Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 2 mánaða.
Matvælaframleiðsla í skugga síaukins kostnaðar
Mynd / ál
Skoðun 29. maí 2026

Matvælaframleiðsla í skugga síaukins kostnaðar

Höfundur: Margrét Gísladóttir

Á undanförnum árum hefur ítrekað verið gripið til umfangsmikilla „björgunarpakka“ innan ESB til að verja atvinnulíf, orkuöryggi og matvælaframleiðslu gegn margvíslegum áföllum á alþjóðavettvangi. Fyrst kom tímabundið ríkisaðstoðarkerfi vegna Covid-19 og síðan sérstakur stuðningur vegna innrásar Rússlands í Úkraínu. Aðildarríki ESB nýttu þessi úrræði í ríkum mæli til að verja eigin framleiðslugetu, styðja innlend fyrirtæki og tryggja fæðuöryggi.

Nú hefur framkvæmdastjórn ESB kynnt nýjan björgunarpakka, svokallað METSAF (Middle East crisis Temporary State Aid Framework), vegna þeirrar orkukrísu sem skapast hefur í kjölfar átakanna í MiðAusturlöndum og lokunar Hormússunds. Gert er ráð fyrir að átökin muni leiða til verulegra hækkana á orkuverði, flutningskostnaði og ekki síst áburði, sem er eitt mikilvægasta aðfang landbúnaðar í Evrópu.

METSAF hefur þegar tekið gildi og mun vara út þetta ár. Um er að ræða heimild aðildarríkja til að styrkja atvinnugreinar sem verða fyrir miklum kostnaðarhækkunum, þar á meðal landbúnað. Gert er ráð fyrir að ríki geti bætt allt að 70% af hækkunum á eldsneytis- og áburðarkostnaði sem rekja má til átakanna. Í METSAF felst því skýr pólitísk yfirlýsing um að matvælaframleiðsla sé mikilvægur hluti af öryggi og viðnámsþrótti Evrópu.

Íþyngjandi regluverk eykur kostnað enn frekar

Kostnaðarþrýstingurinn á landbúnað er þó ekki aðeins tilkominn vegna tímabundinna stríðsátaka. Regluverk þyngist og eykur kostnað – að því er virðist með hverjum deginum. Má þar nefna hið svokallaða CBAM-kerfi (Carbon Border Adjustment Mechanism) ESB, kolefnisjöfnunarkerfi á innflutning, sem nær meðal annars til áburðarframleiðslu. Markmið CBAM er að koma í veg fyrir að kolefnisfrek framleiðsla flytjist frá Evrópu, en áhrifin verða einnig þau að verð á áburði og öðrum orkufrekum aðföngum mun hækka og að öllum líkindum haldast hátt til lengri tíma.

Langtímabreytingar kalla á aukna seiglu

Ísland er ekki aðildarríki ESB og hefur því verulegt svigrúm til að móta eigin ríkisstyrkjakerfi og stuðningsaðgerðir á sviði landbúnaðar. Íslenskur landbúnaður er mjög háður innfluttum aðföngum á borð við áburð, eldsneyti og fóður og hækkanir á heimsmarkaðsverði skila sér því beint inn í rekstur bænda og matvælafyrirtækja hérlendis. Á meðan Evrópuríki markvisst styrkja viðnámsþrótt sinna matvælakerfa hefur enn ekki komið fram skýr afstaða íslenskra stjórnvalda til þess hvernig við ætlum að tryggja samkeppnishæfni okkar og fæðuöryggi til lengri tíma. Íslensk stjórnvöld hafa vissulega gripið til þeirrar aðgerðar að lækka tímabundið virðisaukaskatt á eldsneyti til að milda áhrif hækkandi orkukostnaðar, en hins vegar hefur ekkert enn komið fram um hvernig – eða jafnvel hvort – verja eigi innlenda matvælaframleiðslu gagnvart þeim langtímabreytingum sem nú eru að verða á orku- og aðfangamörkuðum.

Á sama tíma hafa Norðmenn tekið mið af hækkandi aðfangakostnaði og lagt aukna áherslu á fæðuöryggi í sínum búvörusamningum og landbúnaðarstefnu. Þar ríkir skýr skilningur á því að ef rekstrargrundvöllur bænda veikist, þá sé það ógn við fæðuöryggi þjóðarinnar. Má sjá skýr merki um það í nýjum búvörusamningum í Noregi fyrir árið 2026 sem kynntir voru 16. maí síðastliðinn.

Spurningin sem íslensk stjórnvöld þurfa nú að svara er því hvort matvælaframleiðsla sé einfaldlega venjuleg atvinnugrein eða hluti af þjóðaröryggi landsins. ESB og Noregur hafa þegar svarað þeirri spurningu skýrt. Þar er verið að byggja upp langtímaviðbrögð við nýjum veruleika þar sem aðföng verða dýrari, orkukostnaður sveiflukenndari og fæðuöryggi sífellt mikilvægara. Ísland má ekki dragast aftur úr í þeirri umræðu.

Höfundur er framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í landbúnaði.

Umfangsmiklar breytingar yrðu á  stuðningskerfi landbúnaðar við ESB-aðild
Fréttir 28. ágúst 2026

Umfangsmiklar breytingar yrðu á stuðningskerfi landbúnaðar við ESB-aðild

Ný áfangaskýrsla um endurskoðun stuðningskerfis íslensks landbúnaðar dregur upp ...

Veikindi í hestum á Norðurlandamóti íslenska hestsins í Svíþjóð
Fréttir 28. ágúst 2026

Veikindi í hestum á Norðurlandamóti íslenska hestsins í Svíþjóð

Veikindi komu upp í hrossum danska landsliðsins á nýafstöðnu Norðurlandamóti ísl...

Bakteríur segja ósýnilega sögu
Fréttir 28. ágúst 2026

Bakteríur segja ósýnilega sögu

Rannveig Þórhallsdóttir, doktorsnemi í fornleifafræði við Háskóla Íslands, skoða...

Umsögn um byggðastefnu lokið
Fréttir 27. ágúst 2026

Umsögn um byggðastefnu lokið

Gert er ráð fyrir tæpum fjórum milljörðum króna í framlög til byggðaáætlunar á á...

Handtökur vegna innbrots
Fréttir 27. ágúst 2026

Handtökur vegna innbrots

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur handtekið fólk sem grunað er um að tengist ...

Skógræktarátak
Fréttir 27. ágúst 2026

Skógræktarátak

„Við erum auðvitað svolítið stórhuga að ætla okkur að planta 50.000 trjám árlega...

Lokanir vegna viðhaldsvinnu
Fréttir 26. ágúst 2026

Lokanir vegna viðhaldsvinnu

Núna er unnið að viðgerðum á brúni sem liggur yfir Jökulsá á Fjöllum við Hringve...

Íslenskt handverk í hávegum
Fréttir 22. ágúst 2026

Íslenskt handverk í hávegum

Safnasafnið, ein af perlum Eyjafjarðar, var stofnað þann 17. febrúar 1995 af hjó...