Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 6 mánaða.
Riese & Müller Carrie er nytjahjól sem hægt er að nota í flest erindi innanbæjar og er hagstæðara og skemmtilegra í notkun en bílar.
Riese & Müller Carrie er nytjahjól sem hægt er að nota í flest erindi innanbæjar og er hagstæðara og skemmtilegra í notkun en bílar.
Mynd / ál
Líf og starf 18. júlí 2025

Leysir borgarbílinn af hólmi

Höfundur: Ástvaldur Lárusson

Riese & Müller Carrie er farartæki sem getur í flestum tilfellum komið í staðinn fyrir aukabílinn og í sumum tilfellum verið eini bíllinn á heimili í þéttbýli.

Þetta nytjahjól er með palli að framan sem er hugsaður til þess að flytja tvö ung börn eða farangur. Notandinn fær stuðning frá Bosch rafmagnsmótor sem fær straum úr 545 vattstunda rafhlöðu, sem dugar allt að 120 kílómetra samkvæmt framleiðanda.

Í stað keðju er Gates Carbon reim sem tengist við Enviolo stiglausa skiptingu í afturgjörðinni. Áðurnefnt reimdrif krefst sáralítils viðhalds og er mun hreinlegra en hefðbundnar keðjur. Skiptingin hefur þann kost að hægt er að skipta um gír hvenær sem er, bæði undir álagi eða þegar numið er staðar. Því lendir notandinn ekki í vandræðum ef hann stoppar skyndilega í hæsta gír.

Á hjólinu er ekki hefðbundin keðja, heldur snyrtileg og slitsterk reim.

Brekkur bíta ekki

Þar sem þetta er rafmagnshjól losnar notandinn við allar neikvæðar hliðar hjólreiða á meðan hægt er að njóta þess jákvæða. Rafhjólreiðamenn þurfa ekki að bölva mótvindi eða brekkum, því þetta tvennt bítur ekki, en geta fengið heilnæma hreyfingu og útivist. Rafmótorinn leggur sirka helming á móti vöðvaaflinu og er ekki hægt að ætlast til þess að hjólið komist áreynslulaust upp brekkur í hæsta gír, heldur þarf að skipta niður og finnst hvernig púlsinn stígur og blóðið fer á hreyfingu.

Undirritaður var yfirleitt með rafmótorinn á öflugustu stillingunni, sem er mjög þægileg og lítil ástæða til að nota nokkuð annað, enda dugði rafhlaðan auðveldlega í öll erindi í tvo daga. Hægt er að taka rafhlöðuna af eða stinga hjólinu beint í samband þegar kemur að hleðslu. Rafmagnsstuðningurinn er upp að 25 kílómetra hraða og fjarar hnökralaust út eftir það. Á sirka 26 kílómetra hraða er hjólað á vöðvaaflinu einu saman.

Lítill og einfaldur skjár á stýrinu.

Ein stærð fyrir alla

Á Riese & Müller Carrie er pallurinn hannaður þannig að hann er lítill um sig þegar hann er lokaður, en breikkar talsvert þegar hann er opnaður og rúmar þá ágætlega tvö börn eða talsvert af farangri. Kassinn er klæddur sterku frauðplasti, sem er svipað efni og er í hjólreiðahjálmum. Hámarksþyngd farms eru 80 kílógrömm, og því hægt að ferja fullorðinn einstakling ef viðkomandi er tilbúinn til að sitja í algjörum keng. Sætið í pallinum er nokkuð ofarlega, sem leiðir af sér háan þyngdarpunkt ef farþeginn er fullvaxinn. Því getur verið erfitt að taka af stað, sérstaklega upp brekkur eða í erfiðum aðstæðum. Jafnvægið er gott þegar farmurinn er léttur.

Fljótlegt er að stilla hæð á stýri og hnakka og því geta tveir einstaklingar af ólíkri stærð auðveldlega deilt hjólinu, en Riese & Muller Carrie er framleitt í einni stærð sem passar flestum. Undirritaður er 190 sentímetrar og gat komið sér þægilega fyrir. Í gafflinum að framan er dempari og í hnakkpóstinum er fjöðrun. Því finnst lítið fyrir misfellum og er hnakkurinn ágætlega þægilegur. Bremsurnar eru eins og þær séu fengnar af mótorhjóli, en þær eru vökvaknúnar og bremsudiskarnir stórir. Því er ekkert átak sem fylgir því að stoppa, þrátt fyrir þungan farm.

Auðvelt er að stilla hjólið svo það passi notendum af ólíkri stærð.

