Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 9 mánaða.
Lífverur í jarðvegi, hinn ósýnilegi grunnur lífs á landi
Á faglegum nótum 25. febrúar 2026

Lífverur í jarðvegi, hinn ósýnilegi grunnur lífs á landi

Höfundur: Hilmar Njáll Þórðarson, sérfræðingur hjá Landi og skógi.

Þegar talað er um líffræðilega fjölbreytni á landi hugsa margir um spendýr, fugla, skordýr eða plöntur. Hinir áhugasömustu leiða jafnvel hugann að mosategundum eða fléttum. En undir fótum okkar er annar heimur sem flestir sjá aldrei og fáir hugsa um, jarðvegslífið. Til að setja það í samhengi er stundum sagt að í einni teskeið af jarðvegi geti leynst milljarðar lífvera. Prófaðu að loka augunum og ímynda þér milljarð fugla, plantna og dýra. Hugurinn nær ekki utan um stærðargráðuna og kannski er það ein ástæða þess að jarðvegslíf fær oft minna vægi í umræðu um náttúruvernd. Þrátt fyrir það er jarðvegslífið undirstaða þess sem gerist ofanjarðar.

Í jarðvegi lifa örverur og jarðvegsdýr, allt frá bakteríum og sveppum til frumdýra, þráðorma, ánamaðka og skordýra. Þessar lífverur brjóta niður dauð lauf og rætur, umbreyta lífrænum leifum í jarðveg, endurvinna næringarefni og auka þannig frjósemi jarðvegs. Jafnframt mótar jarðvegslífið kolefnishringrásina, bæði hversu hratt kolefni losnar út í andrúmsloftið og hversu mikið binst í jarðvegi til lengri tíma. Sumar örverur, einkum bakteríur, geta jafnvel tileinkað sér nýja eiginleika með láréttum genaflutningi, þ.e. þegar erfðaefni flyst milli lífvera. Þannig geta gen færst á milli ólíkra lífvera og breytt því hvaða hlutverk örverur gegna, til dæmis hvaða efni þær geta brotið niður eða hvernig þær bregðast við álagi.

Þetta skiptir miklu máli á Íslandi. Jarðvegur hér er víða ungur, oft næringarsnauður og mótaður af harðneskjulegu veðurfari. Sums staðar hefur land einnig orðið fyrir rofi og raski. Þegar vistkerfi veikist eða breytist hverfa ekki bara plöntur, jarðvegslífið breytist líka. Þá getur orðið erfiðara fyrir gróður að festa sig í sessi. Margar plöntur ná til dæmis síður fótfestu ef samskipti þeirra við sveppi og bakteríur eru takmörkuð. Þess vegna skiptir heilbrigður jarðvegur og virkt jarðvegslíf miklu máli, ekki bara fyrir endurheimt vistkerfa, heldur líka fyrir ræktun og sjálfbæra nýtingu lands.

Á síðustu árum hefur orðið bylting í því hversu aðgengilegt og nákvæmt er að greina jarðvegslíf. Með raðgreiningu á erfðaefni sem finnst í umhverfinu má lesa örlitlar leifar af DNA sem lífverur skilja eftir sig, til dæmis úr frumum, gróum eða rotnandi vefjum. Þannig má greina hvaða lífverur eru til staðar í jarðvegi án þess að rækta þær á rannsóknarstofu, sem skiptir máli því stóran hluta jarðvegslífvera er erfitt eða jafnvel ómögulegt að rækta með hefðbundnum aðferðum. En hér þarf gagnrýna hugsun. DNA segir ekki alla söguna. Það sýnir hvaða lífverur eru eða voru til staðar nýlega, en ekki endilega hvað þær eru að gera núna, og getur jafnvel verið frá dauðum lífverum.

Meiri fjölbreytni er heldur ekki sjálfkrafa betri. Stóra spurningin er hvaða lífverur og hvaða samsetning skilar mestri virkni, jarðvegi sem bindur kolefni, styður gróður og bætir þol vistkerfa og stendur af sér áföll. Ef við ætlum að endurheimta land og byggja upp heilbrigð vistkerfi verðum við að skoða jarðvegslífið, ekki sem aukaatriði heldur sem grunnkerfi. Ástand jarðvegsins mótar lífið ofanjarðar, hvaða plöntur ná fótfestu og hvaða skordýr, fuglar og spendýr fylgja á eftir.

Eini háskólinn sem fær lægri krónutölu til reksturs
Fréttir 26. nóvember 2026

Eini háskólinn sem fær lægri krónutölu til reksturs

Landbúnaðarháskóli Íslands (LbhÍ) fær lægra fjármagn frá ríkinu til reksturs en ...

Túrbó-hani, hundrað svín
Fréttir 26. nóvember 2026

Túrbó-hani, hundrað svín

Í kjölfar umfjöllunar um íslenska skinku í síðasta blaði skal sjónum beint að be...

Bætt fjarskiptaöryggi á fimm stöðum
Fréttir 25. nóvember 2026

Bætt fjarskiptaöryggi á fimm stöðum

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra undirritaði nýlega tvo samninga um uppbyggin...

Hvetur alla til að skrá geitur
Fréttir 25. nóvember 2026

Hvetur alla til að skrá geitur

Skráning í skýrsluhaldsforrit geitfjárræktarinnar, Heiðrúnu, er gjaldfrjáls. Hák...

Vilhjálmur Svanberg átti bestu myndina af mýralífi
Fréttir 25. nóvember 2026

Vilhjálmur Svanberg átti bestu myndina af mýralífi

Vinningshafar í Myndasam- keppni Mýralífs árið 2026 voru Vilhjálmur Svanberg Arn...

Íbúum fjölgað um 83 prósent á tíu árum
Fréttir 24. nóvember 2026

Íbúum fjölgað um 83 prósent á tíu árum

Íbúar Hörgársveitar eru orðnir fleiri en þúsund í fyrsta sinn. Sveitarfélagið te...

Helsta verkefnið að rækta félagsauðinn
Fréttir 24. nóvember 2026

Helsta verkefnið að rækta félagsauðinn

Sverrir Bollason var kjörinn nýr formaður Skógræktarfélags Íslands (SÍ) á dögunu...

27 milljónir til verkefna á landsbyggðinni
Fréttir 24. nóvember 2026

27 milljónir til verkefna á landsbyggðinni

Innviðaráðuneytið úthlutaði 27 milljónum króna til 14 verkefna sem snúa að því a...