Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 4 mánaða.
Rústir á Stekkatúni við Hvítá, Vörðufell í baksýn.
Rústir á Stekkatúni við Hvítá, Vörðufell í baksýn.
Menning 8. júní 2026

Leyndardómar í landi Skálholts

Höfundur: Birna Lárusdóttir

Skálholt er óumdeilanlega einn helsti sögustaður þjóðarinnar. Þar var biskupsstóll frá árinu 1056 og fram til loka 18. aldar þegar hann var fluttur til Reykjavíkur. Þar var sömuleiðis skólahald um aldir og mannfjöldi mikill eins og gríðarlegar mannvistarleifar heima á staðnum vitna um. Umtalsverðar fornleifarannsóknir hafa verið gerðar þar, annars vegar á kirkjustæðinu á vegum Skálholtsfélagsins og Þjóðminjasafns um það leyti sem endurreisn staðarins stóð sem hæst upp úr miðri 20. öld og hins vegar á árunum upp úr 2000 þegar grafnar voru upp leifar biskupshúsa og skóla frá 17.-18. öld sunnan við kirkjuna á vegum Fornleifastofnunar Íslands. Margir þekkja til þessara rannsókna – hafa t.d. heyrt um steinkistu Páls biskups sem var opnuð að viðstöddu fjölmenni í ágúst 1954 eða hafa virt fyrir sér rústir af híbýlum biskupa ásamt skólabyggingum sem eru uppgrafnar og aðgengilegar sunnan við kirkjuna.

Kringlótt næla eða kinga frá 10. öld sem fannst í rofi við Hvítá. Kinga, safnnúmer 2015-8. Þjóðminjasafn Íslands. Birt með leyfi.

En margt liggur ókannað í Skálholti og víðar en bara heima á hlaði. Í landi jarðarinnar eru víða sýnilegar minjar á yfirborði og sumar þeirra allfornar. Nokkurn spöl sunnan við bæjarstæðið eru til að mynda tvö alveg ókönnuð rústasvæði við Hvítá sem fáir hafa heyrt um og tengjast að öllum líkindum rekstri staðarins. Annað þeirra er á grónu klettabelti ofan við straumþungan ál í ánni, nokkrar fornlegar tóftir í þéttum hnapp og mjög sokkið garðlag í sveig umhverfis sem hverfur út í mýrina vestan við og hefur þar verið rist í sundur af framræsluskurðum á 20. öld. Engin örnefni eða sagnir eru til vitnis um þennan stað sem gæti hafa verið veiðistaður. Hitt svæðið, svokallað Stekkatún, er rúmlega 600 m suðvestar, en það blasir reyndar líka við heiman frá Skálholti ef vel er að gáð, iðagrænt valllendi að sumarlagi. Þar eru margar rústir, sennilega misgamlar og hlaðið garðlag umhverfis. Þrjár þeirra eru á áberandi hólum en áin brýtur af syðsta hluta svæðisins og þar eru tvær rústir til viðbótar horfnar að hluta. Auk þessa er stórt, næstum ferhyrnt gerði vestan við svæðið sem gæti verið vísbending um einhvers konar ræktun. Örnefnið Stekkatún bendir til að stekkur hafi verið á staðnum, þ.e. rétt sem notuð var þegar lömb voru færð frá ám á vorin, en vel má vera að það tengist seinni tíma notkun, jafnvel eftir að biskupssetrið hafði verið aflagt. Þarna gæti fyrrum hafa verið lítið býli eða einhvers konar útstöð frá Skálholti, kannski tengd vetrarhirðingu sauðfjár sem hefur verið haldið til beitar sunnar, í Skálholtstungu.

Milli staðanna tveggja er fornt garðlag sem endar í rofi spottakorn frá ánni. Það hefur verið aldursgreint út frá afstöðu til gjóskulaga og er talið reist um 1200 – rétt um 150 árum eftir stofnun biskupsstólsins. Fyrir margt löngu – ég veit ekki nákvæmlega hvenær – var maður á skemmtigöngu á þessum slóðum og rakst á merkilegan grip úr bronsi í rofi við enda garðs við ána, sennilega á þessum stað. Gripurinn kom til Þjóðminjasafns árið 2015 og reyndist vera kinga eða næla frá 10. öld og er þar með elsti forngripur sem vitað er um úr Skálholti. Hugsanlegt er að nælan sé úr kumli, en það er algengasta fundarsamhengi sambærilegra gripa hér á landi. Þar með hefur mannvist í Skálholti á 10. öld verið staðfest enn frekar, en áður hafa frjókornarannsóknir sýnt fram á ræktun byggs á staðnum frá því um svipað leyti.

Það er vel þess virði að fá sér göngutúr um suðurhluta Skálholtsjarðarinnar, skoða ummerki fortíðar og velta fyrir sér ferðum manna í aldanna rás. Þar má fylgja stikaðri gönguleið – Þorláksleið sem er kennd við Þorlák helga. 

Skylt efni: fornminjar | Skálholt

Skinka úr íslensku svínakjöti
Fréttir 26. október 2026

Skinka úr íslensku svínakjöti

Stjörnugrís er eini framleiðandinn sem framleiðir skinku aðeins úr íslensku svín...

Gjaldheimta eykst á meðan fjárveitingar dragast saman
Fréttir 26. október 2026

Gjaldheimta eykst á meðan fjárveitingar dragast saman

Ný greining Samtaka iðnaðarins (SI) bendir til þess að sífellt stærra bil sé að ...

Hertar reglur um blý í skotfærum
Fréttir 26. október 2026

Hertar reglur um blý í skotfærum

Frestur til að gera athugasemdir við herta löggjöf Evrópusambandsins um blý í sk...

Óþroskað bygg nefnt léttbygg
Fréttir 26. október 2026

Óþroskað bygg nefnt léttbygg

Léttbygg má nota í fóður og sem trefjagjafa í bakstur segir í nýrri skýrslu sem ...

Fengju reikning fyrir skemmdum með nýju frumvarpi
Fréttir 23. október 2026

Fengju reikning fyrir skemmdum með nýju frumvarpi

Stjórnvöld fengju auknar heimildir til að bregðast við ólögmætum utanvegaakstri ...

Ákall um að verja landbúnaðarstefnuna
Fréttir 23. október 2026

Ákall um að verja landbúnaðarstefnuna

Stokkhólmsyfirlýsing evrópskra bænda er afdráttarlaus og hvetur ráðamenn ríkja E...

Sýknuð vegna ágangs sauðfjár
Fréttir 23. október 2026

Sýknuð vegna ágangs sauðfjár

Héraðsdómur Austurlands hefur sýknað Fjarðabyggð af kröfu Hrefnu Dagbjartar Arna...

Fuglavernd mótmælir harðlega skotveiðum á bjargdúfum í Vestmannaeyjum
Fréttir 23. október 2026

Fuglavernd mótmælir harðlega skotveiðum á bjargdúfum í Vestmannaeyjum

Stjórn Fuglaverndar sendi nýlega bréf á umhverfis- orku og loftlagsráðuneytinið ...