Hægt að leggja við innganginn

Á stýrinu er lítil aksturstölva þar sem hægt er að sjá hver staðan er á hleðslunni, hraða, vegalengd, klukku og fleira. Hægt er að fá þrjár útfærslur á aksturstölvunni og var hjólið í þessum prufuakstri með milligerðina. Sú dýrasta er með litaskjá og á stærð við snjallsíma, á meðan sú minnsta er afar einföld og á stærð við tölvuúr. Ljósin fara sjálfkrafa í gang þegar kveikt er á hjólinu og eru þau knúin með aðal-rafhlöðunni. Það eina sem undirritaður myndi skipta út er bjallan, en sú sem kemur frá framleiðandanum er ansi aum.

Þetta nytjahjól hentar sérlega vel í verslunarferðir þar sem hægt er að leggja beint fyrir utan innganginn og óþarft að leita að stæði. Undir pallinum er stöðugur standari sem er auðvelt að setja niður og við afturhjólið er innbyggður hjólalás (rammalás) sem er fljótlegt að loka. Upplifunin af því að hjóla á Carrie er mjög áþekk notkun hefðbundins reiðhjóls. Fyrstu kílómetrarnir fara í að venjast því að vera á svona löngu hjóli, alveg eins og það eru nokkur viðbrigði að fara aftur á hefðbundið reiðhjól.

Kassinn rúmar ýmist tvö börn eða slatta af farangri. Þegar kassinn er lokaður er hjólið býsna lítið um sig.

Að lokum

Samkvæmt verðlista kostar Riese & Müller Carrie með Enviolo skiptingu 1.299.995 krónur, en hægt er að fá allt að 200.000 króna rafhjólastyrk í gegnum Orkusjóð. Margir munu eflaust súpa hveljur við að sjá verðmiðann fyrir þetta hjól, enda mikið úrval af góðum notuðum bílum fyrir sama verð. Hafa ber þó í huga að eftir kaupin eru útgjöldin fyrir hjólið lítil sem engin, á meðan rekstrarkostnaður bíla hleypur á hundruðum þúsunda. Orkukostnaður rafmagnshjólsins er sáralítill, tryggingarnar valkvæðar og litlar sem engar, viðhald lítið sem ekkert og varahlutir ódýrir.

Allir þeir sem eru með geymslupláss fyrir svona hjól á jarðhæð, ýmist bílskúr, rúmgott andyri eða öruggt port, ættu virkilega að hugsa sér að fá sér Riese & Müller Carrie, enda dugar það í flest erindi og er bráðskemmtilegt að ferðast á því. Þeir sem þurfa stærri farmlest hafa jafnframt úr fjölmörgum nytjahjólum að velja. Nánari upplýsingar fást hjá Ellingsen, sem er með umboðið fyrir Riese & Müller og fleiri rafhjól. 

Greiðir tæplega helming skuldar við bændur
Fréttir 16. janúar 2026

Greiðir tæplega helming skuldar við bændur

Vegna rekstrarvanda á undanförnum misserum náði Ístex ekki að standa í skilum vi...

Ingólfur sæmdur fálkaorðunni
Fréttir 16. janúar 2026

Ingólfur sæmdur fálkaorðunni

Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, sæmdi fjórtán Íslendinga heiðursmerki hinnar...

Mata fær langmest af kjötkvóta
Fréttir 16. janúar 2026

Mata fær langmest af kjötkvóta

Búið er að úthluta tollkvótum fyrir landbúnaðarvörur frá Evrópusambandinu fyrir ...

2025 hlýjast frá upphafi mælinga
Fréttir 16. janúar 2026

2025 hlýjast frá upphafi mælinga

Árið 2025 var hlýjasta árið á Íslandi frá upphafi mælinga samkvæmt upplýsingum f...

Dæmdur fyrir vanrækslu nautgripa
Fréttir 16. janúar 2026

Dæmdur fyrir vanrækslu nautgripa

Héraðsdómur Norðurlands vestra dæmdi nautgripabónda til sex mánaða skilorðsbundi...

Hvað á klukkan að vera?
Fréttir 15. janúar 2026

Hvað á klukkan að vera?

Nú eru í gangi tveir undirskriftalistar á island.is þar sem annars vegar er bari...

Undanþáguheimildir til sameininga felldar niður
Fréttir 15. janúar 2026

Undanþáguheimildir til sameininga felldar niður

Drög að frumvarpi um breytingu á búvörulögum hafa verið birt á vef Alþingis. Í þ...

Tap af nautaeldi nam 19 krónum á hvert framleitt kíló
Fréttir 15. janúar 2026

Tap af nautaeldi nam 19 krónum á hvert framleitt kíló

Enn er nokkurt rekstrartap af nautaeldi á Íslandi og samkvæmt rekstraryfirliti R...