Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 4 mánaða.
Litur eyrnamerkja gefinn frjáls
Mynd / Zosia Szopka
Fréttir 15. júní 2026

Litur eyrnamerkja gefinn frjáls

Höfundur: Þröstur Helgason

Litur eyrnamerkja í sauðfé er gefinn frjáls í drögum að reglugerðarbreytingu um búfjármörk, markaskrár og takmörkun á sammerkingum búfjár.

Litur eyrnamerkja í sauðfé er gefinn frjáls með breytingum á reglugerð um búfjármörk, markaskrár og takmarkanir á sammerkingum búfjár nr. 200/1998. Í kynningu á reglugerðinni segir að þetta sé eina efnislega og veigamikla breytingin sem lögð er til. Hingað til hefur sauðfjárbændum borið skylda til að nota tiltekna liti á eyrnamerki sauðfjár, allt eftir því hvaða varnarhólfi þeir tilheyra.

„Í áranna rás hefur varnarhólfum fækkað, en litir eyrnamerkja hafa haldist óbreyttir á „afmörkuðum landsvæðum“ sem upphaflega voru stök varnarhólf. Af þessari ástæðu eru í dag nokkrir litir (allt að fjórir litir) í einu og sama varnarhólfinu og því hefur litamerking misst upphaflegt gildi sitt. Við þessu er brugðist með því að setja ákvæði í reglugerðina um merkingar og skráningar dýra þess efnis að litur eyrnamerkja í sauðfé er gefinn frjáls.“

Breytingar á reglugerðinni eru annars nokkuð víðtækar, en eru þó flestar ætlaðar til samræmingar þannig að ákvæði sem fjalla um skyldumerkingar og samsetningu auðkenna eru tekin út, t.d. örmerkingar hrossa og þeim efnislega gerð skil í nýrri reglugerð um merkingar og skráningar dýra.

Þannig mun reglugerðin eingöngu fjalla um mörkun dýra sem í flestum tilvikum er ekki skylt að gera, heldur leyfilegt að framkvæma og þá með tilteknum skilyrðum sem byggja á aldargömlum hefðum. Þó er skylt að marka lömb. Mörk, hvort heldur þau eru eyrnamörk, brennimörk eða frostmörk eru hópmerking og voru upphaflega til þess að sýna fram á eignarhald og uppruna til hjarðar.

Reglugerðin er í samráðsgátt og er þar til umsagnar til 3. júlí.

Skylt efni: sauðfjárrækt | eyrnamörk

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn
Fréttir 28. október 2026

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn

Í sumar var endurnýjaður samningur Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins (RML) við ...

Verðhækkun um 2,5% tryggð
Fréttir 28. október 2026

Verðhækkun um 2,5% tryggð

Bændur huga brátt að áburðarmálum næsta ræktunartímabils. Í rúmlega 10 ár hefur ...

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir
Fréttir 28. október 2026

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir

Stjórn Byggðastofnunar hefur ákveðið að auka fjárframlög til verkefnisins Brothæ...

Sjálfbær þróun með sólarorku
Fréttir 27. október 2026

Sjálfbær þróun með sólarorku

Eins og frá var greint í síðasta tölublaði Bændablaðsins er stærsta birtuorkuver...

Þór hf. hættir með DEUTZ-FAHR dráttarvélar
Fréttir 27. október 2026

Þór hf. hættir með DEUTZ-FAHR dráttarvélar

Þór hf. og SDF hafa komist að sameiginlegri niðurstöðu um að ljúka samstarfi um ...

Samræmdar aðferðir þróaðar við vöktun á rusli í vatni
Fréttir 27. október 2026

Samræmdar aðferðir þróaðar við vöktun á rusli í vatni

Matís stýrir stóru evrópsku verkefni sem felst í að þróa samræmdar og hagkvæmar ...

Áform um matvælakjarna  og votlendissetur
Fréttir 27. október 2026

Áform um matvælakjarna og votlendissetur

Hjá Landbúnaðarháskóla Íslands (LbhÍ) er í undirbúningi verkefni sem felst í að ...

Skinka úr íslensku svínakjöti
Fréttir 26. október 2026

Skinka úr íslensku svínakjöti

Stjörnugrís er eini framleiðandinn sem framleiðir skinku aðeins úr íslensku svín...