Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 1 árs.
Gyðja silkiormanna, LeiZu, sést hér umkringd mórberjatrjám með silkiorm á fingri. Hér t.v. má sjá dæmi um silkimölflugur
Gyðja silkiormanna, LeiZu, sést hér umkringd mórberjatrjám með silkiorm á fingri. Hér t.v. má sjá dæmi um silkimölflugur
Líf og starf 17. febrúar 2025

Lífsins þráður

Höfundur: Sigrún Pétursdóttir

Að snúa í band svo úr verði tvinni eða garn er meðal elsta handverks sem menn hafa þróað yfir árin og skemmtilegt að rekja rætur þeirra langt aftur í tímann.

Flest könnumst við við söguna um nýju föt keisarans þar sem fíngerðustu þræðir sem fundust voru ofnir saman – en reyndust svo vera vefur lyga. Næstfíngerðustu þræðir veraldar sem hægt er að vefa eru silkiþræðir en samkvæmt kínverskri goðsögn var það Lei Zu, eiginkona keisarans Huang Di, eða „Gula keisarans“, sem uppgötvaði hvernig væri hægt að vinna silki.

Sagan segir að um það bil 5000 árum f.Kr. hafi LeiZu setið undir tré í garðinum sínum með tebolla, þegar púpa silkiorms féll í teið hennar og hóf að skiljast í langa, fína þræði. LeiZu fór þá að rannsaka samsetningu þráðanna og hvort hægt væri á einhvern hátt að spinna þá í mjótt band. Sagan er nú örlítið lengri, en í dag er LeiZu í guðatölu og tilbeðin sem móðir silkiorma.

Silkiormur
Silkivinnsla í sjö þúsund ár

Silkiormar voru og eru enn þann dag í dag ræktaðir sérstaklega fyrir framleiðslu silkis, en hver púpa getur innihaldið allt að eins kílómetra löngum samfelldum þræði. Ormarnir sem lifa eingöngu í mórberjatrjám éta af mikilli áfergju, bæði nótt og dag – og hafa hamskipti þess á milli. Eftir fjórðu hamskiptin verða þeir gulleitir sem þýðir að þeir séu í þann mund að hjúpa sig með silki og þá tilvalið að dýfa þeim í heitt vatn og leysa þá úr fjötrum púpunnar. Sú aðferð hefur sem sé ekki breyst sl. sjö þúsund ár. Þetta er þó tímafrekt starf því þráðurinn er svo léttur að 10.000 til 12.500 púpur þarf í eitt kíló af silki.

Vinnsla silkis þróaðist með tímanum þó hún sé í grunninn hin sama. Þróun framleiðslunnar sem slíkrar hófst þó ekki fyrr en á 4. öld eftir Krist þegar silkið komst í hendur annarra þjóða, en Kínverjar héldu þessari uppgötvun sinni leyndri í árþúsundir og höfðu á þann hátt einkarétt á silkiframleiðslunni. Áttu bíræfnir kínverskir munkar að hafa smyglað eggjum silkiorma auk fræjum mórberjatrés með sér á ferðalagi sínu um „Silkileiðina“, mörg þúsund km verslunarleið sem tengdi Asíu við Evrópu.

Dæmi um skandínavískt rýjateppi sem var hámóðins á sjötta og sjöunda áratugnum. Myndir / timarit.is

Silki, í dag líkt og áður, er tákn um lúxus og saga þess sýnir hvernig menn geta með athugun og þrautseigju umbreytt náttúrulegum hráefnum í eitthvað stórfenglegt.

Þráðagerðin mikilvæg í heimssögunni

Vefnaður almennt byrjaði með einföldum aðferðum á borð við fléttun, þar sem fólk notaði efni sem það fann í náttúrunni, til dæmis reyr, vínvið eða gras og gerði úr þeim körfur, mottur eða einföld skjól. Ein elstu ummerki um snúnar plöntutrefjar og hör eru frá steinöld, sem benda til þess að fólk hafi þá þróað grunnatriði þráðagerðar, með það fyrir augum að sauma eða vefa. Þegar fólk tók upp landbúnað og hóf að rækta plöntur eins og hör eða bómull, auk þess að halda dýr – m.a. fyrir ull, urðu ýmis spunaverkfæri til. Þessi þróun leiddi til skilvirkari vinnslu á þráðum auk þess að marka upphafið að flóknari textílvinnu. Á Íslandi hófst vefnaður strax við landnám á 9. öld úr ull sauðfénaðar og þróuðust fljótlega ýmsar vefnaðaraðferðir sem voru nauðsynlegar daglegu lífi.

Eitt af lykilverkefnunum var að spinna ull og vefa vaðmál, sem var ekki aðeins notað fyrir fatnað heldur einnig sem gjaldmiðill í viðskiptum. Þróun vefnaðar á Íslandi var því mikilvægur hluti af sjálfbærni og efnahag þjóðarinnar.

Textílaðferðin Rögg

Röggvar, sem nafnið er dregið af, er gamalt orð notað yfir flóka sem var ofinn í vaðmál eins og þétt kögur þannig að yfir- borðið líkist feldi.

Þessir ofnu feldir kölluðust röggvarfeldur eða varafeldur, líklegt þykir að íslenskir landnámsmenn hafi lært þessa aðferð af írskum, skoskum eða enskum þrælum. Gólfteppi sjötta áratugarins sem margir kannast við sem rýjateppi, voru upphaflega kallað röggvateppi.

Auglýsingin hér til hliðar kemur frá ullarverslunninni Gefjun árið 1969 og segir í textanum: „Loksins getið þér fengið keypt efni í íslenzkt röggvateppi (ryateppi). 100% íslenzkt ullargarn, (Grettisgarn) botn, nálar og trélisti allt í einum poka.“

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum
Fréttir 16. október 2026

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum

Skæð fuglainflúensa hefur greinst í sýnum sem tekin voru úr villtum fuglum á Nor...

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir
Fréttir 16. október 2026

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir

Undanfarin fimm ár hefur Bjarki Þór Sólmundsson, matreiðslumeistari og myndlista...

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni
Fréttir 16. október 2026

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni

Kynslóðaskipti hafa orðið á garðyrkjustöðinni Hveratúni í Laugarási. Skúli Magnú...

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða
Fréttir 15. október 2026

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða

„Hagvöxtur trompar allt annað í áherslum stjórnvalda. En er hann besti mælikvarð...

Fékk nafnið Vafi
Fréttir 15. október 2026

Fékk nafnið Vafi

Eins og allir vita þá kasta hryssur á vorin og eitthvað fram eftir sumri en að þ...

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn
Fréttir 15. október 2026

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn

Í reiðhæfni, öryggi og hugrekki fær íslenski hesturinn hæstu einkunn allra kynja...

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra
Fréttir 14. október 2026

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra

Það er mikið um að vera hjá Reykjagarði á Hellu því þar er verið að byggja fjögu...

Kornskemman hefur tæplega undan
Fréttir 14. október 2026

Kornskemman hefur tæplega undan

Kornskemman, félag bænda í Eyjafirði, auglýsti móttöku á korni öðru sinni. „Við ...