026

Kynbótasýningar 2026 og val kynbótahrossa á Landsmót

Nú er búið að stilla upp áætlun fyrir kynbótasýningar árið 2026 og er hún komin ...

Djúpborunarverkefni fékk hæsta styrkinn
Fréttir 15. apríl 2026

Djúpborunarverkefni fékk hæsta styrkinn

Áfram heldur Loftslags- og orkusjóður að styðja við nýsköpun og tækiþróun í nýti...